Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-196/2021 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um gagnsæi í fjármögnunarviðskiptum með verðbréf og endurnotkun

Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um gagnsæi í fjármögnunarviðskiptum með verðbréf og endurnotkun.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: október).

Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um gagnsæi í fjármögnunarviðskiptum með verðbréf og endurnotkun. Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ný heildarlög sem innleiða tilskipun 2365/2015 um fjármögnunarviðskipti með verðbréf og endurnotkun í íslenskan rétt. (STFR-reglugerðin). Reglugerðin var sett til að auka gagnsæi á mörkuðum fyrir fjármögnunarviðskipti, jafna samkepnni og alþjóðlega samleitni og til að styrkja eftirlit. Markmiðið með fyrirhugaðri lagasetningu er að skráðar verði í viðskiptaskrá upplýsingar um fjármögnunarviðskipti allra markaðsaðila með verðbréf, hvort sem þeir eru fjármálafyrirtæki eða ekki. Þær upplýsingar sem lagt er til að verði skráðar eru meðal annars hvenær viðskiptin eiga sér stað, samsetning veðtrygginga, hvort veðtryggingin sé aðgengileg til endurnotkunar eða hvort hún hafi verið endurnotuð, notkun staðgönguveðtrygginga í lok hvers dags og frádragið sem er notað. Ennig verður kveðið á um samstarf eftirlitsaðila í aðildarríkjum svo þeir hafi yfirlit yfir áhættu vegna fjármögnunarviðskipta með verðbréf og upplýsingaskipti þeirra vegna þess.

S-196/2021· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. okt. 2021 – 9. nóv. 2021· 1 umsögn

Áform um frumvarp til laga um gagnsæi í fjármögnunarviðskiptum með verðbréf og endurnotkun

Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um gagnsæi í fjármögnunarviðskiptum með verðbréf og endurnotkun.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-196/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 9. nóvember 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 588)
Niðurstöður samráðs (18. ágúst 2022)

Um áformin barst umsögn frá Samtökum fjármálafyrirtækja. Í henni var bent á tvennt: 1) að bankar væru ekki sérstaklega taldir upp sem hagsmunaaðilar og 2) að bankar hér á landi þurfi a.m.k. eitt ár til undirbúnings frá gildistöku nýrra laga. Í lagafrumvarpi verður ítarlegri umfjöllun um áhrif frumvarpsins á banka og verður reynt að koma til móts við fyrrgreind sjónarmið um gildistökufrest.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-196/2021: Áform um frumvarp til laga um gagnsæi í fjármögnunarviðskiptum með verðbréf og endurnotkun · Alviti