Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á sviði fiskveiðistjórnar (viðurlög og tengdir aðilar)
Áformað er að leggja til breytingu á ákvæðum er varða viðurlög við brotum á lögum fiskveiðistjórnar og ákvæðum sem varða tengda aðila í sjávarútvegi.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-183/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 4. nóvember 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Niðurstöður samráðs (8. nóvember 2022)
Þrjár umsagnir bárust á umsagnartíma, frá Strandveiðifélagi Íslands, Landssambandi smábátaeigenda og Útgerðarfélagi Reykjavíkur hf. Almennt var fagnað áformum um heildstætt viðurlagakerfi. Þá komu fram sjónarmið um nauðsyn þess að skilgreina hvað séu tengdir aðilar og að hugtakið raunveruleg yfirráð sé afmarkað betur sem varðar framkvæmd reglna um hámarksaflahlutdeild. Einnig komu fram sjónarmið um varúð við breytingu á reglum m.t.t. afturvirkra áhrifa o. fl. Unnið verður úr innsendum umsögnum. Verði frumvarp til laga lagt fram mun það áður verða birt í samráðsgátt til frekari athugasemda.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
- #1Álfheiður Eymarsdóttir
Strandveiðifélag Íslands fagnar þessum áformum. Þau viðurlög sem nú eru í gildi virðast ekki bíta nægilega vel og verulegt ósamræmi milli viðurlaga og brota. Þá er nauðsynlegt að tengdir aðilar séu skilgreindir upp á nýtt og miðað sé við eðlilega og almenna viðskiptahætti. Við vonum að málið verði einnig tekið til umræðu á vettvangi Sjávarútvegsnefndar MAR. F.h. Strandveiðifélags Íslands, Álfheiður Eymarsdóttir, st. formaður.
- #2Útgerðarfélag Reykjavíkur hf.
Umsögn Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. í viðhengdu skjali.
- #3Landssamband smábátaeigenda
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.