Drög að frumvarpi til laga um greiðslur vegna umönnunar langveikra og fatlaðra barna.
Félagsmálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um greiðslur vegna umönnunar langveikra og fatlaðra barna. Umsagnarfrestur er til 4. júní nk.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-117/2021)
- Umsagnarfrestur hefst · til 4. júní 2021
- Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 591)
Niðurstöður samráðs (6. desember 2021)
Drög að frumvarpinu voru birt til umsagnar frá 21. maí til 4. júní 2021. Alls bárust átta umsagnir. Gerðar voru breytingar á frumvarpinu til þess að skýra efni frumvarpsins betur í nokkrum tilvikum þar sem talin var þörf á því með tilliti til tiltekinna athugasemda sem bárust. Frumvarpið er á þingmálaskrá 152. löggjafarþings 2021-2022.
- Drög að frumvarpi til laga um greiðslur vegna umönnunar langveikra og fatlaðra barna.
- Skýrsla starfshóps
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)
- #1Hulda Björk Svansdóttir
Sem foreldri langveiks barns sýnist mér verið að flækja málin enn frekar fyrir okkur foreldra. Það eru þá fleiri flokkar sem þarf að sækja um eða hvað? Einnig vantar algerlega ákvæði þarna inn að mínu mati um að afnema þá kröfu að foreldrar þurfi að sanna á nokkurra ára fresti að börnin þeirra séu enn með ólæknandi sjúkdóma til dæmis, það er algerlega ótækt. Ég get ekki séð að þetta frumvarp sé til bóta fyrir langveik börn og fjölskyldur þeirra. Það mætti líka setja inn ákvæði um að foreldrar þyrftu ekki að standa í þessu ferli sem umsóknir um sjálfsögð réttindi eru. Foreldrar hafa nóg á sinni… Lesa alla
Sem foreldri langveiks barns sýnist mér verið að flækja málin enn frekar fyrir okkur foreldra. Það eru þá fleiri flokkar sem þarf að sækja um eða hvað? Einnig vantar algerlega ákvæði þarna inn að mínu mati um að afnema þá kröfu að foreldrar þurfi að sanna á nokkurra ára fresti að börnin þeirra séu enn með ólæknandi sjúkdóma til dæmis, það er algerlega ótækt. Ég get ekki séð að þetta frumvarp sé til bóta fyrir langveik börn og fjölskyldur þeirra. Það mætti líka setja inn ákvæði um að foreldrar þyrftu ekki að standa í þessu ferli sem umsóknir um sjálfsögð réttindi eru. Foreldrar hafa nóg á sinni könnu og þurfa einmitt aðstoð við svona réttindamál. Foreldrar ættu ekki að þurfa að sækja um svona hluti, allar umsóknir er varða réttindi og umönnun barnsins ætti heilbrigðiskerfið að sjá um, annaðhvort læknir barnsins eða eins og áður sagði Greiningarstöðinni. Með vinsemd og virðingu Hulda Björk
- #2Landssamtökin Þroskahjálp
Sjá viðhengi
- #3Umhyggja - félag langveikra barna
Meðfylgjandi er umsögn frá Umhyggju - félagi langveikra barna vegna frumvarps til laga um greiðslur vegna umönnunar langveikra og fatlaðra barna.
- #4Alþýðusamband Íslands
Meðfylgjandi er umsögn ASÍ
- #5Barnaheill - Save the Children á Íslandi
Umsögn Barnaheilla - Save the Children á Íslandi um drög að frumvarpi til laga um greiðslur vegna umönnunar langveikra barna og fatlaðra barna Barnaheill – Save the Children á Íslandi þakka fyrir boð um að senda inn athugasemdir við ofangreint mál. Samtökin fagna því að til stendur að festa í lög heimild til umönnunargreiðslna til foreldra langveikra og fatlaðra barna og styðja við að málið nái fram að ganga. Það hefur verið mikil þörf á að jafna rétt barna til umönnunar foreldra sinna þar sem réttur foreldra til slíkra greiðsla hefur verið bundinn við rétt þeirra til greiðslna hjá stétt… Lesa alla
Umsögn Barnaheilla - Save the Children á Íslandi um drög að frumvarpi til laga um greiðslur vegna umönnunar langveikra barna og fatlaðra barna Barnaheill – Save the Children á Íslandi þakka fyrir boð um að senda inn athugasemdir við ofangreint mál. Samtökin fagna því að til stendur að festa í lög heimild til umönnunargreiðslna til foreldra langveikra og fatlaðra barna og styðja við að málið nái fram að ganga. Það hefur verið mikil þörf á að jafna rétt barna til umönnunar foreldra sinna þar sem réttur foreldra til slíkra greiðsla hefur verið bundinn við rétt þeirra til greiðslna hjá stéttarfélögum. Því er málið kærkomið og tímabært. Barnaheill hvetja til þess að framkvæmd á lögunum verði höfð einföld í sniðum þannig að foreldrum reynist auðvelt að sækja um greiðslur og fái upplýsingar sem þau þurfa að frumkvæði stjórnvalda. Barnaheill hafa Barnasáttmálann að leiðarljósi í öllu sínu starfi og leggja áherslu á rétt barna til jafnra tækifæra og rétt þeirra til að vera ekki mismunað, m.a. á grundvelli stöðu foreldra.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.