Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-87/2021 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Drög að tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2021-2024

Félags- og barnamálaráðherra kynnir til umsagnar drög að tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2021-2024

Í framkvæmdaáætlun um málefni innflytjenda eru kynntar aðgerðir sem endurspegla meginmarkmið laga um málefni innflytjenda nr. 116/2012 um að stuðla að samfélagi þar sem allir geta verið virkir þátttakendur óháð þjóðerni og uppruna. Í 7. gr. laganna er kveðið á um að leggja skuli fram tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda til fjögurra ára í senn að fenginni umsögn annarra ráðuneyta, stofnana, Fjölmenningarseturs og innflytjendaráðs. Í því skyni verði lögð áhersla á fimm stoðir, þ.e. samfélagið, fjölskyldan, menntun, vinnumarkaður og flóttafólk.

S-87/2021· Annað· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. mar. 2021 – 9. apr. 2021· 10 umsagnir

Drög að tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2021-2024

Félags- og barnamálaráðherra kynnir til umsagnar drög að tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2021-2024

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-87/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 9. apríl 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 10 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 592)
Niðurstöður samráðs (15. september 2021)

Alls bárust umsagnir frá þrettán aðilum. Breytingar voru gerðar á sautján aðgerðum með hliðsjón af umsögnunum, sbr. meðfylgjandi niðurstöðuskjal.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (10)
  • #1Christina Anna Milcher
    Innflytjendur frá Norðurlöndum / aðrir erlendir ríkisborgarar sem hefur átt lögheimili í Íslandi í þrjú/fimm ár hefur kosningarrétt við kosningar til sveitarstjórnar en ekki við kosningar til Alþingis. (2. gr. Lög um kosningar til sveitarstjórna 1998 nr. 5 6. mars; 1. gr. Lög um kosningar til Alþingis 2000 nr. 24 16. maí ). Bíðtíma er mikið styttarar í hínum norðurlöndum (Noregi 3 ár handa öllum og Damörk engin bíðtíma handa EU og norðurlöndum og 3 ár handa aðrir) . Dæmi er líka til af innfýtjendur með lögheimili (permanent residency) með kosningarrét í þingkosningar, til dæmis í Nýja Sjála… Lesa alla

    Innflytjendur frá Norðurlöndum / aðrir erlendir ríkisborgarar sem hefur átt lögheimili í Íslandi í þrjú/fimm ár hefur kosningarrétt við kosningar til sveitarstjórnar en ekki við kosningar til Alþingis. (2. gr. Lög um kosningar til sveitarstjórna 1998 nr. 5 6. mars; 1. gr. Lög um kosningar til Alþingis 2000 nr. 24 16. maí ). Bíðtíma er mikið styttarar í hínum norðurlöndum (Noregi 3 ár handa öllum og Damörk engin bíðtíma handa EU og norðurlöndum og 3 ár handa aðrir) . Dæmi er líka til af innfýtjendur með lögheimili (permanent residency) með kosningarrét í þingkosningar, til dæmis í Nýja Sjáland. Innflytjendur með lögheimili hér á landi eru með sömu skyldur, meðal annars með skattagreiðlum og þáttöku í lifeyrissjóðum. Ákvarðanir sem teknar eru í sveitastjórn og Alþingi snerta þau jafnt sem aðra í samfélaginu. Lýðræðislega þáttaka er mikilvægasti þáttaka í samfélagi. Lagt er til að styttist biðtíma í við kosningar til sveitarstjórnar í 3 ár handa öllum innflýtjendar. Lagt er líka til að stofna vinnuhópa að skoða möguleika að tengja kosningarrétt til Alþingis við lögheimili rétt eins og við sveitarstjórnakosningar.

  • #2Landssamtökin Þroskahjálp

    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar má nálgast í viðhengi.

  • #3Saga Stephensen

    Umsögn frá fjölmenningarteymi skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur er í viðhengi.

  • #4Sveitarfélagið Árborg

    Góðan daginn Meðfylgjandi er umsögn um drög að tillögu til þingsálytkunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2021-2024. Bestu kveðjur Anna Ingadóttir deildarstjóri skólaþjónustu Sveitarfélaginu Árborg

  • #5Íslandsdeild Amnesty International
    Íslandsdeild Amnesty International fagnar framkomnum drögum að framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2021-2024. Ljóst er að drögin að áætluninni eru metnaðarfull og miða vel að samfélagi þar sem allir geta verið virkir þátttakendur, óháð þjóðerni eða uppruna. Íslandsdeild Amnesty International bendir á mikilvægi mannréttindamiðaðrar nálgunar við stefnumótun um málefni innflytjenda. Miklu máli skiptir að lögð sé rík áhersla á mannréttindi innflytjenda í framkvæmdaáætluninni, bæði varðandi einstaka liði hennar sem og við framkvæmd hennar. Deildin óskar eftir að koma efti… Lesa alla

    Íslandsdeild Amnesty International fagnar framkomnum drögum að framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2021-2024. Ljóst er að drögin að áætluninni eru metnaðarfull og miða vel að samfélagi þar sem allir geta verið virkir þátttakendur, óháð þjóðerni eða uppruna. Íslandsdeild Amnesty International bendir á mikilvægi mannréttindamiðaðrar nálgunar við stefnumótun um málefni innflytjenda. Miklu máli skiptir að lögð sé rík áhersla á mannréttindi innflytjenda í framkvæmdaáætluninni, bæði varðandi einstaka liði hennar sem og við framkvæmd hennar. Deildin óskar eftir að koma eftirfarandi athugasemdum um einstaka liði framkvæmdaáætlunarinnar á framfæri: A. Samfélagið A.4. Íslandsdeild Amnesty International fagnar áherslu á fræðslu í menningarfærni og -næmni til starfsfólks ríkis og sveitarfélaga en telur jafnframt mikilvægt að starfsfólk fái ítarlega fræðslu um mannréttindi og stöðu mannréttinda í þeim löndum sem innflytjendur og flóttafólk kemur helst frá. Þetta mun ekki einungis veita starfsfólki innsýn í reynsluheim rétthafa heldur einnig skerpa á þekkingu á alþjóðlegum mannréttindum, mannréttindakerfum og -stöðlum. A.6. Íslandsdeild Amnesty International fagnar enn fremur áherslu á aðgengi að fræðslu og upplýsingum um íslenskt samfélag fyrir innflytjendur og flóttafólk og hvetur til þess að fræðsla um stöðu mannréttinda hér á landi ásamt fræðslu um réttindi og skyldur rétthafa í íslensku samfélagi verði virkur þáttur í samfélagsfræðslunni. B. Fjölskyldan B.1. Íslandsdeild Amnesty International telur mikilvægt að kynningarefni til barna og foreldra um íþrótta- og æskulýðsstarf verði unnið með mannréttindamiðaðri nálgun og að réttindi barna um þátttöku í íþrótta- og æskulýðsstarfi samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna verði kynnt. B.6. Mikilvægt er að í fræðslu fyrir þolendur og gerendur ofbeldis sé lögð áhersla á mannréttindi og skyldur. Einnig er nauðsynlegt að þjónustu- og viðbragðsaðilar fái ítarlega fræðslu um mannréttindi og stöðu mannréttinda í þeim löndum sem innflytjendur og flóttafólk kemur helst frá. Þetta mun ekki einungis veita starfsfólki innsýn í reynsluheim rétthafa heldur einnig skerpa á þekkingu á alþjóðlegum mannréttindum, mannréttindakerfum og -stöðlum. E. Flóttafólk E.4. Íslandsdeild Amnesty International fagnar því að sérstök áhersla verði lögð á fræðslu til flóttafólks og fagaðila sem koma að þjónustu við flóttafólk en leggur jafnframt áherslu á mikilvægi fræðslu um mannréttindi til flóttafólks sérstaklega en einnig fagfólks sem kemur að þjónustu við þennan viðkvæma hóp. E.5.& E.6. Deildin fagnar því að bæta skuli verklag vegna móttöku fylgdarlausra barna og lögð sé áhersla á að fylgdarlaus börn og ungmenni sem hafa fengið vernd fái stuðning við að taka sín fyrstu skref hér á landi. Íslandsdeild Amnesty International ítrekar mikilvægi þess að réttindi barna séu höfð að leiðarljósi við bætt verklag og aukinn stuðning, í samræmi við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og önnur íslensk lög, ásamt mannréttindasamningum sem Ísland hefur skuldbundið sig til að framfylgja. E.7. Íslandsdeild Amnesty International fagnar áætlunum um aukna þjónustu við flóttafólk á vinnumarkaði og leggur áherslu á að fræðsla um réttindi og skyldur á vinnumarkaði er nauðsynlegur hluti af farsælli atvinnuþátttöku flóttafólks. Það er því mikilvægt að hafa mannréttindi og vinnuréttindi sérstaklega að leiðarljósi. Virðingarfyllst, Anna Lúðvíksdóttir Framkævmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-87/2021: Drög að tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2021-2024 · Alviti