Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-52/2021 · Heilbrigðisráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 65/1974, um ávana- og fíkniefni (afglæpavæðing neysluskammta)

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, um afglæpavæðingu neysluskammta.

Á þingmálaskrá heilbrigðisráðherra fyrir 151. löggjafarþing er áætlað að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, um afglæpavæðingu neysluskammta. Tilefni frumvarpsins er stefnumörkun stjórnvalda að meðhöndla eigi vanda vímuefnanotenda í íslensku samfélagi í heilbrigðiskerfinu fremur en dómskerfinu. Um leið hafa efasemdir um gagnsemi hinnar alþjóðlegu baráttu gegn vímuefnum farið vaxandi og verið áberandi í samfélagsumræðu, bæði alþjóðlegri og innlendri. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að snúa þurfi af braut harðra refsinga fyrir neyslu fíkniefna og að leggja skuli áherslu á forvarnir og lýðheilsu. Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum nr. 65/1974, um ávana- og fíkniefni, á þá leið að kaup og varsla á takmörkuðu magni af ávana- og fíkniefnum til eigin nota, svokallaðra neysluskammta, verði heimiluð. Í frumvarpinu er jafnframt kveðið á um að ráðherra skuli í reglugerð kveða á um hvaða magn ávana- og fíkniefna getur talist til eigin nota. Þá er í frumvarpinu það lagt til að ekki skuli gera upptæk efni sem eru í vörslu einstaklinga sem eru 18 ára og eldri þegar magn þeirra er innan þess sem talist getur til eigin nota. Byggir frumvarpið á hugmyndafræði skaðaminnkunar sem vísar til stefna, verkefna og verklags sem miðar fyrst og fremst að því að draga úr heilsufarslegum, félagslegum og efnahagslegum afleiðingum notkunar löglegra og ólöglegra vímuefna án þess að markmiðið sé að draga úr vímuefnanotkun. Skaðaminnkun gagnast fólki sem notar vímuefni, fjölskyldum þeirra, nærsamfélagi notandans og samfélaginu í heild.

S-52/2021· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. feb. 2021 – 1. mar. 2021· 16 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 65/1974, um ávana- og fíkniefni (afglæpavæðing neysluskammta)

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, um afglæpavæðingu neysluskammta.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-52/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 1. mars 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 16 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 714)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (9. júlí 2021)

Að loknu samráði var mælt fyrir frumvarpinu á Alþingi en það náði ekki fram að ganga á 151. löggjafarþingi.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (16)
  • #1Gunnar Smári Helgason

    Mikilvægt og gott skref í baráttunni gegn fíkniefnaglæpum.

  • #2Patrekur Örn Pálmason

    Afglæpavæðing er eina lausnin. Fólk inn í heilbrigðiskerfið í staðin fyrir lögreglustöðvar. Ísland gæti grætt fleiri milljarða á hampi, cbd og thc framleiðslu, en fyrir drullandi álver og aðra stóriðju .. það er árið 2021.... Lögsetja , skattleggja og hætta þessum f%%%%% fordómum! ps hættið að reykja krakk ...... og spice

  • #3Brynjólfur Tómasson

    Finnst að skilgreina þurfi hvaða efni eru leyfileg. Það gæti verið gert í reglugerð þeirri sem skilgreinir skammtastærðir. Trúi ekki að leyfa eigi kaup og vörslu á stórhættulegum efnum.

  • #4Mike Vestmar Bjarnason

    þetta er löglegur iðnaður útum allan heim og það er staðreynd ! Stríðið við Fíkniefni er löngu úrelt einsvo stríðið við áfengi í gamla daga. við erum ekki í gamla daga við erum í 2021! í dag og í gær er enginn árangur við stríð við fíkniefni búið að nást nema að það sé meira framboð og glæpir tengt ólöglegri starfsemi. byrjum að borga skatta frá þessari iðju og hættum að skapa okkur glæpafólk

  • #5Aðalsteinn Gunnarsson
    Aðalsteinn Gunnarsson Reykjavík 26. febrúar 2021 Vímuefni eru með helstu hindrunum sjálfbærrar þróunar mannkyns. Þau hafa neikvæð áhrif á allar stoðir samfélagsins (umhverfi, efnahagur og samfélag) og snerta við öllum hliðum samfélagsins. Vímuefni stefna mannauði í voða, grafa undan hagvexti, veikja innviði samfélagsins og eru gríðarlegt byrði á heilbrigðiskerfinu. Þetta frumvarp opnar gáttir fyrir aukið magn og úrval vímuefna og ýtir undir aukna neyslu vegna aukins framboðs. Ég er þess vegna alfarið á móti auknu aðgengi að vímuefnum og hvet þig Svandís Svavarsdóttir að leggja ekki… Lesa alla

    Aðalsteinn Gunnarsson Reykjavík 26. febrúar 2021 Vímuefni eru með helstu hindrunum sjálfbærrar þróunar mannkyns. Þau hafa neikvæð áhrif á allar stoðir samfélagsins (umhverfi, efnahagur og samfélag) og snerta við öllum hliðum samfélagsins. Vímuefni stefna mannauði í voða, grafa undan hagvexti, veikja innviði samfélagsins og eru gríðarlegt byrði á heilbrigðiskerfinu. Þetta frumvarp opnar gáttir fyrir aukið magn og úrval vímuefna og ýtir undir aukna neyslu vegna aukins framboðs. Ég er þess vegna alfarið á móti auknu aðgengi að vímuefnum og hvet þig Svandís Svavarsdóttir að leggja ekki fram þetta frumvarp eða önnur í þessa átt.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-52/2021: Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 65/1974, um ávana- og fíkniefni (afglæpavæðing neysluskammta) · Alviti