Frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála (réttarstaða brotaþola, fatlaðra og aðstandenda).
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála (réttarstaða brotaþola, fatlaðra og aðstandenda).
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-83/2021)
- Umsagnarfrestur hefst · til 25. mars 2021
- Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (3. nóvember 2021)
Frumvarpið var lagt frá á Alþingi 7. apríl 2021 en var ekki afgreitt.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
- #1Landssamtökin Þroskahjálp
Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála (réttarstaða brotaþola, fatlaðra og aðstandenda). Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með fötluð með þroskahömlun og fötluð börn og ungmenni. Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og Barnasáttmála SÞ. Samtökin fagna því að gera eigi breytingar á lögum með það að markmiði með tryggja betur réttindi fatlaðs fóks sem áréttuð eru í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólk… Lesa alla
Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála (réttarstaða brotaþola, fatlaðra og aðstandenda). Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með fötluð með þroskahömlun og fötluð börn og ungmenni. Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og Barnasáttmála SÞ. Samtökin fagna því að gera eigi breytingar á lögum með það að markmiði með tryggja betur réttindi fatlaðs fóks sem áréttuð eru í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem íslenska ríkið fullgilti árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að virða og framfylgja, þ.m.t. með því að gera nauðsynlegar breytngar á lögum í því skyni, sbr. 4. gr. samningsins. Ákvæði 13. gr. samningsins hafa sérstaka þýðingu hvað varðar frumvarpið sem hér er til umfjöllunar. Yfirskrift greinarinnar er “Aðgangur að réttinum” og hljóðar hún svo : „1. Aðildarríkin skulu tryggja fötluðu fólki árangursríkan aðgang að réttinum til jafns við aðra, meðal annars með aðlögun málsmeðferðar og aðlögun með tilliti til aldurs í því skyni að greiða fyrir árangursríkri þátttöku þess, beinni eða óbeinni, þar á meðal sem vitni, í allri málsmeðferð, þ.m.t. á rannsóknarstigi eða öðrum fyrri stigum máls. 2. Í því skyni að tryggja fötluðu fólki árangursríkan aðgang að réttinum skulu aðildarríkin efla viðeigandi þjálfun fyrir þau sem starfa á sviði réttarvörslu, þar á meðal lögreglu og starfsfólk fangelsa.“ Samtökin beina því til dómsmálaráðuneytisins að skoða hvort breyta þurfi einhverjum ákvæðum í frumvarpinu til að tryggja að sakborningur, sem er með þroskahömlun og/eða einhverfu og/eða geðrænar raskanir, þurfi að fá meiri aðstoð og viðeigandi aðlögun en frumvarpið mælir fyrir um til að tryggja að ítrasta réttaröryggis sé gætt. Landssamtökin Þroskahjálp áskilja sér rétt til að koma fleiri ábendingum og athugasemdum varðandi frumvarpið á framfæri á síðari stigum, s.s. við þinglega meðferð þess. Virðingarfyllst. Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður Þroskahjálpar.
- #2María Sjöfn Árnadóttir
Umsögn Maríu Sjafnar Árnadóttur brotaþola
- #3María Sjöfn Árnadóttir
Vopnafjörður 22.mars 2021 Umsögn Maríu Sjafnar Árnadóttur brotaþola, um drög að frumvarpi um breytingu á lögum um meðferð sakamála (réttarstaða brotaþola, fatlaðra og aðstandenda) nr. 82/2021 Drögin eru að hluta til byggð á greinargerð Hildar Fjólu Antonsdóttur um réttláta málsmeðferð með tilliti til þolenda kynferðisbrota, sem unnin var fyrir stýrihóp forsætisráðherra um heildstæðar úrbætur að því er varðar kynferðislegt ofbeldi sem kom út í maí 2019. Ljóst er að ekki hefur verið brugðist við tillögum Hildar Fjólu nema að verulegu takmörkuðu leyti. Vil ég því leggja fram athugasemdir um… Lesa alla
Vopnafjörður 22.mars 2021 Umsögn Maríu Sjafnar Árnadóttur brotaþola, um drög að frumvarpi um breytingu á lögum um meðferð sakamála (réttarstaða brotaþola, fatlaðra og aðstandenda) nr. 82/2021 Drögin eru að hluta til byggð á greinargerð Hildar Fjólu Antonsdóttur um réttláta málsmeðferð með tilliti til þolenda kynferðisbrota, sem unnin var fyrir stýrihóp forsætisráðherra um heildstæðar úrbætur að því er varðar kynferðislegt ofbeldi sem kom út í maí 2019. Ljóst er að ekki hefur verið brugðist við tillögum Hildar Fjólu nema að verulegu takmörkuðu leyti. Vil ég því leggja fram athugasemdir um það sem betur þarf að tryggja og vísa í mál 007-2017-74019 sem rökstuðning fyrir þeim. Varðandi rétt til aðgangs að gögnum við rannsókn máls í 7.gr. frumvarps, þá þyrfti að skýra það ákvæði talsvert betur í breytingatillögum. Ekki verður séð með fyrirhuguðum breytingum að aukinn réttur brotaþola til gagna skili sér með einhverskonar mati ákæruvalds. Fyrirhuguð lagagrein býður upp á misjafna túlkun sem gæti orðið til þess að jafnræðis verði ekki gætt. Tryggja þarf að brotaþoli hafi skýran aðgang að gögnum máls sem varða hann til jafns við sakborning í rannsókn, enda hefur hann augljósa hagsmuni af því að sakborningi verði refsað fyrir brot sín. Mikilvægt er að viðurkennt verði, að brotaþolar hafi réttmæta þörf til að gæta hagsmuna sinna á meðan á málsmeðferð stendur. Enda eru það sönnunargögn sem lögð eru fram sem mestu máli skipta við að upplýsa mál. Brotaþolinn er iðulega manneskjan sem veit mest um málið. Einnig er mjög mikilvægt að brotaþoli hafi rétt til að svara skýrslu geranda á rannsóknarstigi áður en ákvörðun er tekin í máli, þ.e. hvort ákært verði eður ei. Markmið sakamálalaga er að leiða hið sanna í ljós, og gefst þá brotaþola tækifæri að sanna eða afsanna eitthvað í skýrslu geranda ef svo ber undir, sem gæti einmitt hjálpað til að leiða hið sanna í ljós. Eins og lögin eru núna gefst brotaþola fyrst tækifæri að svara skýrslu geranda eftir niðurfellingu máls kæri hann niðurfellinguna til ríkissaksóknara, sem er ekki til þess fallið að upplýsa mál á rannsóknarstigi. Flestir brotaþolar gefast upp við niðurfellingu máls. Ég sem brotaþoli hef fjallað um það opinberlega að mikilvægt sé að veita brotaþolum kæruheimild á rannsóknarstigi, telji brotaþoli að verið sé að fyrirgera rétti hans um réttláta málsmeðferð. Við rannsókn í mínu máli reyndi ég ítrekað að benda rannsakendum á áhyggjur mínar hvort málið væri að fyrnast í rannsókn og benti rannsakanda meðal annars á þvingunarúrræði að handtaka geranda til skýrslutöku. Á þetta var ekki hlustað. Ég taldi mig vissa um að eitthvað væri bogið við rannsóknina í málinu en gat ekkert gert til að bregðast við því. Ég fann vel fyrir áhugaleysi og vanþekkingu í samskiptum mínum við rannsakendur. Eins átti að ljúka rannsókn án þess að tala við bein-og óbein vitni sem ég náði þó að stöðva. Tveir af þremur kæruliðum fyrntust í höndum lögreglunnar. Ég er fullviss um það að hefði ég haft skýra kæruheimild á rannsóknarstigi hefði ég náð að bjarga málinu mínu frá fyrningu. Slík heimild getur varla gert annað en leitt til vandaðri rannsókna, upplýsa mál og veita rannsakendum aðhald með það mikilvæga vald sem rannsakendur hafa samkvæmt lögum. Ég tel einnig nauðsynlegt að bæta við frumkvæðisskyldu lögreglu sem fjallað er um í 4.gr. frumvarps um að tilkynna brotaþola að skýrslutaka við geranda hafi farið fram. Einnig er mikilvægt fyrir brotaþola að fá upplýsingar þegar mikilvæg gögn hafa verið sótt í máli, s.s. áverkavottorð, staðfestingar og skýrslur sem bent hefur verið á við skýrslutöku og eins að tilkynna brotaþola þegar talað hefur verið við vitni í máli. Vísa ég hér til væntingastjórnunar að brotaþoli geti fylgst með að verið sé að rannsaka málið sem auðveldar íþyngjandi og blint kæruferli brotaþola til muna. Við afstöðu ríkissaksóknara við kæru minni við niðurfellingu, kom fyrst í ljós að engin gögn höfðu verið sótt af ákæruvaldi, sjá mál nr. 007-2017-74019. Eins og áður sagði er nauðsynlegt að brotaþoli hafi kæruheimild á rannsóknarstigi, telji hann að lögregla sé að fyrirgera rétti brotaþola um réttláta málsmeðferð s.s. með fyrningu, að gögn hafi ekki verið sótt og að ekki sé búið að tala við vitni. Sönnungargögn eru undirstaða þess að hægt sé að leiða hið sanna í ljós. Til þess að tryggja að fyrning verði ekki í máli, þá tel ég mjög mikilvægt að árétta að fyrning rofnar ekki við kæru, heldur þegar sakborningi er kynnt sakarefni. Ljóst er að rannsakendum er ekki kunnugt um þessa mikilvægu formreglu, sjá mál nr. 007-2017-74019.Tel ég því mikilvægt að skerpa á verklagsreglum og birta sakarefni sakborningi um leið og kæra hefur átt sér stað, enda geta verið nokkrir kærufrestir í máli þegar kært er fyrir ofbeldi í nánu sambandi. Ég sé fyrir mér að þetta verði gert í svipuðu formi og birting stefnu fer fram. Með slíku fyrirkomulagi er fyrningarrof skýrt bæði fyrir rannsakendum og brotaþola. Vísa ég þar til væntingastjórnunar sem auðveldar brotaþolendum að fylgjast með máli sínu á löngum og íþyngjandi málsmeðferðartíma þar sem brotaþoli er með bundið fyrir augun alla málsmeðferðina, og veit ekkert hvað er að gerast í máli, sjá mál nr. 007-2017-74019. Ég kærði 1.desember 2017, fyrsta brot fyrntist 28.febrúar 2018 og hafði þá hvorki verið talað við vitni né sakborningi kynnt sakarefni. Það hlýtur að liggja ljóst fyrir mikilvægi þess að tala við sakborning og vitni í máli strax og mál er kært þar sem dágóður tími hefur oft liðið frá verknaði til kæru. Það hlýtur að teljast brýnt að fá skýrslu vitna sem fyrst upp á minni vitna ef langt er liðið frá verknaði. Ég, brotaþoli í málinu, var heldur ekki upplýst um hvort sakborningi hefði verið kynnt sakarefni eða ekki, þrátt fyrir að ég hafi spurt sérstaklega hvort fyrning hafi verið rofin, þá fékk ég ekkert svar. Rannsakandi reyndi ítrekað að telja mér trú um að þeir reyndu að ná sambandi símleiðis við geranda. Gerendur vita þetta og svara ekki símanum. Eins heldur slík kynning á sakarefni fyrir sakborningi ekki fyrir dómstólum sé það gert símleiðis. Það er með öllu ótækt að ákæruvald beri engar afleiðingar af því að brjóta á stjórnarskráðvörðum réttindum brotaþolenda um réttláta málsmeðferð án nokkurra afleiðinga. Lögbrot er lögbrot sama hver framkvæmir það. Allir bera afleiðingar af lögbrotum og á ákæruvald ekki að vera þar undanskilið. Það telst verulega íþyngjandi staða fyrir borgara að framkvæmdavald brjóti á borgaralegum rétti almennings. Mig langar til að árétta mikilvægi þess að ákæruvald beri afleiðingar, fyrirgeri þeir þeir þessum mikilvæga rétti brotaþolenda. Leiði formreglubrot eða saknæmt brot lögreglu til þess að ekki er hægt að ákæra í máli, alveg óháð því hvort mál verði síðar fellt niður, er réttlátt og sanngjarnt að tekin verði upp hlutlæg skaðabótaskylda ákæruvalds gagnvart brotaþolanda sem situr uppi með bæði fjárhagslegt og ófjárhagslegt tjón sé þessi réttur brotinn. Ábyrgð framkvæmdavalds er mikilvægt og er það afar sérstakt að ákæruvald geti brotið fjölda lagaákvæða án þess að bera nokkrar afleiðingar. Því tel ég nauðsynlegt að lögfesta eigi hlutlæga skaðabótaábyrgð þegar slæleg vinnubrögð lögreglu og ákæruvalds, valda því að ekki er hægt að ákæra í máli vegna rannsóknar lögreglu. Tryggja verður að þegar er kært fyrir ofbeldi í nánu sambandi að réttargæslulögmaður fylgi málinu til enda, þar sem nokkrir kæruliðir geta falist í upphaflegri kæru. Mál sem kært var fyrir ofbeldi í nánu sambandi hættir ekki að vera þess eðlis þó svo að ekki sé hægt að ákæra í öllum kæruliðum, hvort sem það er vegna sönnunarstöðu eða mál hafi fyrnst í höndum lögreglu. Í mínu máli kærði ég fyrir ofbeldi í nánu sambandi sem voru tvær líkamsárásir og ein hótun. Líkamsárásarbrotin fyrntust í höndum lögreglu svo einungis var hægt að ákæra fyrir hótun. Heimild til réttargæslulögmanns fylgdi líkamsárásarbrotum svo missti ég rétt minn til réttargæslulögmanns vegna klofnings í máli, sem er algjörlega á ábyrgð ákæruvalds. Með klofningi máls missti ég einnig rétt minn til að víkja ofbeldismanni mínum úr dómssal þegar skýrsla var tekin fyrir dómi. Ég sat með ofbeldismanninn á hægri hönd og saksóknara sem hafði brotið á rétti mínum til gagna, rökstuðnings og ekki tilkynnt um að mál hefðu fyrnst í rannsókn mér á vinstri hönd. Þetta var verulega íþyngjandi staða og fráleitt að sami saksóknari og braut á rétti mínum í rannsókn hafi síðar flutt málið mitt fyrir dómi. Ég sat uppi með mörg hundruð þúsund króna kostnað fyrir lögfræðiþjónustu sem ég þurfti að greiða úr eigin vasa, og er máli ekki lokið því ég þarf að greiða nokkur hundruð þúsund til að halda uppi einkaréttarkröfu fyrir Landsrétti, þar sem sakborningur áfrýjaði sakfellingu til Landsréttar. Það getur ekki talist sanngjarnt eða réttlátt að brotaþoli sem kærir fyrir refsiverðan verknað verði fyrir slíku tjóni. Enda er slíkt verklag fallið til þess að fæla brotaþolendur frá því að kæra refsiverðan verknað vegna möguleika á bæði fjárhagslegslegu og ófjárhagslegu tjóni eins og ég varð fyrir, sjá mál, 007-2017-74019. Varðandi afhendingu gagna þegar mál er niðurfellt í kerfi, er praktíkin mismunandi og brýtur hreinlega gegn jafnræðisreglu, þar sem afhending gagna eftir niðurfellingu máls hefur verið túlkuð með mismunandi hætti, eftir því hvaða saksóknari fer með mál. Það þarf að tryggja jafnræði og skerpa reglur betur sjá mál nr. 007-2017-74019, í máli mínu var synjað um afhendingu gagna eftir niðurfellingu málsins, þrátt fyrir skýra lagaheimild í stjórnsýslulögum, reglum hjá embætti ríkissaksóknara nr. 9/2017 og túlkun Umboðsmanns Alþingis á réttaráhrifum niðurfellingar sjá álit nr. 4241/2004. Í þeim tilvikum sem mál er á vogarskálum mats hvort skuli ákæra í máli eða ekki, þá er ég persónulega á þeirri skoðun að framkvæmdavald sé komið langt inn á dómsvald með þá ákvörðun, enda er það starf dómara að meta sönnunarstöðu þegar sönnungargögn eru í máli umfram orð gegn orði. Ákæruhlutfall og sakfellingarhlutfall er nánast á pari í um 80-90 prósent, tölurnar segja að það sé ekki reynt á nógu mörg mál, þá tel ég að framkvæmdavald fari með ólöglegt vald sem fer gegn þrískiptingu stjórnarskrár. Í þeim tilfellum sem sem sönnunargögn eru í máli sem eru felld niður, er afar mikilvægt að brotaþoli fái gjafsókn óháð efnhag til að ná fram réttlæti gegn geranda sínum og til að eiga kost á því að bætt verði fyrir fjáhagslegt og ófjárhagslegt tjón sem hann varð fyrir. Virðingafyllst, María Sjöfn Árnadóttir brotaþoli.
- #4Margrét Steinarsdóttir
Umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands um drög að frumvarpi um breytingu á lögum um meðferð sakamála
- #5Hildur Fjóla Antonsdóttir
Sjá umsögn í viðhengi.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.