Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 703. mál

Vísinda- og nýsköpunarráð

LagafrumvarpDagaði uppiFjárreiður ríkisinsMenntamál

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 13. apr. 2021

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 151. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að efla vísindastarf, tækniþróun og nýsköpun hér á landi svo að styrkja megi íslenskt þekkingarsamfélag og auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs með því að efla stefnumótun og auka samhæfingu á sviði vísinda, nýsköpunar og tækni.

Lagt fram af Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra (Vg), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
7. apríl 2021
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
1 ræða · 13 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 24. jún. 2021

Markmiðið

Að efla vísindastarf, tækniþróun og nýsköpun hér á landi svo að styrkja megi íslenskt þekkingarsamfélag og auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs með því að efla stefnumótun og auka samhæfingu á sviði vísinda, nýsköpunar og tækni.

Hvað breytist

Með frumvarpinu er lagaumhverfi Vísinda- og tækniráðs endurskoðað. Veigamesta breytingin á núverandi fyrirkomulagi sem lögð er til er að aðskilja ráðgefandi og stefnumótandi hlutverks ráðsins svo að annars vegar sé starfandi ráðherranefnd um vísindi og nýsköpun og hins vegar sjálfstætt og faglegt Vísinda- og nýsköpunarráð sem sé ráðgefandi. Þá er lagt til að innan ráðuneytisins starfi sjálfstæðir sérfræðingar á sviði greiningar, mats og úttekta á sviði vísinda, nýsköpunar og tækni sem styðji starfsemi beggja og styrki þannig grunn stefnumótunar. Gert er ráð fyrir að nafni ráðsins verði breytt í Vísinda- og nýsköpunarráð.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um Vísinda- og tækniráð, nr. 2/2003. Við gildistöku laganna verða jafnframt breytingar á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3/2003, lögum um opinberan stuðning við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun, nr. 75/2007, lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011, lögum um Landsbókasafn Íslands, nr. 142/2011, og lögum um vandaða starfshætti í vísindum, nr. 70/2019.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að árleg útgjöld ríkissjóðs aukist um u.þ.b. 20 milljónir kr.

Meira úr samantektinni

Breytt lagaumhverfi Vísinda- og tækniráðs. Tillaga verkefnishóps. Forsætisráðuneytið, ágúst 2020.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Bjarkey Gunnarsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 29. apr. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
5 aðilar
Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins, Rannís - Rannsóknamiðstöð Íslands, Háskóli Íslands, Alþýðusamband Íslands, Samtök frumkvöðla og hugvitsmanna · allar umsagnir
Umræða í þingsal
13 mín · 1 ræða
1 þingmaður tók til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að árleg útgjöld ríkissjóðs aukist um u.þ.b. 20 milljónir kr.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-73/2021· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. mar. 2021 – 19. mar. 2021· 8 umsagnir

Frumvarp til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð

Forsætisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til nýrra laga um Vísinda- og nýsköpunarráð. Lagðar eru til breytingar sem styrkja langtímastefnumótun í málaflokknum en standa vörð um styrkleika núverandi fyrirkomulags.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-73/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 19. mars 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (11. júlí 2024)

Alls bárust átta umsagnir við málið og höfðu þær áhrif á frekari vinnslu frumvarpsins. Það var lagt fram á 151. löggjafarþingi og gekk til allsherjarnefndar en varð ekki útrætt á því þingi. Umsögnunum var haldið til haga m.a. frá Háskóla Íslands og Rannís um markáætlun og einföldun fyrirkomulags hennar. Veigamestu athugasemdir vörðuðu áhyggjur af þeirri breytingu sem felst í því að aðgreina ráðherranefnd um vísindi og nýsköpun frá Vísinda- og nýsköpunarráði og því að mögulega tapaðist þar mikilvægt samráð við hagsmunaaðila.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)
  • #1Landsvirkjun

    Meðfylgjandi er umsögn Landsvirkjunar.

  • #2Valdimar Össurarson
    Eftirfarandi er umsögn Samtaka frumkvöðla og hugvitsfólks um frumvarp að lögum um Vísinda- og nýsköpunarráð. Vísað er til umsagnar SFH frá 30.08.2020 um skýrslu sem liggur til grundvallar þessu frumvarpi. Þar gerði SFH alvarlegar athugasemdir við alla málsmeðferðina, einkum hina augljósu sniðgöngu á hagsmunasamtökum frumkvöðla og hugvitsfólks í öllum aðdraganda þessa frumvarps. SFH eru, ásamt KVENN, einu hagsmunasamtök einstaklinga sem eru að reyna að hasla sér völl með nýsköpunarverkefni, í samræmi við ákall stjórnvalda og með hagsmuni samfélagsins að leiðarljósi. Samtökin starfa á grund… Lesa alla

    Eftirfarandi er umsögn Samtaka frumkvöðla og hugvitsfólks um frumvarp að lögum um Vísinda- og nýsköpunarráð. Vísað er til umsagnar SFH frá 30.08.2020 um skýrslu sem liggur til grundvallar þessu frumvarpi. Þar gerði SFH alvarlegar athugasemdir við alla málsmeðferðina, einkum hina augljósu sniðgöngu á hagsmunasamtökum frumkvöðla og hugvitsfólks í öllum aðdraganda þessa frumvarps. SFH eru, ásamt KVENN, einu hagsmunasamtök einstaklinga sem eru að reyna að hasla sér völl með nýsköpunarverkefni, í samræmi við ákall stjórnvalda og með hagsmuni samfélagsins að leiðarljósi. Samtökin starfa á grundvelli sjálfboðastarfs og hafa á félagaskrá fleiri en 300 félaga. Þrátt fyrir þetta, og þrátt fyrir hástemmdar yfirlýsingar ráðamanna um mikilvægi starfa hugvitsfólks, hefur SFH og KVENN markvisst verið haldið utan allrar ákvarðanatöku og aðkomu að málefnum nýsköpunar. Gríðarlegum upphæðum af almannafé er varið á hverju ári til nýsköpunarmála. Hefur stórum hagsmunaaðilum tekist að skapa sér góða aðstöðu til stjórnunar og tryggja að þeir einir sitji að ákvarðanatöku. Samtök hugvitsmanna hafa ítrekað gert athugasemdir til stjórnvalda, bæði ráðherra og Alþingi, vegna augljósrar sniðgöngu á samtökunum við skipun í Vísinda- og tækniráð; sem og í aðrar stefnumarkandi nefndir og ráð á sviði nýsköpunar. Sumir þingmenn hafa tekið undir þessar athugasemdir og talið það stjórnkerfinu til vansa að ekki heyrist raddir þeirra sem eru að hefja nýsköpun og vita gleggst um annmarka nýsköpunarumhverfisins á frumstigum. Forsætisráðherra er meðal þeirra sem fengið hafa skýrslur og athugasemdir SFH, og því veldur það sérstökum vonbrigðum að sjá þetta meingallaða lagafrumvarp lagt fram í hans nafni. Með þessu frumvarpi óbreyttu er fyrirhugað að sniðganga hugvitsmenn og samtök þeirra enn frekar en verið hefur. Hér er lagður til sérkennilegur valdaturn, þar sem í efsta laginu er nefnd fáeinna ráðherra. Í næsta lagi er „vel skipað“ ráð 9 manna „með yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar“. Til að tryggja að „vel“ sé skipað í ráðið er tilnefnt í það af þriðja lagi turnsins; þriggja manna nefnd háskólafólks, Samtaka iðnaðarins og fulltrúa ráðherra. Allir þessir aðilar hafa á einn eða annan hátt staðið að sniðgöngu SFH og KVENN, eins og nærtæk dæmi sanna. Því benda allar líkur til þess að við skipan í hið nýja „vísinda- og nýsköpunarráð“ muni verða gengið framhjá samtökum frumkvöðla og hugvitsfólks, líkt og verið hefur um hið eldra vt-ráð. Samkvæmt frumvarpinu stendur ekki til að hlusta á raddir hugvitsfólks fremur en endranær. Það fólk fær engu ráðið um sitt starfssvið. Því er ekki tryggð aðkoma að þessum valdaturni Samtaka iðnaðarins og háskólanna. Í þessu efni er nauðsynlegt að minna á nýlega skýrslu Transparency International; alþjóðlegrar nefndar sem fylgist með spillingu í stjórnkerfum ríkja heims. Samkvæmt skýrslunni hefur spilling aukist á Íslandi, og ástandið hér er langtum verra en á hinum Norðurlöndunum. Ráðamenn lýstu því yfir við útkomu skýrslunnar að nauðsynlegt væri að sporna við spillingu eftir fremsta megni, og að stjórnarathafnir myndu miða að því. Eins og áður sagði renna gríðarlegir fjármunir af almannafé gegnum stjórnkerfi nýsköpunar. Við þær aðstæður er þörfin mest til að vera á verði. Þar þurfa stjórnvöld því að vanda einkar vel til verka; tryggja gegnsæi og tryggja víðtæka aðkomu allra sem máli skipta, ekki síst opinna og frjálsra félagasamtaka sem vinna á grunni sjálfboðastarfs. Með þessum orðum er ekkert fullyrt um spillingu í íslensku nýsköpunarumhverfi. Hinsvegar vekur það ugg þegar valdi í mótun meginstefnu nýsköpunar og þar með farvegum fjármagns er þjappað þannig saman að það er í raun komið í hendur þeirra þriggja aðila sem sitja í tilnefningarnefnd, eins og lagt er til í frumvarpinu. Lýðræðislegum samtökum frumkvöðlanna sjálfra er haldið frá þeirri nefnd og engar ráðstafanir gerðar til að tryggja þeim aðkomu að setu í vísinda- og nýsköpunarráði. Samtök frumkvöðla og hugvitsfólks gera kröfu til þess að lagafrumvarpinu verði breytt á þann hátt að tryggð verði seta frumkvöðla og hugvitsfólks í því ráði sem fæst við stefnumótun í málefnum nýsköpunar. SFH og KVENN reka umfangsmikið tengslanet og fjölbreytt starf meðal hugvitsfólks og frumkvöðla á fyrstu stigum nýsköpunar. Engum er betur kunnugt um hina fjölmörgu galla sem hindra nýsköpun á frumstigum og verða til þess að framlag hugvitsmanna nýtist ekki til verðmætasköpunar. Samtökin eru aðilar að alþjóðasamtökum á sínu sviði og eru nú að byggja upp net norrænna hugvitsfélaga. Þau hafa því hin alþjóðlegu tengsl sem stjórnvöld kalla eftir. SFH vænta þess að þetta frumvarp verði ekki lagt fram fyrr en bætt hefur verið úr ofangreindum ágöllum, og munu leita leiða til að koma í veg fyrir samþykkt þess í óbreyttu formi. Valdimar Össurarson, formaður Samtaka frumkvöðla og hugvitsmanna

  • #3Háskóli Íslands
    Umsögn Háskóla Íslands um: Frumvarp til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð 19. mars 2021 Óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð sem ætlað er að koma í stað laga um Vísinda- og tækniráð frá árinu 2003. Eins og fram kemur í umsókn Háskóla Íslands um tillögu verkefnishóps um breytingar á lagaumhverfi Vísinda- og tækniráðs er heildarendurskoðun laganna orðin tímabær. Margt er jákvætt sem fram kemur í frumvarpinu. Háskóli Íslands telur til dæmis mjög jákvætt að markmið frumvarpsins sé að styrkja langtímastefnumótun í vísinda- og nýsköpunarmálum, að efla sjálf… Lesa alla

    Umsögn Háskóla Íslands um: Frumvarp til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð 19. mars 2021 Óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um Vísinda- og nýsköpunarráð sem ætlað er að koma í stað laga um Vísinda- og tækniráð frá árinu 2003. Eins og fram kemur í umsókn Háskóla Íslands um tillögu verkefnishóps um breytingar á lagaumhverfi Vísinda- og tækniráðs er heildarendurskoðun laganna orðin tímabær. Margt er jákvætt sem fram kemur í frumvarpinu. Háskóli Íslands telur til dæmis mjög jákvætt að markmið frumvarpsins sé að styrkja langtímastefnumótun í vísinda- og nýsköpunarmálum, að efla sjálfstæða gagnagreiningu og eftirfylgni og að auka samstarf og samhæfingu ráðuneyta. Einnig er jákvætt að stefnt skuli að einfaldara fyrirkomulagi og betri upplýsingagjöf til nefndarfólks. Háskóli Íslands fagnaði tillögum verkefnishópsins um einfaldara fyrirkomulag markáætlana, m.a. í því skyni að auðveldara yrði að bregðast hratt við aðsteðjandi vanda með nýjum markáætlunum. Þær tillögur er ekki að finna í frumvarpinu. Brýnt er að fylgjast vel með því hvort nýtt fyrirkomulag leysi þann vanda sem bent var á og laut einkum að of litlum sveigjanleika við framkvæmd markáætlana. Í tillögum verkefnishópsins kom fram að setja skyldi á fót skrifstofu vísinda- og nýsköpunarmála. Það er miður að sú tillaga hafi ekki ratað í frumvarpið, en í greinargerðinni kemur fram að gert sé ráð fyrir sérstakri einingu innan ráðuneytisins með sérfræðingum á sviði greiningar, mats og úttekta á sviði vísinda, nýsköpunar og tækni. Slík eining mun væntanlega þjóna hlutverki áðurnefndrar skrifstofu. Í frumvarpinu er lögð áhersla á að rjúfa þau beinu tengsl sem nú eru á milli annars vegar ráðherra og hins vegar stjórnenda og sérfræðinga úr háskóla- og vísindaumhverfinu og atvinnulífi. Fyrirhugað er að ná þessu fram með lögfestingu sérstakrar ráðherranefndar um vísindi og nýsköpun, þar sem eingöngu sitja ráðherrar, og með skipan níu manna ráðgefandi Vísinda- og nýsköpunarráðs sem hittir ráðherranefndina einungis einu sinni til tvisvar á ári. Þetta nýja ráð yrði skipað fulltrúum samkvæmt tillögu sérstakrar tilnefningarnefndar á vegum forsætisráðherra. Háskólinn bendir á mikilvægi þess að gerð verði rík krafa um sérfræðiþekkingu til þeirra sem sitja í því ráði. Auk þess telur Háskóli Íslands að þessi aðskilnaður sé varhugaverður. Á það var bent í umsögn Háskólans um tillögur verkefnishópsins og er það hér með ítrekað. Með framangreindum lögum um Vísinda- og tækniráð, sem sett voru árið 2003, var markmiðið að færa stefnumótun á sviði háskóla, vísinda og nýsköpunar á efsta stig stjórnsýslunnar. Markmiðið var jafnframt að styrkja með formlegum hætti samtal stjórnvalda við háskóla- og vísindasamfélagið auk atvinnulífs. Þetta var gert að erlendri fyrirmynd en víða um heim var þróunin í þessa átt. Ekki síst vegna nýrrar þekkingar um mikilvægi menntunar, vísinda og nýsköpunar og hvernig unnt er að beita málaflokkunum til samfélagslegrar eflingar, svo sem í tengslum við efnahagslegar niðursveiflur. Sem dæmi má nefna að finnskt efnahagslíf varð fyrir afar neikvæðum áhrifum í kjölfar hruns Sovétríkjanna 1991. Finnar tókust á við það með því að þróa virkt formlegt samráð stjórnsýslunnar og vísindasamfélagsins um stefnumótun og aðgerðaáætlun til að takast á við aðsteðjandi vanda. Upprunaleg lög um Vísinda- og tækniráð byggja einmitt á fyrirmynd frá Finnlandi. Finnar hafa enn í dag svipað kerfi, enda hefur það reynst þeim vel. Núverandi tillaga sem er til umsagnar hér á landi gengur í berhögg við þessa þróun. Það er mat Háskóla Íslands að fyrirhuguð ráðherranefnd ásamt vísinda- og nýsköpunarráði verði verr í stakk búin en núverandi Vísinda- og tækniráð til að annast sannfærandi stefnumótun á sviði háskóla-, vísinda- og nýsköpunarmála. Háskólinn telur mikilvægt að ráðherrar og vísindasamfélagið, ásamt atvinnulífi, starfi áfram á sameiginlegum vettvangi til að takast á við þær samfélagslegu áskoranir sem við stöndum frammi fyrir. Það þarf að efla þetta samstarf fremur en að veikja það og ekki síður að gera það mun sýnilegra en nú er. Virkur samráðsvettvangur af þessu tagi er nauðsynlegur til að tengja ákvarðanir um eflingu háskólamenntunar, rannsókna og nýsköpunar beint við aðrar meginákvarðanir stjórnvalda um samkeppnishæfni og framtíðaruppbyggingu samfélags sem eftirsóknarvert er að búa í. Í þessu sambandi er rétt að benda á að í skýrslu starfshópsins kemur fram að algengast sé (í 68% tilvika samkvæmt úttekt OECD) að í ráðum af þessu tagi á alþjóðlegum vettvangi sitji ráðherrar, fulltrúar háskólasamfélagsins, rannsóknastofnana og atvinnulífs saman, þ.e. rétt eins og Vísinda- og tækniráð er nú skipað (bls. 53).

  • #4Alþýðusamband Íslands

    Meðfylgjandi er umsögn Alþýðusambands Íslands

  • #5Verkfræðingafélag Íslands

    Meðfylgjandi er umsögn Verkfræðingafélags Íslands.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    1 ræða · 13 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 29. apríl 2021
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1182Stjórnarfrumvarp7. apr. 2021Katrín JakobsdóttirLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur13. apríl 2021 kl. 20:37
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ allsherjar- og menntamálanefnd13. apríl 2021 kl. 20:37
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

1 ræða · 13 mín
  • 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 13 mín

Umsagnir og erindi

5 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 15. apr. 2021, frestur 29. apr. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarinsumsögnOpna PDF
Rannís - Rannsóknamiðstöð ÍslandsumsögnOpna PDF
Háskóli ÍslandsumsögnOpna PDF
Alþýðusamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtök frumkvöðla og hugvitsmannaumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.