Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-257/2022 · Dómsmálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á vistheimilinu á Hjalteyri í Arnarneshreppi

Drög að frumvarpi til laga um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á vistheimilinu á Hjalteyri í Arnarneshreppi.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: febrúar).

Hér eru birt til samráðs drög að frumvarpi til laga um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á vistheimilinu á Hjalteyri í Arnarneshreppi, sem gerir kleift að taka á málum einstaklinga sem urðu fyrir varanlegum skaða af illri meðferð eða ofbeldi sem börn meðan þeir voru vistaðir á heimilinu á tímabilinu 1972-1979. Frumvarpið heimilar stjórnvöldum greiðslu sanngirnisbóta til þeirra sem urðu fyrir misgjörðum á heimilinu, í samræmi við þá stefnu sem var afmörkuð sanngirnisbótum frá upphafi. Vistheimilið á Hjalteyri í Arnarneshreppi nýtur þeirrar sérstöðu umfram önnur heimili sem nefnd hafa verið um í tengslum við sanngirnisbætur, að það virðist með réttu hafa átt að hljóta rannsókn vistheimilanefndar miðað við þær forsendur sem lágu til grundvallar störfum nefndarinnar. Skýrsla starfshóps á vegum dómsmálaráðuneytisins og fyrri umfjöllun vistheimilanefndar styður við þær frásagnir sem hafa komið upp undanfarið, þ.e. að einstaklingar sem þar voru vistaðir kunni að hafa orðið fyrir illri meðferð eða ofbeldi. Sú staða réttlætir að gerðar séu upp misgjörðir á heimilinu með greiðslu sanngirnisbóta, og er talið rétt að það verði gert með sambærilegum hætti og gagnvart þeim sem voru vistaðir á stofnunum fyrir fötluð börn. Þykja sjónarmiðin sem upphaflega lágu til grundvallar framkvæmd sanngirnisbóta og stefnan sem hefur verið afmörkuð í þessum efnum styðja enn frekar við þá niðurstöðu. Ekki er talin ástæða til að leggja í jafn ítarlegar og tímafrekar úttektir á heimilinu og gerðar voru í tíð laga nr. 47/2010, áður en þeim var breytt með lögum nr. 148/2020 um breytingu á lögum nr. 47/2010, um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007 (lokauppgjör) og gera skýrslu vistheimilanefndar eða aðra sambærilega skýrslu að skilyrði fyrir greiðslu bóta. Litið er svo á að nægileg vitneskja sé fyrir hendi um tíðaranda, viðhorf, uppbyggingu og starfsemi vistheimilisins og um það sem fór úrskeiðis eða betur hefði mátti fara. Með skýrslum vistheimilanefndar hafi farið fram ákveðið uppgjör við fortíðina og skapast grundvöllur til að taka með aðgengilegri og einfaldari hætti en áður afstöðu til erinda frá þeim sem voru vistuð á barnsaldri á vistheimilinu á Hjalteyri og telja sig hafa orðið fyrir illri meðferð og ofbeldi í þeirri vistun. Nauðsynlegt er að lögfesta heimildir stjórnvalda til að ljúka uppgjöri sanngirnisbóta við einstaklinga sem urðu fyrir varanlegum skaða af illri meðferð eða ofbeldi á vistheimilinu á Hjalteyri, enda séu bótakröfurnar fyrndar og greiðsla bóta því umfram lagaskyldu. Talið er nauðsynlegt að mæla fyrir um sértækar heimildir til að greiða sanngirnisbætur vegna misgjörða á heimilinu þar sem gildissvið laga nr. 47/2010, um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum fyrir fötluð börn, takmarkast samkvæmt 1. gr. laganna við stofnanir sem voru starfræktar á vegum hins opinbera fyrir fötluð börn. Vistheimilið á Hjalteyri fellur utan við gildissvið laganna og í ljósi þess að umrædd lög falla brott 31. desember 2023, þykir heppilegra að lögfesta sérlög sem varða heimilið á Hjalteyri. Stefnt er að því að ljúka megi samfélagslegu uppgjöri vegna vistheimilisins á Hjalteyri með aðgengilegum og einföldum hætti, sem gæti orðið til verulegra hagsbóta fyrir þá einstaklinga sem málið varðar þar sem unnt yrði að skoða og afgreiða mál þeirra nokkuð greiðlega.

S-257/2022· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. des. 2022 – 11. jan. 2023· 10 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á vistheimilinu á Hjalteyri í Arnarneshreppi

Drög að frumvarpi til laga um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á vistheimilinu á Hjalteyri í Arnarneshreppi.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-257/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 11. janúar 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 10 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Niðurstöður samráðs (12. desember 2023)

Frumvarpið var ekki lagt fyrir Alþingi vegna skörunar við frumvarp forsætisráðherra til laga um almennar sanngirnisbætur, sbr. þingskjal 481 - 449. mál á 154. löggjafarþingi 2023-2024.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (10)
  • #1Árni Haukdal Kristjánsson
    Í frumvarpi þessu segir: „Lagt er til að misgjörðir á vistheimilinu verði gerðar upp með greiðslu sanngirnisbóta, með sambærilegum hætti og gagnvart þeim sem voru vistaðir á stofnunum fyrir fötluð börn.“ Því miður þá eru áformin allt önnur í veigamiklu atriði. Í 4. grein frumvarpsins „Fjárhæð sanngirnisbóta“ segir: „Við ákvörðun fjárhæðar sanngirnisbóta skal einnig, eftir því sem unnt er, tekið mið af dómaframkvæmd á sambærilegum sviðum. Bætur til einstaklings skulu aldrei vera hærri en 6 millj. kr.“ Síðan segir í skýringum við 4. grein: „Ekki er talin ástæða til að vísitölubinda hámarksfjárh… Lesa alla

    Í frumvarpi þessu segir: „Lagt er til að misgjörðir á vistheimilinu verði gerðar upp með greiðslu sanngirnisbóta, með sambærilegum hætti og gagnvart þeim sem voru vistaðir á stofnunum fyrir fötluð börn.“ Því miður þá eru áformin allt önnur í veigamiklu atriði. Í 4. grein frumvarpsins „Fjárhæð sanngirnisbóta“ segir: „Við ákvörðun fjárhæðar sanngirnisbóta skal einnig, eftir því sem unnt er, tekið mið af dómaframkvæmd á sambærilegum sviðum. Bætur til einstaklings skulu aldrei vera hærri en 6 millj. kr.“ Síðan segir í skýringum við 4. grein: „Ekki er talin ástæða til að vísitölubinda hámarksfjárhæð sanngirnisbóta...“ Þetta stangast á við núgildandi lög nr. 47/2010 um sanngirnisbætur þar sem segir: „Við ákvörðun fjárhæðar sanngirnisbóta skal einnig, eftir því sem unnt er, tekið mið af dómaframkvæmd á sambærilegum sviðum. Bætur til einstaklings skulu aldrei vera hærri en 6 millj. kr. Hámark þetta breytist 1. janúar ár hvert í samræmi við vísitölu neysluverðs.“ Í frumvarpinu hefur því ákvæðið um að samræma hámarksupphæð við vísitölu neysluverðs verið tekið út. Með því móti verða bætur bætur mun lægri en þær ættu að vera því hámarksbætur verða 6 millj. kr. en ættu að vera um 9,5 millj. kr. skv. ákvæði um vísitölu neysluverðs í núgildandi lögum nr. 47/2010. Það er ljóst að með því að aftengja vísitöluna er alls ekki „tekið mið af dómaframkvæmd á sambærilegum sviðum“. Í frumvarpi þessu er raunar horft fram hjá núgildandi lögum um sanngirnisbætur hvað þetta atriði varðar. Með áformum um að aftengja vísitölu neysluverðs er þess freistað að trompa núgildandi lög til að spara óverulegar fjárhæðir og mismuna þar með þolendum. Það er ljóst að ákvæðið „Ekki er talin ástæða til að vísitölubinda hámarksfjárhæð sanngirnisbóta...“ verður að fara út enda ber ríkisvaldinu að fara að núgildandi lögum, horfa til fordæma og gæta jafnræðis. Það er ótækt að mismuna þolendum og í versta falli snuða þá um 3,5 millj. kr. Árni H. Kristjánsson

  • #2Steinar Immanúel Sörensson
    það er svo sem margt ágætt í þessu frumvarpi, þó mætti nefna nokkur atriði sem hafa verið rædd m.a. við dómsmálaráðherra en virðast einhverra hluta vegna ekki koma hér fram, þar mætti kannski helst telja gjaldfrjálsa aðstoð við þá sem þarna voru frá sérfræðingum s.s eins og sálfræðingum og geðlæknum annað sem stingur í stúf er að ekki eigi að vísitölutengja bæturnar, því er jafnræðis á við þá aðra sem hafa fengið sanngirnisbætur eftir 2010 þá voru þær upphæðir vísitölu tengdar frá 2010, hér er því verið að mismuna fólki hrapalega, því það vita allir sem vilja að 6 milljónir 2010 eru ekki 6… Lesa alla

    það er svo sem margt ágætt í þessu frumvarpi, þó mætti nefna nokkur atriði sem hafa verið rædd m.a. við dómsmálaráðherra en virðast einhverra hluta vegna ekki koma hér fram, þar mætti kannski helst telja gjaldfrjálsa aðstoð við þá sem þarna voru frá sérfræðingum s.s eins og sálfræðingum og geðlæknum annað sem stingur í stúf er að ekki eigi að vísitölutengja bæturnar, því er jafnræðis á við þá aðra sem hafa fengið sanngirnisbætur eftir 2010 þá voru þær upphæðir vísitölu tengdar frá 2010, hér er því verið að mismuna fólki hrapalega, því það vita allir sem vilja að 6 milljónir 2010 eru ekki 6 milljónir í dag, heldur sé fulls jafnræðis gætt eins og við Hjalteyrarbörnin fórum fram á í greinargerð til Dómsmálaráðherra væri núverandi hámarksupphæð vísitölutryggð um 9.5 milljónir króna þetta vita ráðamenn auðvitað og það er mikilvægt bæði í sögulegu ljósi og að teknu tilliti hvernig framkvæmd hefur verið eftir 2010 að þetta fái fylgt sömu reglum, það kemur ítrekað fram í frumvarpinu að réttilega hefu Hjalteyrarbörnin átt að fá sömu meðferð og sömu bætur á sama tíma og aðrir, það er því langt frá því sanngirni fólgin í því að skerða þessa upphæð að raunvirði, við höfum í öllum okkar (kröfum/ábendingum) farið fram á það að sanngirni sé gætt að öllu leiti, því að gera það ekki jafngildir því að gera lítið úr okkar skaða, og er í raun enn ein tilraunin til að beita okkur áfram ofbeldi. Í 4. grein frumvarpsins „Fjárhæð sanngirnisbóta“ segir: „Við ákvörðun fjárhæðar sanngirnisbóta skal einnig, eftir því sem unnt er, tekið mið af dómaframkvæmd á sambærilegum sviðum. Bætur til einstaklings skulu aldrei vera hærri en 6 millj. kr.“ Síðan segir í skýringum við 4. grein: „Ekki er talin ástæða til að vísitölubinda hámarksfjárhæð sanngirnisbóta...“ Þetta stangast á við núgildandi lög nr. 47/2010 um sanngirnisbætur þar sem segir: „Við ákvörðun fjárhæðar sanngirnisbóta skal einnig, eftir því sem unnt er, tekið mið af dómaframkvæmd á sambærilegum sviðum. Bætur til einstaklings skulu aldrei vera hærri en 6 millj. kr. Hámark þetta breytist 1. janúar ár hvert í samræmi við vísitölu neysluverðs.“ það er því óskað eftir hér að þessi þáttur að vísitölutryggja ekki bæturnar frá árinu 2010 verði tekinn til endurskoðunar og fulls réttlætis og sanngirni gætt. mbk einn Hjalteyrarbarnann og sá sem hefur barist við að fá áheyrn stjórnvalda varðandi þetta heimili síðan 2007, Steinar Immanúel Sörensson

  • #3Guðríður Björk Magnúsdóttir
    Að það eigi virkilega að fara mismuna fólki sem vistað var á stofnunum sem ríkið hafði undir sinni stjórn er fáránleg mismunun, þetta snýst samt ekki um peninga í raun því þá væru bætur fyrir þann miska sem þessi börn urðu fyrir mikið hærri, þessi bærn sem hér um ræðir í þessu frumvarpi þurftu að þola níðing í ýmsum myndum frá stjórnendum/ umsjónarfólki þessa heimilis á Hjalteyri, þó börnin kvörtuðu þá var ekki hlustað á þau, þáverandi skólastjóri Þelamerkurskóla hlustaði ekki heldur þegar börn leituðu til hans eftir hjálp, heldur hringdi skólastjórinn liðbeint í umsjónaraðila Hjalteyraheimili… Lesa alla

    Að það eigi virkilega að fara mismuna fólki sem vistað var á stofnunum sem ríkið hafði undir sinni stjórn er fáránleg mismunun, þetta snýst samt ekki um peninga í raun því þá væru bætur fyrir þann miska sem þessi börn urðu fyrir mikið hærri, þessi bærn sem hér um ræðir í þessu frumvarpi þurftu að þola níðing í ýmsum myndum frá stjórnendum/ umsjónarfólki þessa heimilis á Hjalteyri, þó börnin kvörtuðu þá var ekki hlustað á þau, þáverandi skólastjóri Þelamerkurskóla hlustaði ekki heldur þegar börn leituðu til hans eftir hjálp, heldur hringdi skólastjórinn liðbeint í umsjónaraðila Hjalteyraheimilisins, þessi börn ig önnur ómálga börn eins og vistuð voru á Vöggustofunni á Hlíðarenda áttu enga rödd og engan málsvara í raun því þessir örfáu sem stôðu upp var ekki hlustað á og ekki síst mess vegna er ábyrgð ríkisins MJÖG STÓR

  • #4Steinar Immanúel Sörensson
    langar að bæta aðeins við umsögn sem ég hafði sent inn áður, m.a. rökstyðja hvers vegna það ætti að greiða vísitölutengdar bætur frá 2010 , í fyrsta lagi var þetta gert þegar börnum með fatlanir voru greiddar bætur og það er lagt til í greinargerð að bætur greiddar þeim sem voru á Hjalteyri verði gerðar upp með sambærilegum hætti og þegar ákveðið var að greiða bætur fyrir fötluð börn sem vistuð voru á stofnunum, og eins og kemur fram í greinargerð með frumvarpinu þá þykja upphaflegu sjónarmiðin sem lágu til grundvallar framkvæmd sanngirnisbóta styðja það í öðrulagi þá kemur ítrekað fr… Lesa alla

    langar að bæta aðeins við umsögn sem ég hafði sent inn áður, m.a. rökstyðja hvers vegna það ætti að greiða vísitölutengdar bætur frá 2010 , í fyrsta lagi var þetta gert þegar börnum með fatlanir voru greiddar bætur og það er lagt til í greinargerð að bætur greiddar þeim sem voru á Hjalteyri verði gerðar upp með sambærilegum hætti og þegar ákveðið var að greiða bætur fyrir fötluð börn sem vistuð voru á stofnunum, og eins og kemur fram í greinargerð með frumvarpinu þá þykja upphaflegu sjónarmiðin sem lágu til grundvallar framkvæmd sanngirnisbóta styðja það í öðrulagi þá kemur ítrekað fram í greinargerð með frumvarpinu að Vistheimilið að Hjalteyri hefði með réttu átt að hljóta rannsókn vistheimilanefndar, og þar með vera inní sama pakka og þau heimili sem fengu greiddar sanngirnisbætur 2010 það er mikið talað um að jafnræðis skuli gætt meðal þeirra sem þarna voru og hinna sem þegar hafa fengið bætur, og það á réttilega og í einu og öllu að vera málið, það er eitthvað sem við Hjalteyrarbörnin höfum lagt ríka áherslu á og þess vegna er mikilvægt í ljósi þessa jafnræðis alls að bæturnar verði þær sömu og 2010, en vísitölutengdar frá þeim tíma einfaldlega vegna þess að annars væri ekki um jafnræði að eiga þar sem það vita allir að upphæðir ársins 2010 eru ekki að raunvirði þær sömu og í dag, þetta hefur m.a.s Fjármálaráðherra hæstvirtur notað til úrskýringa þegar kemur að gjaldskrár hækkunum Ríkisins og nú ekki svo alls fyrir löngu í sjónvarpi allra landsmanna annað sem mætti taka til athugunar er að bætur þeirra sem þegar hafa látist og geta því ekki sjálfir sótt um bæturnar en hafa t.d. verið barnlausir ættu að fá þá virðingu að þeirra sanngirnis vottun sem bæturnar í raun eru, fái að fylgja erfðalögum og greiðast til því til þeirra ættingja sem við á vonandi verður ekki farið fram á ofur ítarlega greinargerð um ofbeldið og skaðann þó svo það sé skiljanlegt að Ríkið vilji einhverjar upplýsingar þar um, einfaldlega vegna þess skaða sem þannig úrvinnsla getur valdið viðkomandi, og í raun þarfnaðist sérstakrar aðstoðar sérfræðinga til að aðstoða viðkomandi með eðlis málsins vegna, svona sár geta opnað á hyldýpi erfiðra tilfinninga sem ómögulegt er að takast á við nema með aðstoð, börn sem voru á kumbaravogi höfðu kost á amk 10 tímum frá sérfræðingi, sem reyndar myndi nú þó lítið gera nema opna málin, aðstoð við svona kann að taka hundruði sérfræðitíma, Sálfræði eða önnur sérfræðiaðstoð ætti líka að bjóðast þeim sem þarna voru þeim að kostnaðarlausu, og í þeim tilfellum sem fólk hefur jafnvel árum saman þurft að leita sér aðstoðar vegna þeirra sára sem þarna urðu til fá þann kostnað bættann eitt af því sem við stungum uppá við Dómsmálaráðherra á fundi var, að hámarksbætur yrðu greiddar til hvers og eins sem um bætur sótti, þvi í raun væri með því að greiða minna verið að gera lítið úr þeim skaða sem við urðum fyrir, en hann er óbætanlegur í raun þó svo hann kunni að einhverjuleiti að hafa lagst mismunandi illa á fólk síðar á lífsleiðinnim og þar með væri það því táknrænt framlag ríkissins að greiða öllum hámarkið einhver allrabesta leiðin til að sýna iðrun í verki, án nokkurs undandráttar, þegar maður gengur eins langt í iðrun og hægt er þá verður aldrei um meiri ágreining að ræða, afsökunarbeiðnin ætti í raun að liggja þar. að öðruleiti sýnist mér þetta ágætis frumvarp, og þokkalega unnið, en sanngirni, jafnræði og virðing ætti að vera höfð hér að leiðarljósi við gerð frumvarpsins, og ættu þeir sem það klára að leggja sig fram við að setja sig í spor okkar sem þarna hlutum óbætanlegan skaða fyrir lífstíð. mbk Steinar Immanúel Sörensson yngsta barnið sem þarna var vistað, og hlaut af varanlegan skaða sem ég hef enn ekki 50 árum síðar náð að bæta.

  • #5Helga Björg Gunnarsdóttir
    Ég vil byrja á því að segja að það sé talað um jafnrétti á milli þeirra sem hafa fengið bætur og okkur Hjalteyrisbarnanna, sem er ekki í þetta skiptið. Þar sem þessar "bætur" eru ekki vísitölutryggðar og annað að þessar 6 millur eru ekki raunvirði þess sem aðrir hafa fengið. Að það sé virkilega verið að missmuna okkur AFTUR... já Aftur segi ég ekki bað ég um að fara þarna og upplifa allann þann hrilling sem ég hef burðast með í yfir 40 ár alveg sama hvað ég hef unnið í mér er þessi hrillingur ekkert minni enn þegar eg upplifið hann á þessum tíma sem ég var þarna. Ekkert kemur fram að við f… Lesa alla

    Ég vil byrja á því að segja að það sé talað um jafnrétti á milli þeirra sem hafa fengið bætur og okkur Hjalteyrisbarnanna, sem er ekki í þetta skiptið. Þar sem þessar "bætur" eru ekki vísitölutryggðar og annað að þessar 6 millur eru ekki raunvirði þess sem aðrir hafa fengið. Að það sé virkilega verið að missmuna okkur AFTUR... já Aftur segi ég ekki bað ég um að fara þarna og upplifa allann þann hrilling sem ég hef burðast með í yfir 40 ár alveg sama hvað ég hef unnið í mér er þessi hrillingur ekkert minni enn þegar eg upplifið hann á þessum tíma sem ég var þarna. Ekkert kemur fram að við fáum salfræðiþjónustu frýja sem er ekki sanngjarnt, finnst mér að það þurfi að koma fram í þessu frumvarpi sálfræðiþjónusta á kostnað ríkisins.... Sum okkar hafa ekki sótt um neinar bætur hvað varðar þessu sjúku dvöl þarna, sumir hafa ekki getu eða hreinlega ekki á lífi til þess að sækja um þær. Þessar"BÆTUR" sem á að henda í okkur verða að vera sanngjarna sem þær eru ekki því þær eru ekki reiknaðar með vísitölu frá árinu 2010, og annað að þær ættu að vera hærri þar sem árið er 2023.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-257/2022: Drög að frumvarpi til laga um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á vistheimilinu á Hjalteyri í Arnarneshreppi · Alviti