Drög að frumvarpi til laga um sýslumann
Lagt er til að lög nr. 50/2014 verði felld úr gildi samhliða gildistöku nýrra laga um sýslumann. Helsta breytingin felst í sameiningu sýslumannsembættanna með það að markmiði að bæta þjónustuna.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-122/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 15. ágúst 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 32 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Niðurstöður samráðs (12. desember 2023)
Að loknu samráði var hætt við framlagningu frumvarpsins fyrir Alþingi.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (32)
- #1Björn Leví Gunnarsson
Verkefni teymisins sem sér um sáttameðferð umgengnismála á ekki heima hjá sýslumanni. Það er embættið sem leggur á refsingu (dagsektir) og er því ekki viðeigandi að hafa sáttameðferð á sama stað.
- #2Þóra Ásbjörnsdóttir
Mín skoðun er að lög 50/2014 verði óbreytt. Þau hafa reynst vera all góð frá minni reynslu séð m.t.t.góðs aðgengis og afgreiðslu. Og vil ég að sami sýslumannsembættið verði áfram eins og það er nú. Virðingarfyllst, Þóra Ásbjörnsdóttir
- #3Sveitarfélagið Skagafjörður
Á 7. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 20. júlí 2022 var tekið fyrir mál 122/2022, Drög að frumvarpi til laga um sýslumann, og þannig bókað. Byggðarráð Skagafjarðar gerir athugasemdir við tímasetningu birtingar á drögum að nýjum lögum um sýslumann sem ætlað er að leysa af hólmi lög um framkvæmdavald og stjórnsýslu ríkisins í héraði. Drögin eru birt á þeim tíma þegar flestir eru í sumarleyfum og umsagnarfrestur er gefinn í rúmar 2 vikur. Byggðarráð Skagafjarðar er sammála þeim meginmarkmiðum sem er að finna í drögunum um að byggðar verði upp öflugar og nútímalegar þjónust… Lesa alla
Á 7. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 20. júlí 2022 var tekið fyrir mál 122/2022, Drög að frumvarpi til laga um sýslumann, og þannig bókað. Byggðarráð Skagafjarðar gerir athugasemdir við tímasetningu birtingar á drögum að nýjum lögum um sýslumann sem ætlað er að leysa af hólmi lög um framkvæmdavald og stjórnsýslu ríkisins í héraði. Drögin eru birt á þeim tíma þegar flestir eru í sumarleyfum og umsagnarfrestur er gefinn í rúmar 2 vikur. Byggðarráð Skagafjarðar er sammála þeim meginmarkmiðum sem er að finna í drögunum um að byggðar verði upp öflugar og nútímalegar þjónustueiningar um land allt, þar sem sinnt verður bæði miðlægum og sérhæfðum verkefnum á landsvísu ásamt þjónustu í heimabyggð, eins nálægt fólki og kostur er. Jafnframt að þjónusta sýslumanns verði aðgengileg að mestu leyti með óbreyttu sniði, þ.e. hjá þeim sveitarfélögum sem sinna þjónustu embættanna í dag, en að unnið verði að því að nýta húsnæðiskosti embættanna betur ásamt því að stuðla að auknu samstarfi við aðrar ríkisstofnanir og sveitarfélög. Byggðarráð geldur hins vegar varhug við að embættum sýslumanna verði fækkað en sporin hræða í þeim efnum að þegar stjórnsýslueiningar missa ákveðið sjálfstæði hefur slíkt oftar en ekki leitt til þess að umfang starfsstöðva þeirra hefur minnkað í kjölfarið eða þeim verið lokað með tilheyrandi skerðingu á nærþjónustu. Nægir þar að nefna starfsemi svæðisstöðva Ríkisútvarpsins á landsbyggðinni, starfsemi Vegagerðarinnar, Rarik o.fl. Byggðarráð leggur því áherslu á að frumvarp þetta verði ekki lögfest án þess að samhliða verði fest í lög þau verkefni og umsvif sem starfsstöðvum sýslumanns er ætlað að sinna. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
- #4Sýslumannafélag Íslands
Stjórn Sýslumannafélags Íslands f.h. félagsmanna vill koma á framfæri athugasemdum við drög að frumvarpi dómsmálaráðherra um sýslumann en tekin var einróma ákvörðun á félagsfundi þann 19. júlí sl. um að stjórn sendi umsögn í samráðsgátt stjórnvalda fyrir þeirra hönd. Almennt má segja að ábendingar félagsmanna lúti að miklu leyti að skorti á því að málið sé unnið á faglegum forsendum. Sem dæmi má nefna að ekki verður séð að réttarfarsnefnd hafi fengið málið til umfjöllunar þegar þetta er ritað. Það er mikilvægt þar sem breytingarnar ná ekki fram að ganga nema að samhliða séu gerðar umfangsmi… Lesa alla
Stjórn Sýslumannafélags Íslands f.h. félagsmanna vill koma á framfæri athugasemdum við drög að frumvarpi dómsmálaráðherra um sýslumann en tekin var einróma ákvörðun á félagsfundi þann 19. júlí sl. um að stjórn sendi umsögn í samráðsgátt stjórnvalda fyrir þeirra hönd. Almennt má segja að ábendingar félagsmanna lúti að miklu leyti að skorti á því að málið sé unnið á faglegum forsendum. Sem dæmi má nefna að ekki verður séð að réttarfarsnefnd hafi fengið málið til umfjöllunar þegar þetta er ritað. Það er mikilvægt þar sem breytingarnar ná ekki fram að ganga nema að samhliða séu gerðar umfangsmiklar breytingar á öllu fullnusturéttarfari. Bent er á að verði frumvarpið að lögum felur það í sér umtalsvert framsal á valdi frá löggjafanum til ráðherra. Aukinheldur verður ekki annað séð en að um mikilvægt byggðamál sé að ræða og að frumvarpið hafi mikil áhrif á réttindi og kjör starfsmanna sýslumanna, starfsemi embættanna og þjónustu. Nákvæm fjárhagsáætlun eða langtímaáætlun liggur ekki fyrir og því fullkomin óvissa uppi um hver er rekstrargrundvöllur og þar með framtíð starfa og starfsmanna hjá embættum sýslumanna um land allt verður. Þessum sjónarmiðum og rökstuðningur fyrir þeim eru gerð ítarlegri skil í umsögn hér í viðhengi. Virðingarfyllst Jónas B. Guðmundsson, formaður stjórnar Sýslumannafélags Íslands
- #5Kristján Sverrisson
Félag forstöðumanna ríkisstofnana (FFR) sendir hjálagt inn umsögn félagsins um þau drög að nýjum lögum um sýslumann sem lögð hafa verið í Samráðsgátt. FFR gerir athugasemdir við tímasetningu og skamman umsagnarfrest en auk þess efnislegar athugasemdir við nokkur atriði í drögum þessum. Þá telur FFR að fyrirhuguð uppsögn félagsmanna gangi þvert gegn nýlega innleiddum reglum um starfsumhverfi forstöðumanna. Félagið lýsir sig reiðubúið til samráðs um breytingar á drögum þessum. f.h. Félags forstöðumanna ríkisstofnana Kristján Sverrisson, formaður stjórnar FFR
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.