Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-54/2021 · Mennta- og barnamálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um grunnskóla nr. 91/2008, og lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008, er varða fagráð eineltismála

Lagðar eru til breytingar á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, og lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008, er varða fagráð eineltismála.

Með frumvarpinu eru lagðar til sömu breytingar á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, og lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008. Lagt er til að fella orðalagið „Þar skal m.a. mælt fyrir um starfrækslu fagráðs á vegum ráðuneytisins er verði ráðgefandi í eineltismálum.“ á brott úr ákvæðum laganna og þess í stað að kveða á um fagráð eineltismála með sérstakri lagagrein. Í 1. mgr. greinarinnar verður fjallað um skipun fagráðsins og heimild fyrir ráðherra til að fela Menntamálastofnun eða öðrum aðilum að annast umsýslu fagráðsins. Í 2. mgr. er kveðið á um hlutverk fagráðsins í tveimur töluliðum sem eru sambærilegir þeim sem í dag eru í verklagsreglum fagráðsins. Með 3. mgr. er fengin heimild fyrir fagráðið til að vinna með persónuupplýsingar, þar á meðal viðkvæmar persónuupplýsingar í skilningi b-liðar 3. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga um persónuvernd og vinslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018. Kveðið er sérstaklega á um að fagráðinu beri að upplýsa málaðila um fyrirhugaða upplýsingaöflun í samræmi við 2. mgr. 17. gr. sömu laga. Í 4. mgr. er fjallað um aðgang að gögnum. Að meginstefnu gilda ákvæði stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og upplýsingalaga, nr. 140/2012. Fagráðinu verður þó heimilt að takmarka aðgang aðila að tilteknum gögnum ef það telur þau geta skaðað hagsmuni barns eða samband þess við aðra. Fagráð getur einnig úrskurðað að aðilar og lögmenn þeirra geti kynnt sér skjöl og önnur gögn án þess að þau eða ljósrit af þeim séu afhent. Ákvæðið er til samræmis við ákvæði barnaverndarlaga, nr. 80/2002. Þá verður áfram mælt fyrir um starfsemi fagráðsins með reglum en fyrirmynd þessa ákvæðis eru núgildandi verklagsreglur. Gert er ráð fyrir að lögin taki þegar gildi.

S-54/2021· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. feb. 2021 – 9. mar. 2021· 3 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um grunnskóla nr. 91/2008, og lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008, er varða fagráð eineltismála

Lagðar eru til breytingar á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, og lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008, er varða fagráð eineltismála.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-54/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 9. mars 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 716)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (31. ágúst 2022)

Drög að frumvarpi til laga um grunnskóla nr. 91/2008, og lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008, er varða fagráð eineltismála voru til umsagnar í samráðgátt 23. febrúar – 9. mars 2021. Alls bárust þrjár umsagnir. Sjá nánari umfjöllun um úrvinnslu samráðs í niðurstöðuskjali.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Landssamtökin Þroskahjálp
    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að frumvarpi til laga um grunnskóla nr. 91/2008 og lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008, er varða fagráð eineltismála. Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fötluð börn og ungmenni og fólk með þroskahömlun. Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, Barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum. Um 20 félög eiga aðild að samtökunum með um 6 þúsund félagsmenn. Landssamtökin Þroskahjálp lýsa yfir ánægju með þau almennu áhersluatrið… Lesa alla

    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að frumvarpi til laga um grunnskóla nr. 91/2008 og lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008, er varða fagráð eineltismála. Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fötluð börn og ungmenni og fólk með þroskahömlun. Samtökin byggja stefnu sína á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, Barnasáttmála SÞ og öðrum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum. Um 20 félög eiga aðild að samtökunum með um 6 þúsund félagsmenn. Landssamtökin Þroskahjálp lýsa yfir ánægju með þau almennu áhersluatrið sem fram koma í frumvarpinu og lúta að því að auka vernd gegn einelti og skilvirkni fagráðs eineltismála, enda sýna kannanir og rannsóknir að fötluð börn og ungmenni séu líklegri til að verða fyrir einelti en önnur börn og ungmenni. Landssamtökin beina þeim eindregnu tilmælum til stjórnvalda að tryggt verði að fagráð eineltismála verði í stakk búið til þess að taka sérstakt tillit til fatlaðra barna og unmenna, hvort heldur er sem mögulegir gerendur í einheltismálum eða þolendur í slíkum málum. M.a. með því að tryggja viðeigandi aðlögun og sjá til þess að til boði sé stuðningur sem tekur að fullu mið af fötlun og sérþörfum, t.d. að veita stuðning í viðtölum og/eða að upplýsingum sé miðlað á auðskildu máli. Þá beinum við einnig þeim tilmælum til stjórnvalda að fagráð eineltismála setji sér verklagsreglur um hvaða persónupplýsinga teljist nauðsynlegt að afla í þeim málum sem varða fötluð börn og ungmenni og að eingöngu þeim upplýsingum sem hafa mikið og augljóst mikilvægi verði miðlað. Í sambandi við frumvarp það sem hér er til umfjöllunar vekja Landssamtökin þroskahjálp sérstaka athygli á skyldum stjórnvalda samkvæmt eftirfarandi greinum í samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks. 4. gr. Almennar skuldbindingar. 1. Aðildarríkin skuldbinda sig til þess að tryggja og stuðla að því að öll mannréttindi og mannfrelsi verði í einu og öllu að veruleika fyrir allt fatlað fólk án mismununar af nokkru tagi vegna fötlunar. Aðildarríkin skuldbinda sig í þessu skyni til: a) að samþykkja öll viðeigandi lagaákvæði og ráðstafanir á sviði stjórnsýslu og aðrar ráðstafanir til þess að þau réttindi sem eru viðurkennd með samningi þessum verði að veruleika, b) að gera allar viðeigandi ráðstafanir, þar með talið á sviði lagasetningar, til þess að gildandi lögum, reglum, venjum og starfsháttum, sem fela í sér mismunun gagnvart fötluðu fólki, verði breytt eða þau afnumin, c) að taka mið af vernd og framgangi mannréttinda fatlaðs fólks við alla stefnumótun og áætlanagerð, … 7. gr. Fötluð börn. 1. Aðildarríkin skulu gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til þess að fötluð börn fái notið mannréttinda og mannfrelsis til fulls og jafns við önnur börn. 2. Í öllum aðgerðum, sem snerta fötluð börn, skal fyrst og fremst hafa það að leiðarljósi sem er viðkomandi barni fyrir bestu. 3. Aðildarríkin skulu tryggja fötluðum börnum rétt til þess að láta skoðanir sínar óhindrað í ljós um öll mál er þau varða, jafnframt því að sjónarmiðum þeirra sé gefinn gaumur eins og eðlilegt má telja miðað við aldur þeirra og þroska og til jafns við önnur börn og veita þeim aðstoð þar sem tekið er eðlilegt tillit til fötlunar þeirra og aldurs til þess að sá réttur megi verða að veruleika. 16. gr. Frelsi frá misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingum. 1. Aðildarríkin skulu gera allar viðeigandi ráðstafanir á sviði löggjafar, stjórnsýslu, félags- og menntamála og aðrar ráðstafanir í því skyni að vernda fatlað fólk, jafnt innan heimilis sem utan, fyrir hvers kyns misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingum, einnig með hliðsjón af kynbundnum þáttum slíkra athafna. 2. Aðildarríkin skulu einnig gera allar viðeigandi ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingar í hvaða mynd sem er, einnig með því að tryggja fötluðu fólki og fjölskyldum þess, ásamt þeim sem annast það, viðeigandi aðstoð og stuðning, sem tekur mið af kyni og aldri, meðal annars með því að veita upplýsingar og fræðslu um hvernig beri að forðast, átta sig á og tilkynna um misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingar. Aðildarríkin skulu tryggja að sú þjónusta sem veitir vernd taki mið af kyni, aldri og fötlun. 3. Í því skyni að koma í veg fyrir misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingar í hvaða mynd sem er skulu aðildarríkin tryggja að óháð yfirvöld hafi virkt eftirlit með allri aðstöðu og áætlunum sem er ætlað að þjóna fötluðu fólki. 4. Aðildarríkin skulu gera allar viðeigandi ráðstafanir til þess að stuðla að líkamlegum, vitsmunalegum og sálrænum bata, endurhæfingu og félagslegri enduraðlögun fatlaðs fólks, sem verður þolendur misnotkunar í gróðaskyni, ofbeldis eða misþyrminga í ein¬hverri mynd, meðal annars með því að bjóða fram þjónustu sem veitir vernd. Slíkur bati og enduraðlögun skulu fara fram í umhverfi sem stuðlar að bættri heilsu, velferð, sjálfsvirðingu, reisn og sjálfræði viðkomandi einstaklings, þar sem tillit er tekið til sérþarfa hans miðað við kyn og aldur. 5. Aðildarríkin skulu taka upp skilvirka löggjöf og stefnu, einnig löggjöf og stefnu þar sem sérstakt tillit er tekið til kvenna og barna, til þess að tryggt sé að unnt sé að staðreyna og rannsaka misnotkun í gróðaskyni, ofbeldi og misþyrmingar sem beinast gegn fötluðu fólki og ákæra vegna slíkrar háttsemi ef það á við. Samtökin lýsa yfir áhuga á því að eiga fund með ráðuneytinu til að gera frekari grein fyrir afstöðu sinni og áherslum og vísa í því sambandi til 3. tl. 4. gr. samnings SÞ þar sem segir: Þegar aðildarríkin undirbúa löggjöf sína og stefnu samningi þessum til framkvæmdar og vinna að því að taka ákvarðanir um málefni sem varða fatlað fólk skulu þau hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, einnig fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd. Virðingarfyllst, Anna Lára Steindal, verkefnisstjóri í málefnum barna, ungmenna og fólks af erlendum uppruna.

  • #2Samband íslenskra framhaldsskólanema (S.Í.F)

    Í viðhengi má finna umsögn Sambands íslenskra framhaldsskólanema, SÍF, vegna frumvarps til laga um framhaldsskóla nr. 92/2008, er varða fagráð eineltismála. Hildur Björgvinsdóttir framkvæmdastjóri

  • #3Barnaheill - Save the Children á Íslandi
    Umsögn Barnaheilla - Save the Children á Íslandi um drög að frumvarpi til laga um grunnskóla nr. 91/2008, og lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008, er varða fagráð eineltismála Barnaheill – Save the Children á Íslandi þakka fyrir boð um að senda inn athugasemdir við ofangreint mál. Barnaheill fagna þeim áformum um að styrkja lagalega stoð fagráðs eineltismála. Hins vegar vilja samtökin nýta tækifærið til að benda á eftirfarandi: Barnaheill telja mjög mikilvægt að fullnægjandi stoð sé í lögum um leik-, grunn- og framhaldsskóla hvað varðar einelti. Mikilvægt er að eineltismál séu unnin af… Lesa alla

    Umsögn Barnaheilla - Save the Children á Íslandi um drög að frumvarpi til laga um grunnskóla nr. 91/2008, og lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008, er varða fagráð eineltismála Barnaheill – Save the Children á Íslandi þakka fyrir boð um að senda inn athugasemdir við ofangreint mál. Barnaheill fagna þeim áformum um að styrkja lagalega stoð fagráðs eineltismála. Hins vegar vilja samtökin nýta tækifærið til að benda á eftirfarandi: Barnaheill telja mjög mikilvægt að fullnægjandi stoð sé í lögum um leik-, grunn- og framhaldsskóla hvað varðar einelti. Mikilvægt er að eineltismál séu unnin af fagmennsku og samkvæmt bestu og nýjustu rannsóknum. Í greinargerð með frumvarpinu er hlutverk fagráðs eineltismála skilgreint á eftirfarandi hátt: Fagráð eineltismála í grunn- og framhaldsskólum starfar hjá Mennamálastofnun og hefur það hlutverk að veita skólasamfélaginu stuðning vegna eineltismála með almennri ráðgjöf, leiðbeiningum og upplýsingagjöf. Þá er hægt að vísa eineltismálum til fagráðsins ef ekki tekst að finna fullnægjandi lausn á eineltismálum innan skóla eða sveitarfélags eða vegna meints aðgerðaleysis sömu aðila. Skal þá fagráðið veita ráðgefandi álit á grundvelli þeirra gagna og upplýsinga sem því berast. Barnaheill telja nauðsynlegt að hlutverk fagráðsins sé ekki síður að efla forvarnir gegn einelti og styðja skóla til að koma í veg fyrir einelti og þann skaða sem það getur valdið til lengri tíma, bæði einstaklingum og hópum. Svo hægt sé að stuðla að forvörnum telja samtökin að efla þurfi fræðslu um mikilvægi góðra samskipta og jákvæðs skólabrags, bæði á meðal nemenda og allra starfsmanna skóla. Samkvæmt nýjustu rannsóknum og viðhorfum til eineltis er nú litið á einelti sem menningarlegt, samskiptalegt og félagslegt mein fremur en einstaklingsbundinn vanda. Einelti er fyrst og fremst afleiðing ótta við útilokun úr hópnum þar sem viðkomandi aðilar reyna að tryggja eigin stöðu. Þess vegna er mikilvægt að vinna alltaf með nemendahópinn í heild sinni þegar upp koma eineltismál, fremur en að einblína á að einhver sé gerandi og annar þolandi. Einelti festir síður rætur í umhverfi þar sem nemendur og starfsfólk hafa tileinkað sér virðingu fyrir margbreytileikanum, umhyggju og umburðarlyndi. Í þeim tilfellum sem einelti hefur átt sér stað þarf að sjálfsögðu að veita þeim einstaklingum sem fyrir því verða aðstoð við að byggja upp sjálfsmynd sína á ný. Jafnframt er mikilvægt að vinna með allan nemendahópinn sem heild til að fyrirbyggja að slík mál komi upp á ný því ef ekki er ráðist að rót vandans sem liggur í samskiptum og skólabrag er sú hætta á ferð að eineltið viðgangist áfram. Barnaheill hvetja til þess að hlutverk fagráðsins verði endurskilgreint með það fyrir sjónum að það veiti einnig ráðgjöf til skóla um hvernig koma megi í veg fyrir einelti. Barnaheill leggja mikla áherslu á vernd barna gegn ofbeldi, þ.á m. einelti og vanrækslu og á rétt barna til að hafa áhrif á ákvarðanir sem þau varða. Samtökin hafa Barnasáttmálann að leiðarljósi í öllu sínu starfi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-54/2021: Drög að frumvarpi til laga um grunnskóla nr. 91/2008, og lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008, er varða fagráð eineltismála · Alviti