Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-25/2021 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um opinberar framkvæmdir og fasteignaumsýslu ríkisins

Samkvæmt þingmálaskrá er stefnt að því að leggja fram frumvarp til laga um opinberar framkvæmdir og fasteignumsýslu ríkisins sem felur m.a. í sér heildarendurskoðun á núgildandi lögum um skipan opinberra framkvæmda.

Í fjármálaáætlun 2021-2025 kemur m.a. fram á málefnasviði 5.2, sem eignaumsýsla ríkisins heyrir undir, að áhersla sé lögð á markvissari nýtingu eigna og aukna fjárfestingu í samfélagslegum innviðum. Stefna og markmið hins opinbera á þessu sviði er að stuðla að betra verklagi og auka skilvirkni, hagkvæmni og gæði við framkvæmdir og umsýslu eigna hins opinbera. Mikilvægt er að tryggja faglega málsmeðferð við verklegar framkvæmdir og umsýslu eigna. Þörf er á að skerpa á lagaumhverfi þessara verkefna þannig að hlutverkaskipting milli aðila sé skýr og að unnið sé eftir skýrum ferlum einkum þegar kemur að ábyrgð, skýrslugerð og uppgjöri við lok framkvæmda og verkefna tengdum umsýslu fasteigna þannig að miðlægar upplýsingar liggi fyrir um hvernig fjármunum ríkisins sé varið. Einnig er þörf á að styrkja framkvæmd núgildandi laga um skipan opinberra framkvæmda og gera tiltekin ákvæði markvissari til að þau stuðli enn betur að hagkvæmni og aukinni gæðatryggingu í opinberum framkvæmdum. Auk þess skortir skýrari ramma utan um önnur verkefni sem tengjast fasteignaumsýslu ríkisins.

S-25/2021· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. jan. 2021 – 12. feb. 2021· 0 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um opinberar framkvæmdir og fasteignaumsýslu ríkisins

Samkvæmt þingmálaskrá er stefnt að því að leggja fram frumvarp til laga um opinberar framkvæmdir og fasteignumsýslu ríkisins sem felur m.a. í sér heildarendurskoðun á núgildandi lögum um skipan opinberra framkvæmda.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-25/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 12. febrúar 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 161)
Niðurstöður samráðs (25. febrúar 2021)

Engar athugasemdir bárust.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-25/2021: Áform um frumvarp til laga um opinberar framkvæmdir og fasteignaumsýslu ríkisins · Alviti