Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
819 mál · sótt 28. október 2026
- Komið til AlþingisS-68/2021· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. mar. 2021 – 16. mar. 2021· 1 umsögn
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002 (innleiðing evrópskra gerða um fjármálafyrirtæki og undanþága frá ákvæðum um endurbótaáætlanir)
Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki.
- Komið til AlþingisS-66/2021· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. mar. 2021 – 12. mar. 2021· 9 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun (Ferðatryggingasjóður)
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun, nr. 95/2018 (Ferðatryggingasjóður). Einnig eru til samráðs drög að reglugerð um Ferðatryggingasjóð.
- Komið til AlþingisS-65/2021· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. mar. 2021 – 15. mar. 2021· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um ríkisábyrgðir og lánasýslu ríkisins
Áform um endurskoðun á lagaramma ríkisábyrgðir og endurlána til að tryggja skýrari umgjörð og markvissari framkvæmd þessara viðfangsefna. Jafnframt þarf að aðlaga núgildandi reglur að lögum um opinber fjármál.
- Komið til AlþingisS-61/2021· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. feb. 2021 – 8. mar. 2021· 1 umsögn
Kosningar til Alþingis
Með frumvarpinu er lagt til að unnt verði, með rafrænum hætti, að safna meðmælum með framboðum, senda beiðni úthlutun listabókstafs og senda ýmsar tilkynningar er varða framboð rafrænt. Þá er lagt til að unnt verði að gefa þeim sem verða í sóttkví eða einangrun vegna Covid 19 möguleika á að neyta kosningaréttar síns auk breytinga á heitum sveitarfélaga vegna sameiningar sveitarfélaga á Austurlandi.
- Komið til AlþingisS-57/2021· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. feb. 2021 – 8. mar. 2021· 3 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna (fjölgun mismununarþátta), nr. 85/2018
Lagt er til að við lög nr. 85/2018 um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna verði bætt við mismununarþáttunum trú, lífsskoðun, fötlun, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum og kyntjáningu.
- Komið til AlþingisS-56/2021· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. feb. 2021 – 4. mar. 2021· 6 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni (iðnaðarhampur)
Óskað er eftir umsögnum vegna draga að frumvarpi um breytinga á lögum nr. 65/1974 er snerta innflutning og ræktun iðnaðarhamps.
- Komið til AlþingisS-55/2021· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. feb. 2021 – 9. mar. 2021· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og menningarmála (öflun sakavottorðs)
Kveðið er á um breytingar á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og mennningarmálaráðuneytis og snúa þær allar að því að lagaákvæðum um öflun sakavottorðs við og eftir ráðningu.
- Komið til AlþingisS-54/2021· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. feb. 2021 – 9. mar. 2021· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um grunnskóla nr. 91/2008, og lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008, er varða fagráð eineltismála
Lagðar eru til breytingar á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, og lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008, er varða fagráð eineltismála.
- Komið til AlþingisS-53/2021· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. feb. 2021 – 5. mar. 2021· 1 umsögn
Drög að frumvarpi til breytinga á einkaleyfalögum, nr. 17/1991, (undanþága frá viðbótarvernd)
Með frumvarpinu er stefnt að lögfestingu undanþágu til framleiðslu og útflutnings lyfja, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, meðan svokallað viðbótarvottorð (SPC) er enn í gildi.
- Komið til AlþingisS-52/2021· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. feb. 2021 – 1. mar. 2021· 16 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 65/1974, um ávana- og fíkniefni (afglæpavæðing neysluskammta)
Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, um afglæpavæðingu neysluskammta.
- Komið til AlþingisS-51/2021· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. feb. 2021 – 3. mar. 2021· 14 umsagnir
Frumvarp til laga um áhafnir skipa
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um áhafnir skipa. Með frumvarpinu er gerð tillaga um ný heildarlög um áhafnir íslenskra skipa. Er markmiðið að einfalda löggjöfina um menntun og þjálfun, öryggisfræðslu, skírteini, lögskráningu, lágmarksmönnun, vinnu- og hvíldartíma, læknisvottorð, heilsu- og tryggingavernd, orlof, heimferðir, vinnuskilyrði o.fl.
- Komið til AlþingisS-46/2021· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. feb. 2021 – 4. mar. 2021· 1 umsögn
Brottfall laga um vísitölu byggingarkostnaðar
Í frumvarpinu felst að sérlög um vísitölu byggingarkostnaðar eru felld úr gildi enda eru lög um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð, nr. 163/2007, nægjanleg.
- Komið til AlþingisS-48/2021· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. feb. 2021 – 1. mar. 2021· 4 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á hjúskaparlögum nr. 31/1993
Dómsmálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til breytinga á hjúskaparlögum nr. 31/1993 (aldur hjónaefna, könnunarmenn og lögsaga í málum til hjónaskilnaðar).
- Komið til AlþingisS-47/2021· Drög að stefnu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. feb. 2021 – 2. mar. 2021· 9 umsagnir
Drög að tillögu til þingsályktunar um lýðheilsustefnu til ársins 2030
Drög að tillögu til þingsályktunar um lýðheilsustefnu til ársins 2030.
- Komið til AlþingisS-44/2021· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. feb. 2021 – 1. mar. 2021· 2 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um verðbréfasjóði
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til innleiðingar á tilskipun 2014/91/ESB um verðbréfasjóði (UCITS) og tilskipun 2010/78/ESB að því er varðar verðbréfasjóði (Omnibus I).
- Komið til AlþingisS-43/2021· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. feb. 2021 – 26. feb. 2021· 8 umsagnir
Frumvarp til laga um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónustu við flugumferð
Ný heildstæð lög um rekstur og uppbyggingu flugvalla og flugleiðsöguþjónustu. Frumvarpið felur í sér einföldun regluverks og er ætlað að draga fram verkefni stjórnvalda á þessu sviði með mun skýrari hætti en í gildandi lögum.
- Komið til AlþingisS-40/2021· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. feb. 2021 – 23. feb. 2021· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum á vátryggingamarkaði og bankamarkaði
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum á vátryggingamarkaði og bankamarkaði.
- Komið til AlþingisS-37/2021· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. feb. 2021 – 23. feb. 2021· 9 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um loftslagsmál nr. 70/2012 (markmið um kolefnishlutleysi).
Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði markmið um að ná kolefnishlutleysi á Íslandi árið 2040.
- Komið til AlþingisS-39/2021· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. feb. 2021 – 24. feb. 2021· 11 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingar á barnaverndarlögum nr. 80/2002 (barnaverndarþjónusta, umdæmisráð barnaverndar, samþætting o.fl.
Félags- og barnamálaráðherra kynnir til umsagnar frumvarp til laga um breytingar á barnaverndarlögum nr. 80/2002. Frumvarpið felur í sér fyrri hluta heildarendurskoðunar barnaverndarlaga.
- Komið til AlþingisS-36/2021· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. feb. 2021 – 19. feb. 2021· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um lykilupplýsingaskjöl fyrir pakkaðar og vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir fyrir almenna fjárfesta.
Frumvarp til innleiðingar í íslenskan rétt á ákvæðum reglugerðar (ESB) 1286/2014 um lykilupplýsingaskjöl fyrir pakkaðar og vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir fyrir almenna fjárfesta (PRIIPS).
- Komið til AlþingisS-35/2021· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. feb. 2021 – 18. feb. 2021· 4 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008, og lögum um grunnskóla, nr. 91/2008 (fagráð eineltismála)
Hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti er að hefjast vinna sem snýr að því að styrkja lagalega umgjörð fagráðs eineltismála á grunn- og framhaldsskólastigi svo hún verði í samræmi við þá framkvæmd sem viðhöfð er núna hjá ráðinu.
- Komið til AlþingisS-30/2021· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. feb. 2021 – 23. feb. 2021· 14 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana
Lagt er til að sameina í eitt lög um mat á umhverfisáhrifum og lög um umhverfismat áætlana. Lögð er áhersla á að lögin verði aðgengilegri, málsmeðferð einfölduð og að aðkoma almennings og annarra hagsmunaaðila að ferlinu sé tryggð. Þá eru lagðir til einfaldaðir framkvæmdaflokkar og þeim fækkað úr þremur í tvo.
- Komið til AlþingisS-31/2021· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. feb. 2021 – 16. feb. 2021· 2 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og menningarmála (öflun sakavottorðs)
Mennta- og menningarmálaráðuneyti hyggst lögfesta heimild til að endurnýja vottorð, t.d. starfsmanna menntastofnana. Í dag er eingöngu heimild til að afla upplýsinga úr sakaskrá við ráðningu.
- Komið til AlþingisS-29/2021· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. jan. 2021 – 8. feb. 2021· 4 umsagnir
Almannavarnir
Núgildandi lög um almannavarnir tóku gildi í júní 2008 og hafa tekið litlum efnislegum breytingum síðan þá. Talsvert hefur reynt á gildandi lög og það fyrirkomulag sem kveðið er á um í lögunum þegar almannavarnarástand skapast og almannavarnarstigi er lýst yfir af ríkislögreglustjóra. Með frumvarpi þessu er leitast við að efla almannavarnir og skýra lagagrunn málaflokksins.
- Komið til AlþingisS-25/2021· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. jan. 2021 – 12. feb. 2021· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um opinberar framkvæmdir og fasteignaumsýslu ríkisins
Samkvæmt þingmálaskrá er stefnt að því að leggja fram frumvarp til laga um opinberar framkvæmdir og fasteignumsýslu ríkisins sem felur m.a. í sér heildarendurskoðun á núgildandi lögum um skipan opinberra framkvæmda.
- Komið til AlþingisS-24/2021· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jan. 2021 – 4. feb. 2021· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á almennum hegningarlögum (mansal)
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á 1. mgr. 227. gr. a er lúta að refsinæmi mansals, í þeim tilgangi að bæta enn frekar vernd þolenda brotanna og auðvelda málsókn á hendur þeim sem ábyrgir eru fyrir brotunum.
- Komið til AlþingisS-19/2021· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. jan. 2021 – 10. feb. 2021· 19 umsagnir
Drög að breytingu á lögum nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun (málmeðferð virkjunarkosta í vindorku)
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að breytingum á lögum nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun ásamt skilabréfi starfshóps þriggja ráðuneyta sem vann að tillögum um meðferð vindorku innan verndar- og orkunýtingaráætlunar.
- Komið til AlþingisS-17/2021· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. jan. 2021 – 4. feb. 2021· 3 umsagnir
Brottfall laga um vísitölu byggingarkostnaðar (lagasamræming)
Áformað er að fella úr gildi lög um vísitölu byggingarkostnaðar, nr. 42/1987, og að um mælingar á vísitölu byggingarkostnaðar fari í staðinn samkvæmt lögum um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð, nr. 163/2007.
- Komið til AlþingisS-15/2021· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. jan. 2021 – 31. jan. 2021· 25 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 (afglæpavæðing neysluskammta)
Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, um afglæpavæðingu neysluskammta. Frestur til að skila inn umsögnum er til og með 31. janúar 2021.
- Komið til AlþingisS-10/2021· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. jan. 2021 – 1. feb. 2021· 8 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 70/2012 um loftslagsmál (markmið um kolefnishlutleysi)
Markmið um kolefnishlutlaust Ísland árið 2040 verði lögfest
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)