Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
95 mál · sótt 27. október 2026
- Komið til AlþingisS-131/2021· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. jún. 2021 – 16. júl. 2021· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um upplýsingar tengdar sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu.
Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram á haustþingi 2021 frumvarp til nýrra laga um upplýsingar tengdar sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu til innleiðingar á reglugerðum (ESB) nr. 2019/2088 um sama efni og 2020/852 um ramma til að greiða fyrir sjálfbærri fjárfestingu.
- Komið til AlþingisS-118/2021· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. maí 2021 – 4. jún. 2021· 9 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um sorgarleyfi
Félagsmálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um sorgarleyfi.
- Komið til AlþingisS-117/2021· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. maí 2021 – 4. jún. 2021· 8 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um greiðslur vegna umönnunar langveikra og fatlaðra barna.
Félagsmálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um greiðslur vegna umönnunar langveikra og fatlaðra barna. Umsagnarfrestur er til 4. júní nk.
- Komið til AlþingisS-116/2021· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. maí 2021 – 10. jún. 2021· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um evrópska áhættufjármagnssjóði og evrópska félagslega framtakssjóði
Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til nýrra heildarlaga um evrópska áhættufjármagnssjóði og evrópska félagslega framtakssjóði sem mun innleiða reglugerðir (ESB) 345/2013 og 346/2013 (EuVECA- og EuSEF-reglugerðir).
- Komið til AlþingisS-112/2021· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. maí 2021 – 21. jún. 2021· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjárhagslegar viðmiðanir
Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til að innleiða reglugerð (ESB) 2021/168 um breytingu á reglugerð (ESB) 2016/1011 um fjárhagslegar viðmiðanir.
- Komið til AlþingisS-98/2021· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. apr. 2021 – 17. apr. 2021· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða nr. 129/1997, með síðari breytingum (nýting séreignarsparnaðar)
Lögð er til framlenging á skattfrjálsri nýtingu séreignarsparnaðar til öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota.
- Ekki komið til AlþingisS-93/2021· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 31. mar. 2021 – 14. apr. 2021· 9 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt (byggingarstarfsemi, almenningssamgöngur o.fl.)
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um virðisaukaskatt, m.a. með það að leiðarljósi að styrkja og betrumbæta þau ákvæði laganna er varða almenningssamgöngur, frjálsa og sérstaka skráningu fasteigna, uppgjörstímabil landbúnaðaraðila o.fl.
- Ekki komið til AlþingisS-92/2021· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 31. mar. 2021 – 28. apr. 2021· 8 umsagnir
Frumvarp til laga um íslenska alþjóðlega skipaskrá
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um íslenska alþjóðlega skipaskrá. Því er ætlað að stuðla að skráningu kaupskipa á Íslandi. Samhliða frumvarpi þessu er fyrirhugað að frumvarp til laga um skattlagningu kaupskipa verði lagt fram.
- Komið til AlþingisS-91/2021· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 26. mar. 2021 – 11. apr. 2021· 10 umsagnir
Eignarráð og nýting fasteigna (landamerki, óskipt sameign, forkaupsréttur, aðilar utan EES)
Fjallað er um afmörkun fasteigna innan og utan þéttbýlis, óskipta sameign á jörðum, forkaupsrétt ríkisins að landi til verndar náttúru og menningarminjum og skilyrði fyrir því að erlendir lögaðilar þurfi að afla leyfis dómsmálaráðherra til að kaupa fasteign.
- Komið til AlþingisS-87/2021· Annað· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. mar. 2021 – 9. apr. 2021· 10 umsagnir
Drög að tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2021-2024
Félags- og barnamálaráðherra kynnir til umsagnar drög að tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2021-2024
- Komið til AlþingisS-83/2021· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. mar. 2021 – 25. mar. 2021· 6 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála (réttarstaða brotaþola, fatlaðra og aðstandenda).
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála (réttarstaða brotaþola, fatlaðra og aðstandenda).
- Ekki komið til AlþingisS-82/2021· Drög að stefnu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. mar. 2021 – 2. apr. 2021· 12 umsagnir
Menningarstefna
Mennta- og menningarmálaráðherra undirbýr þingsályktun um menningarstefnu fram til 2030 þar sem fjallað er um fjölbreyttar hliðar lista og menningararfs. Stefnunni er ætlað að nýtast stjórnvöldum og Alþingi við frekari umræðu, stefnumótun á afmörkuðum sviðum og ákvarðanatöku auk þess að vera leiðarljós þeirra aðila sem standa að lista- og menningarstarfi um allt land.
- Komið til AlþingisS-80/2021· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. mar. 2021 – 23. mar. 2021· 3 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (nýsköpun, arður, yfirskattanefnd o.fl.).
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld m.a. með það að leiðarljósi að styrkja og efla skattalegt umhverfi nýsköpunarfyrirtækja, einstaklinga og annarra lögaðila auk nauðsynlegra breytinga á lögum á sviði skattamála.
- Komið til AlþingisS-73/2021· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. mar. 2021 – 19. mar. 2021· 8 umsagnir
Frumvarp til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð
Forsætisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til nýrra laga um Vísinda- og nýsköpunarráð. Lagðar eru til breytingar sem styrkja langtímastefnumótun í málaflokknum en standa vörð um styrkleika núverandi fyrirkomulags.
- Komið til AlþingisS-70/2021· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. mar. 2021 – 12. mar. 2021· 3 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/9140, með síðari breytingum (barnaníðsefni, atriði sem hafa áhrif á refsihæð, hatursorðæða, mismunun sökum fötlunar).
Frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, (barnaníðsefni, atriði sem hafa áhrif á refsihæð, hatursorðæða, mismunun sökum fötlunar).
- Komið til AlþingisS-69/2021· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. mar. 2021 – 10. mar. 2021· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (arður, yfirskattanefnd o.fl.).
Áformaðar eru breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld sem snúa m.a. að staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts af arði milli félaga, refsiramma almennra hegningarlaga, aukatekjum ríkissjóðs og yfirskattanefnd.
- Komið til AlþingisS-68/2021· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. mar. 2021 – 16. mar. 2021· 1 umsögn
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002 (innleiðing evrópskra gerða um fjármálafyrirtæki og undanþága frá ákvæðum um endurbótaáætlanir)
Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki.
- Komið til AlþingisS-66/2021· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. mar. 2021 – 12. mar. 2021· 9 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun (Ferðatryggingasjóður)
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun, nr. 95/2018 (Ferðatryggingasjóður). Einnig eru til samráðs drög að reglugerð um Ferðatryggingasjóð.
- Komið til AlþingisS-65/2021· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. mar. 2021 – 15. mar. 2021· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um ríkisábyrgðir og lánasýslu ríkisins
Áform um endurskoðun á lagaramma ríkisábyrgðir og endurlána til að tryggja skýrari umgjörð og markvissari framkvæmd þessara viðfangsefna. Jafnframt þarf að aðlaga núgildandi reglur að lögum um opinber fjármál.
- Ekki komið til AlþingisS-63/2021· Drög að frumvarpi til laga· Utanríkisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. feb. 2021 – 8. mar. 2021· 2 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á varnarmálalögum nr. 34/2008 (öryggissvæði o.fl.).
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á varnarmálalögum sem lúta að endurskilgreiningu marka núverandi öryggissvæðis á Gunnólfsvíkurfjalli.
- Ekki komið til AlþingisS-62/2021· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. feb. 2021 – 8. mar. 2021· 14 umsagnir
Drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum á sviði fiskveiðistjórnunar (viðurlög, tengdir aðilar o.fl.)
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ýmsum lögum á sviði fiskveiðistjórnar sem miða að því að styrkja eftirlit Fiskstofu.
- Komið til AlþingisS-61/2021· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. feb. 2021 – 8. mar. 2021· 1 umsögn
Kosningar til Alþingis
Með frumvarpinu er lagt til að unnt verði, með rafrænum hætti, að safna meðmælum með framboðum, senda beiðni úthlutun listabókstafs og senda ýmsar tilkynningar er varða framboð rafrænt. Þá er lagt til að unnt verði að gefa þeim sem verða í sóttkví eða einangrun vegna Covid 19 möguleika á að neyta kosningaréttar síns auk breytinga á heitum sveitarfélaga vegna sameiningar sveitarfélaga á Austurlandi.
- Komið til AlþingisS-57/2021· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. feb. 2021 – 8. mar. 2021· 3 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna (fjölgun mismununarþátta), nr. 85/2018
Lagt er til að við lög nr. 85/2018 um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna verði bætt við mismununarþáttunum trú, lífsskoðun, fötlun, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum og kyntjáningu.
- Komið til AlþingisS-56/2021· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. feb. 2021 – 4. mar. 2021· 6 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni (iðnaðarhampur)
Óskað er eftir umsögnum vegna draga að frumvarpi um breytinga á lögum nr. 65/1974 er snerta innflutning og ræktun iðnaðarhamps.
- Komið til AlþingisS-55/2021· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. feb. 2021 – 9. mar. 2021· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og menningarmála (öflun sakavottorðs)
Kveðið er á um breytingar á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og mennningarmálaráðuneytis og snúa þær allar að því að lagaákvæðum um öflun sakavottorðs við og eftir ráðningu.
- Komið til AlþingisS-54/2021· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. feb. 2021 – 9. mar. 2021· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um grunnskóla nr. 91/2008, og lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008, er varða fagráð eineltismála
Lagðar eru til breytingar á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, og lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008, er varða fagráð eineltismála.
- Komið til AlþingisS-53/2021· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. feb. 2021 – 5. mar. 2021· 1 umsögn
Drög að frumvarpi til breytinga á einkaleyfalögum, nr. 17/1991, (undanþága frá viðbótarvernd)
Með frumvarpinu er stefnt að lögfestingu undanþágu til framleiðslu og útflutnings lyfja, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, meðan svokallað viðbótarvottorð (SPC) er enn í gildi.
- Komið til AlþingisS-52/2021· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. feb. 2021 – 1. mar. 2021· 16 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 65/1974, um ávana- og fíkniefni (afglæpavæðing neysluskammta)
Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, um afglæpavæðingu neysluskammta.
- Komið til AlþingisS-51/2021· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. feb. 2021 – 3. mar. 2021· 14 umsagnir
Frumvarp til laga um áhafnir skipa
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um áhafnir skipa. Með frumvarpinu er gerð tillaga um ný heildarlög um áhafnir íslenskra skipa. Er markmiðið að einfalda löggjöfina um menntun og þjálfun, öryggisfræðslu, skírteini, lögskráningu, lágmarksmönnun, vinnu- og hvíldartíma, læknisvottorð, heilsu- og tryggingavernd, orlof, heimferðir, vinnuskilyrði o.fl.
- Komið til AlþingisS-46/2021· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. feb. 2021 – 4. mar. 2021· 1 umsögn
Brottfall laga um vísitölu byggingarkostnaðar
Í frumvarpinu felst að sérlög um vísitölu byggingarkostnaðar eru felld úr gildi enda eru lög um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð, nr. 163/2007, nægjanleg.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)