Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-56/2021 · Heilbrigðisráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni (iðnaðarhampur)

Óskað er eftir umsögnum vegna draga að frumvarpi um breytinga á lögum nr. 65/1974 er snerta innflutning og ræktun iðnaðarhamps.

Á þingmálaskrá heilbrigðisráðherra fyrir 151. löggjafarþing er áætlað að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, vegna vinnslu iðnaðarhamps. Heilbrigðisráðuneytið kynnir drög að frumvarpi um breytingu á lögum nr. 65/1974. Frumvarp þetta er samið af starfshóp sem heilbrigðisráðherra skipaði þann 12. júní 2020 og falið var að yfirfara lög nr. 65/1974 m.t.t. ræktunar og framleiðslu á iðnaðarhampi. Niðurstaða starfshópsins er að færa stjórnsýslu og verkefni í tengslum við málefnið, þ.e. innflutning á fræjum til landsins til ræktunar á iðnaðarhampi frá Lyfjastofnun til Matvælastofnunar. Í starfshópnum áttu sæti fulltrúi heilbrigðisráðuneytisins, fulltrúi atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, fulltrúi Lyfjastofnunar og fulltrúi Matvælastofnunar.   Frumvarpið fjallar ekki um Cannabidiol (CBD olíu) en þau mál eru til skoðunar hjá stjórnvöldum.

S-56/2021· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. feb. 2021 – 4. mar. 2021· 6 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni (iðnaðarhampur)

Óskað er eftir umsögnum vegna draga að frumvarpi um breytinga á lögum nr. 65/1974 er snerta innflutning og ræktun iðnaðarhamps.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-56/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 4. mars 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 644)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. maí 2021)

Frumvarpið hefur verið lagt fram á Alþingi - sjá hlekk:

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
  • #1Lyfjafræðingafélag Íslands

    Góðan dag, Hér í viðhengi er umsögn LFÍ. Kv Inga Lilý Formaður Lyfjafræðingafélag Íslands

  • #2Þórunn Jónsdóttir

    Sjá viðhengi

  • #3Sigurður Hólmar Jóhannesson

    Umsögn Hampfélagsins og SSFM er í viðhengi

  • #4Ingvar Örn Bergsson
    Mig langar að hvetja til sniðugra breytinga um að hækka thc magn allaveganna upp 3-5% það myndi gera mikið fyrir íslenskann efnahag, fólk gæti ræktað stórar plöntur á einu sumri í garðinum hjá sér því THC magnið bíður uppá miklu fjölbreyttari yrki , og THC þarf að endurskilgreina sem fyrst í lögum sem náttúrulegt efnasamband sem líkaminn býr til sjálfur, THC er að finna í brjóstamjólk, súkkulaði, kúmenfræjum bara heimska að halda því fram að þetta sé eitthvað sem veldur "ofskynjunum" þetta er náttúrulegt efnasamband sem líkaminn framleiðir sjálfur meðal annars,ábyrgðin er ykkar þingmenn að tak… Lesa alla

    Mig langar að hvetja til sniðugra breytinga um að hækka thc magn allaveganna upp 3-5% það myndi gera mikið fyrir íslenskann efnahag, fólk gæti ræktað stórar plöntur á einu sumri í garðinum hjá sér því THC magnið bíður uppá miklu fjölbreyttari yrki , og THC þarf að endurskilgreina sem fyrst í lögum sem náttúrulegt efnasamband sem líkaminn býr til sjálfur, THC er að finna í brjóstamjólk, súkkulaði, kúmenfræjum bara heimska að halda því fram að þetta sé eitthvað sem veldur "ofskynjunum" þetta er náttúrulegt efnasamband sem líkaminn framleiðir sjálfur meðal annars,ábyrgðin er ykkar þingmenn að taka hausinn uppúr sandinum og bjóðafólki á að rækta sér sjálft lækningarjurtina sem cannabis er , að horfa framhjá öllum nýjustu læknisvísindum sem hafa komið fram í sjálfstæðum kanadískum og amerískum rannsóknum og, frá stærstu háskólum heims ,oxford, harvard, munchen og miklu fleiri hafa sýnt fram á jákvæð heilsuáhrif af cannabisnotkun og(enginn skaðleg áhrif á heilsu ef cannabis er notað ræktað frá náttúrunni og notað án tóbaks), hefur jákvæð áhrif í baráttu við allar tegundir krabbameins, cannabis hefur reynst best af öllu sem þekkist í dag að hafa jákvæð áhrif gegn alkahólisma eitthvað sem íslendingar þurfa að horfast í augu við, THC virkar á cb2 skynjarann sem er skynjarinn í heilanum sem tengir milli minninga , hvetur til víðsýnni og náttúrulegri hugsanna, YKKUR BER SKYLDA AÐ HJÁLPA FÓLKI HJÁLPA SÉR SJÁLFU, BURT MEÐ ALLAR GAMLAR MÝTUR OG HORFUMT Í AUGU VIÐ RAUNVERULEIKANN ÞAÐ ER YKKAR STARF NÚNA ÞINGMENN !!!!! því stærri og betri yrki sem eru leyfð því auðveldara verður hægt að koma upp lífeldsneyta markaði, hemp-ethanol 100% hreint náttúrulegt bensín sem mengar ekki eins og bensínið , hreinn bruni engin óæskileg aukaefni, mbkv

  • #5Samtök iðnaðarins

    Meðfylgjandi er umsögn Samtaka iðnaðarins um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni (iðnaðarhampur).

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-56/2021: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni (iðnaðarhampur) · Alviti