Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-46/2021 · Forsætisráðuneytið

Brottfall laga um vísitölu byggingarkostnaðar

Í frumvarpinu felst að sérlög um vísitölu byggingarkostnaðar eru felld úr gildi enda eru lög um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð, nr. 163/2007, nægjanleg.

Meginmarkmið með brottfalli laganna er að Hagstofu Íslands verði gert kleift að uppfæra aðferðir við mælingu og útreikning vísitölunnar í samræmi við alþjóðlega þróun aðferðafræðinnar. Hagstofa Íslands getur þá breytt aðferð hvað varðar virðisaukaskatt við mælingu vísitölunnar svo að hún verði í samræmi við framkvæmd annars staðar á Norðurlöndum en þar er grundvöllurinn á verðlagi byggingarkostnaðar mældur án virðisaukaskatts. Einnig verður hægt að gera endurbætur á mælingu launaliðar, með nýrri gagnalind, í byggingarvísitölu og þannig auka tengingu mælingarinnar við launaþróun í byggingariðnaði. Með því yrði komið til móts við notendur vísitölunnar sem kalla eftir meiri næmni við verðmælingu aðfanga í stað þess að vísitalan bregðist óreglulega við kjarasamningsbreytingum eða breytingum á virðisaukaskatti. Jafnframt eru lagðar til breytingar á lögum um gatnagerðargjald, nr. 153/2006, sem vísa í þau lög sem lagt er til að felld verði úr gildi, og gjaldstofn gatnagerðargjalds gerður skýrari og formfastari en nú er.

S-46/2021· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. feb. 2021 – 4. mar. 2021· 1 umsögn

Brottfall laga um vísitölu byggingarkostnaðar

Í frumvarpinu felst að sérlög um vísitölu byggingarkostnaðar eru felld úr gildi enda eru lög um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð, nr. 163/2007, nægjanleg.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-46/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 4. mars 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 605)
Niðurstöður samráðs (11. mars 2021)

Niðurstaða samráðs er sú að ekkert sé því til fyrirstöðu að fella niður sérlögin enda mun Hagstofa Íslands áfram reikna og birta vísitölu byggingarkostnaðar. Sjá nánar niðurstöður samráðs um áform um lagasetningu (mál nr. 17/2021 í samráðsgátt).

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-46/2021: Brottfall laga um vísitölu byggingarkostnaðar · Alviti