Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-55/2021 · Mennta- og barnamálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og menningarmála (öflun sakavottorðs)

Kveðið er á um breytingar á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og mennningarmálaráðuneytis og snúa þær allar að því að lagaákvæðum um öflun sakavottorðs við og eftir ráðningu.

Með frumvarpinu er áfram lagt til ráðningarbann gagnvart þeim sem hlotið hafa refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga en þau nýmæli er að finna í frumvarpi þessu að meta skuli áhrif annarra brota á áhrif þess sem sækir um starf til að sinna starfi, meðal annars með hliðsjón af eðli starfs og alvarleika brota. Til að framfylgja ráðningarbanninu skal sá sem stendur að ráðningu kalla eftir sakavottorði eða fá heimild til að afla upplýsinga úr sakaskrá einu sinni á ári en oftar ef fram koma upplýsingar sem gefa tilefni til þess. Slík heimild hefur aðeins verið til staðar fram að þessu á þeim tímapunkti þegar til ráðningarsambands er stofnað. Með frumvarpinu er stefnt að því markmiði að einstaklingar geti ekki brotið af sér eftir að til ráðningarsambands hefur verið stofnað án þess að vinnuveitandi hafi kost á að fá upplýsingar um það. Með breytingunni er talið að ákvæði um bann við að ráða til starfa einstaklinga með tiltekinn brotaferil á bakinu nái betur tilgangi sínum en áður.

S-55/2021· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. feb. 2021 – 9. mar. 2021· 3 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og menningarmála (öflun sakavottorðs)

Kveðið er á um breytingar á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og mennningarmálaráðuneytis og snúa þær allar að því að lagaákvæðum um öflun sakavottorðs við og eftir ráðningu.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-55/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 9. mars 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 715)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (31. ágúst 2022)

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og menningarmála (öflun sakavottorðs) voru til umsagnar í samráðgátt stjórnvalda 23. febrúar – 9. mars 2021. Alls bárust þrjár umsagnir en þær voru frá Samtökum atvinnulífsins, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ). Tekið var tillit til framkominna athugasemda við smíði frumvarpsins sem var lagt fyrir Alþingi 7. apríl 2021.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-55/2021: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og menningarmála (öflun sakavottorðs) · Alviti