Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-118/2021 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um sorgarleyfi

Félagsmálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um sorgarleyfi.

Meginefni frumvarpsins er að tryggja foreldrum á innlendum vinnumarkaði, sem verða fyrir barnsmissi, sorgarleyfi í allt að sex mánuði sem og greiðslur til að koma til móts við tekjutap á umræddu tímabili í tengslum við fjarveru frá vinnumarkaði í kjölfar barnsmissis. Meginefni frumvarpsins er jafnframt að tryggja foreldrum utan vinnumarkaðar eða í minna en 25% starfshlutfalli, þar á meðal námsmönnum, sorgarstyrk verði þeir fyrir barnsmissi. Í samræmi við markmið frumvarpsins er hugtakið foreldri skýrt með rýmri hætti í frumvarpinu en samkvæmt almennri málvenju og samkvæmt því sem almennt gerist í löggjöf hér á landi. Með frumvarpi þessu er leitast við að viðurkenna áhrif sorgar vegna barnsmissis á barnafjölskylduna í heild.

S-118/2021· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. maí 2021 – 4. jún. 2021· 9 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um sorgarleyfi

Félagsmálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um sorgarleyfi.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-118/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 4. júní 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 9 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 593)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (23. ágúst 2022)

Drög að frumvarpinu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda frá og með 21. maí 2021 og var veittur frestur til og með 4. júní 2021 til að veita umsagnir um frumvarpið (mál nr. S-118/2021). Alls bárust níu umsagnir um frumvarpið með framangreindum hætti og var litið til þeirra við endanlegan frágang frumvarpsins eftir því sem unnt þótti. Máli þessu lauk með framlagningu frumvarps á 152. löggjafarþingi, þar sem það var samþykkt.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (9)
  • #1Birgir Sigmundsson
    Undirritaður mælir eindregið með því að þetta mál nái fram að ganga og verði að lögum. Tvisvar sinnum höfum við hjónin orðið fyrir þeirri sáru reynslu að missa barn, í báðum tilvikum fáum dögum eftir fæðingu. Það er langt um liðið, því fyrra barnið okkar misstum við 1975, aðeins 15 daga gamalt - en síðara barnið misstum við 1979, aðeins 4ra daga gamalt. Á þessum árum var ekki annað í boði en halda áfram daglegu lífi, þ.m.t. að mæta til vinnu, hvað sem liði persónulegum erfiðleikum - og reyndar datt engum neitt annað í hug. Sjálfur mætti ég til vinnu án nokkurrar “frítöku”, ef frá er ta… Lesa alla

    Undirritaður mælir eindregið með því að þetta mál nái fram að ganga og verði að lögum. Tvisvar sinnum höfum við hjónin orðið fyrir þeirri sáru reynslu að missa barn, í báðum tilvikum fáum dögum eftir fæðingu. Það er langt um liðið, því fyrra barnið okkar misstum við 1975, aðeins 15 daga gamalt - en síðara barnið misstum við 1979, aðeins 4ra daga gamalt. Á þessum árum var ekki annað í boði en halda áfram daglegu lífi, þ.m.t. að mæta til vinnu, hvað sem liði persónulegum erfiðleikum - og reyndar datt engum neitt annað í hug. Sjálfur mætti ég til vinnu án nokkurrar “frítöku”, ef frá er talinn einn dagur í tvígang, til að jarða börnin mín. Konan mín fór í keisaraskurð í báðum tilvikum og hennar eina “frí”, eftir að missa nýfædd börnin sín, var sá tími sem það tók hana að jafna sig líkamlega eftir keisaraskurðinn. Á þessum árum var heldur ekki um að ræða neinskonar áfallahjálp, frá öðrum en nánustu fjölskyldu. Ekki hafði neinn úr “kerfinu” samband, enda tíðkaðist slíkt ekki, sem hefur þó vonandi breyst mikið á síðari árum. Enn í dag höfum við ekki unnið að öllu leyti úr þessum áföllum, þó liðin séu 42 og 46 ár - en lært að lifa með þessu. Fyrstu vikurnar og mánuðirnir eftir að við misstum börnin okkar, var erfiðasti tíminn, því það að halda áfram daglegu lífi, mæta til vinnu og vera “eðlileg” - var stundum skelfilega erfitt. Af þessum sökum fögnum við þessu frumvarpi og vitum af biturri reynslu, að þetta mun auðvelda þeim sem verða fyrir áföllum af þessu tagi, að ná áttum og öðlast þrek til að halda lífi sínu áfram.

  • #2Krabbameinsfélag Íslands
    Krabbameinsfélagið fagnar framkomnu frumvarpi til laga um sorgarleyfi. Frumvarpið er mjög gott fyrsta skref í átt að því að viðurkenna mikilvægi sorgarúrvinnslu og það álag sem því fylgir fyrir fjölskyldur að missa barn. Fyrir utan mikilvægi sorgarúrvinnslu foreldranna er eitt af markmiðum laganna að auðvelda foreldrum að styðja við eftirlifandi systkini við að aðlagast breyttum aðstæðum. Frumvarpið er gott fyrsta skref en nauðsynlegt er að það nái líka til fleiri fjölskyldna. Krabbameinsfélagið bendir á að á hverju ári missa um 100 börn foreldri hér á landi. Um 40% foreldranna deyja úr il… Lesa alla

    Krabbameinsfélagið fagnar framkomnu frumvarpi til laga um sorgarleyfi. Frumvarpið er mjög gott fyrsta skref í átt að því að viðurkenna mikilvægi sorgarúrvinnslu og það álag sem því fylgir fyrir fjölskyldur að missa barn. Fyrir utan mikilvægi sorgarúrvinnslu foreldranna er eitt af markmiðum laganna að auðvelda foreldrum að styðja við eftirlifandi systkini við að aðlagast breyttum aðstæðum. Frumvarpið er gott fyrsta skref en nauðsynlegt er að það nái líka til fleiri fjölskyldna. Krabbameinsfélagið bendir á að á hverju ári missa um 100 börn foreldri hér á landi. Um 40% foreldranna deyja úr illkynja sjúkdómum. Sorgarleyfi fyrir eftirlifandi foreldra, meðal annars til að styðja við börnin, getur skipt sköpum. Fulltrúar Krabbameinsfélagsins veita fúslega frekari upplýsingar varðandi þessi mál. Fyrir hönd Krabbameinsfélags Íslands Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri

  • #3Sorgarmiðstöð, félagasamtök

    Sorgarmiðstöð fagnar fram komnu frumvarpi til laga um sorgarleyfi og hvetur til þess að það verði samþykkt sem lög frá Alþingi. Frumvarpið boðar góða réttarbót fyrir foreldra sem missa börn. Verði það að lögum fæst einnig mikilvæg staðfesting á vægi sorgarúrvinnslu fyrir heilsu og velferð aðstandenda.  Sorgarmiðstöð hvetur til þess að jafnhliða verði hafinn undirbúningur að næsta skrefi sem yrði frumvarp til breytinga á lögum um sorgarleyfi, með það að markmiði að færa einstaklingum sem missa maka frá ungum börnum, sambærilega réttarbót. Sjá nánar í fylgiskjali

  • #4Landssamtökin Þroskahjálp

    Sjá umsögn í viðhengi

  • #5Alþýðusamband Íslands

    Meðfylgjandi er umsögn ASÍ

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-118/2021: Drög að frumvarpi til laga um sorgarleyfi · Alviti