Drög að frumvarpi til laga um breytingu á hjúskaparlögum nr. 31/1993
Dómsmálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til breytinga á hjúskaparlögum nr. 31/1993 (aldur hjónaefna, könnunarmenn og lögsaga í málum til hjónaskilnaðar).
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-48/2021)
- Umsagnarfrestur hefst · til 1. mars 2021
- Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 646)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (26. nóvember 2021)
Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 25. mars 2021 en náði þá ekki fram að ganga. Frumvarpið verður lagt fram að nýju á 152. löggjafarþingi 2021-2022. Drög að frumvarpinu voru birt til umsagnar frá 17. febrúar til 1. mars 2021. Alls bárust fjórar umsagnir. Gerðar voru breytingar á frumvarpinu til þess að skýra efni frumvarpsins betur í nokkrum tilvikum þar sem talin var þörf á því með tilliti til tiltekinna athugasemda sem bárust.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
- #1Siðmennt,félag siðrænna húmanista á Íslandi
Hjálögð er umsögn Siðmenntar, félags siðrænna húmanista á Íslandi, um drög að frumvarpi til laga um breytingu á hjúskaparlögum. Fyrir hönd Siðmenntar, Inga Auðbjörg K. Straumland
- #2Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Umsögn Sýslumannafélags Íslands, dags. 26. febrúar 2021, um mál nr. 48/2021.
- #3Inga Hrund Gunnarsdóttir
Sjálfvirk rafræn hjúskaparvottorð. Í frumvarpinu kemur fram kostnaður sem verður til vegna starfsmanns sem þarf að sjá um könnun hjónavígsluskilyrða. Betra væri að leggja í fjárfestingu í forriti t.d. á island.is, sem myndi sjá sjálfkrafa um rafrænt vottorð fyrir fólk sem er með íslenskan ríkisborgararétt á leið í hjúskap með Íslendingi. Í langflestum tilfellum er hægt að sækja þessar upplýsingar (um hjúskap og þjóðerni) úr kerfum Þjóðskrár án þess að mannshöndin komi nálægt og færa svo upplýsingarnar í gátt sem sýslumenn og forstöðumenn trú- og lífsskoðunarfélaga fá svo aðgang að. Ég skil a… Lesa alla
Sjálfvirk rafræn hjúskaparvottorð. Í frumvarpinu kemur fram kostnaður sem verður til vegna starfsmanns sem þarf að sjá um könnun hjónavígsluskilyrða. Betra væri að leggja í fjárfestingu í forriti t.d. á island.is, sem myndi sjá sjálfkrafa um rafrænt vottorð fyrir fólk sem er með íslenskan ríkisborgararétt á leið í hjúskap með Íslendingi. Í langflestum tilfellum er hægt að sækja þessar upplýsingar (um hjúskap og þjóðerni) úr kerfum Þjóðskrár án þess að mannshöndin komi nálægt og færa svo upplýsingarnar í gátt sem sýslumenn og forstöðumenn trú- og lífsskoðunarfélaga fá svo aðgang að. Ég skil að það gæti þurft að kanna málin betur af annar eða báðir aðilar eru útlenskir, að þá þurfi starfsmaður að kanna málið. Þetta myndi t.d. leysa mál ef fólk vill ganga hratt í hjúskap t.d. ef annað þeirra er dauðvona og eftir að stofnkostnaður hefur verið greiddur ætti verð vottorðanna að lækka fyrir hinn almenna borgara.
- #4Þjóðskrá Íslands
Meðfylgjandi er umsögn Þjóðskrár Íslands við mál nr. 48/2021
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.