Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-66/2021 · Atvinnuvegaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun (Ferðatryggingasjóður)

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun, nr. 95/2018 (Ferðatryggingasjóður). Einnig eru til samráðs drög að reglugerð um Ferðatryggingasjóð.

Með frumvarpinu er lagt til að komið verði á fót nýju tryggingakerfi fyrir pakkaferðir í stað gildandi tryggingakerfis. Hið nýja kerfi felst í stofnun Ferðatryggingasjóðs sem er sameiginlegur tryggingasjóður þeirra fyrirtækja sem selja pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun og eru vegna þess tryggingaskyldir. Í frumvarpinu er því gert ráð fyrir nýjum V. kafla í lög um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun sem felur í sér lagaumgjörð Ferðatryggingasjóðs. Stofnun Ferðatryggingasjóðs mun hafa í för með sér mikið hagræði fyrir ferðaskrifstofur þar sem tryggingafé þeirra mun geta lækkað umtalsvert og að sama skapi mun tilkoma sjóðsins auka neytendavernd þar sem tryggt verður að allar kröfur ferðamanna vegna ógjaldfærni eða gjaldþrots seljenda pakkaferða munu fást greiddar að fullu. Við gerð frumvarpsins var höfð hliðsjón af sambærilegum tryggingasjóðum í Danmörku og Noregi. Ferðatryggingasjóður verður sjálfseignarstofnun í umsýslu Ferðamálastofu. Þriggja manna stjórn fer fyrir sjóðnum en Ferðamálastofa mun sjá um daglegan rekstur sjóðsins. Ferðaskrifstofur munu vera háðar skylduaðild að sjóðnum og munu greiða árlegt iðgjald auk þess að leggja fram tryggingafé líkt og verið hefur sem mun þó lækka umtalsvert. Gert er ráð fyrir því að Ferðatryggingasjóður verði stofnaður þann 1. júlí nk. með einskiptisgreiðslu allra ferðaskrifstofa sem nemi 1,5% af tryggingafjárhæðum ársins 2019. Auk þess munu ferðaskrifstofur greiða iðgjald á gjalddaga 1. september og eigi síðar en þann dag mun tryggingafé þeirra lækka í samræmi við nýjar reglur. Líkt og verið hefur verður kveðið á um útreikning tryggingafjárhæðar og iðgjalda í reglugerð sem ráðherra setur og er í opnu samráði samhliða frumvarpi þessu. Útreikningurinn byggir á sama grundvelli og gilt hefur og upplýsingaskylda ferðaskrifstofa helst áfram sú sama og sú reikniregla sem tekin var upp með reglugerð nr. 150/2019 mun áfram verða notuð í lítt breyttri mynd.

S-66/2021· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. mar. 2021 – 12. mar. 2021· 9 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun (Ferðatryggingasjóður)

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun, nr. 95/2018 (Ferðatryggingasjóður). Einnig eru til samráðs drög að reglugerð um Ferðatryggingasjóð.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-66/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 12. mars 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 9 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 752)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (15. desember 2021)

Frumvarpið varð að lögum nr. 95/2021, um breytingu á lögum um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun. Í samráðskafla greinargerðar frumvarpsins er að finna efnisleg viðbrögð við þeim umsögnum sem bárust í samráðinu. Þær umsagnir sem bárust leiddu ekki til breytinga á frumvarpinu.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (9)
  • #1Imagine Iceland ehf.
    Sæll og blessadur, Væri mjög áhugavert að vita upphæð árgjaldsins sem verður stillt sem nauðungargreiðsla. "Ferðaskrifstofur munu vera háðar skylduaðild að sjóðnum og munu greiða árlegt iðgjald auk þess að leggja fram tryggingafé líkt og verið hefur sem mun þó lækka umtalsvert." It looks like there is much emphasis on lowering the current insurance amount, but at least this amount stays mine, although blocked and isn't a cost, besides the cost for the accountancy from Ferðamalastofa and my (optional) cost for my accountant to support me with the yearly application which is quite a nui… Lesa alla

    Sæll og blessadur, Væri mjög áhugavert að vita upphæð árgjaldsins sem verður stillt sem nauðungargreiðsla. "Ferðaskrifstofur munu vera háðar skylduaðild að sjóðnum og munu greiða árlegt iðgjald auk þess að leggja fram tryggingafé líkt og verið hefur sem mun þó lækka umtalsvert." It looks like there is much emphasis on lowering the current insurance amount, but at least this amount stays mine, although blocked and isn't a cost, besides the cost for the accountancy from Ferðamalastofa and my (optional) cost for my accountant to support me with the yearly application which is quite a nuisance especially since this is done before my annual report is normally done. I m running a low cost company. I believe that works very well for being a solvable and responsible company that travellers can trust to book with. To set up a new structure with board members to run the show seems like a higher cost operation structure that we (travel agents) will pay for. I don't necessarily see the 'better' as in it the insurance fee at the moment also functions as a small investment to make sure people are serious about running a travel agency. An indirect protection of quality for the customers, although this is not the goal of the insurance fee. Afsakið fyrir að skirfa á engsku. Ekki einfallt orð ef það kemur með ´legal issues´. Takk kærlega ykkur fyrir að taka athugasemdir mínar inn í nýju skipulagið. Simone de Greef fh. Imagine Iceland ehf

  • #2Þórunn Reynisdóttir

    Varðandi 5 gr -tryggingarskylda Það vantar nákvæmari útlistun á hvernig þessi trygging verður reiknuð út. Nýjir aðilar þá teljum við að það þurfi að vera lágmarksgjald sem er greitt um leið og fyrirtækið fær leyfið. Þar sem að aðilar sem þegar eru með rekstur þurfa að greiða straks inní sjóðinn. Heimild til að hækka iðgjald allt uppí 10% þurfu að vera ákveðnar forsendur áður en hækkun er gerð sem hækkun. Eftirlit með fyrirtækjum þarf að vera tryggt og að Ferðamálastofa nái að sinna því sem skyldi.

  • #3Jón Haukur Daníelsson

    Góðan daginn Hef aldrei skilið þessa sér íslensku aðferð að búa til bákn og kerfi sem fáir skilja og er búið til fyrir fáa ekki alla. Af hverju ekki gera hlutina einfalda og hreinlega ættleiða sama kerfi og hefur reynst frændum okkar Dönum vel? Danir hafa Rejsegarantifond. Sjá https://www.rejsegarantifonden.dk/erhverv Hingað til hafa tryggingarmál Íslenskra ferðaskrifstofa verið í algjöru rugli og rekstraraðilum mismunað en það væri of langt mál að fara út í þá sálma hér. Mæli eindregið með að þetta verði endurskoðað frá grunni. Jón Haukur Daníelsson

  • #4Jón Haukur Daníelsson

    Góðan daginn Meira um Ferðatryggingasjóð eða Rejsegarantifonden. Danir leysa 7.gr., 8. gr., 9., gr. og 10. gr. svona sjá hlekk https://www.rejsegarantifonden.dk/fileadmin/user_upload/Erhverv_Vejledninger/Hvad_koster_det_at_vaere_registreret_i_fonden_ver2020.pdf Ferðskrifstofur sem selja pakkaferðir fjármagna tryggingarsjóð með að rukka farþega í pakkaferðum um DKK 10,- eða ca. ISK 200.- aukalega. Jón Haukur Daníelsson

  • #5Samtök ferðaþjónustunnar

    Ágæti viðtakandi, Í viðhengi er umsögn SAF- Samtaka ferðaþjónustunnar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun (Ferðatryggingasjóður) Með góðum kveðjum F.h. SAF Gunnar Valur Sveinsson

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-66/2021: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun (Ferðatryggingasjóður) · Alviti