Frumvarp til laga um breytingu á lögum um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna (fjölgun mismununarþátta), nr. 85/2018
Lagt er til að við lög nr. 85/2018 um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna verði bætt við mismununarþáttunum trú, lífsskoðun, fötlun, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum og kyntjáningu.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-57/2021)
- Umsagnarfrestur hefst · til 8. mars 2021
- Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 168)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (6. janúar 2023)
Haft var samráð við eftirfarandi aðila við gerð frumvarpsins: Öryrkjabandalagið, Þroskahjálp, Samtökin '78, Mannréttindaskrifstofu Íslands, Jafnréttisstofu, félagsmálaráðuneytið, heilbrigðisráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið, dómsmálaráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið. Þrjár umsagnir bárust í samráðsgátt stjórnvalda, frá Landssamtökunum Þroskahjálp, Mannréttindaskrifstofu Íslands og Öryrkjabandalagi Íslands. Allir umsagnaraðilar studdu fyrirhugaða lagasetningu. Sjá nánar í niðurstöðuskjali.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
- #1Landssamtökin Þroskahjálp
Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna (fjölgun mismununarþátta), nr. 85/2008. Landssamtökin Þroskahjálp þakka fyrir gott samráð sem forsætisráðuneytið hafði við samtökin við samningu frumvarpsins og vilja á þessu stigi kom efftirfarandi á framfæri varðandi frumvarpið. Samtökin ítreka ábendingu um að skoða þurfi hvort rétt, sanngjarnt og eðlilegt sé að hafa skilyrði um „langvarandi“ í skilgreiningu fötlunar og fatlaðs fólks í frumvarpinu í ljósi efnis og tilgangs laganna og eðlis þeirra mannréttind… Lesa alla
Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna (fjölgun mismununarþátta), nr. 85/2008. Landssamtökin Þroskahjálp þakka fyrir gott samráð sem forsætisráðuneytið hafði við samtökin við samningu frumvarpsins og vilja á þessu stigi kom efftirfarandi á framfæri varðandi frumvarpið. Samtökin ítreka ábendingu um að skoða þurfi hvort rétt, sanngjarnt og eðlilegt sé að hafa skilyrði um „langvarandi“ í skilgreiningu fötlunar og fatlaðs fólks í frumvarpinu í ljósi efnis og tilgangs laganna og eðlis þeirra mannréttinda sem þeim er ætlað að vernda. Samtökin leggja til að starfshópi sem á að skipa samkvæmt 11. gr. frumvarpsins „til að fjalla sérstaklega um mismunun vegna tengsla og mögulegar tillögur til breytinga á lögum þessum og lögum nr. 86/2018, um jafna meðferð á vinnumarkaði, til að koma til móts við þessar háttar mismunun“ verði einnig falið að fjalla um mismunun á grundvelli skynjunar eða skilnings (e. discrimination by perception). Með mismunun á grundvelli skynjunar eða skilnings er átt við þegar einstaklingi er mismunað vegna þess að hann er talinn tilheyra tilteknum hópi, s.s. talinn vera fatlaður, samkynhneigður, tiltekinnar trúar o.s.frv. Þá leggja samtökin til að í frumvarpinu verði kveðið skýrar á um hvenær umræddur starfshópur á að skila niðurstöðu sinni til ráðherra í síðasta lagi. Landssamtökin Þroskahjálp áskilja sér rétt til að koma fleiri ábendingum á framfæri varðandi frumvarpið á síðari stigum, þ.m.t. þegar Alþingi hefur frumvarpið til meðferðar. Virðingarfyllst. Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður Þroskahjálpar.
- #2Margrét Steinarsdóttir
Umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands um drög að frumvarpi um breytingu á lögum um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna.
- #3Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ)
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.