Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-43/2021 · Innviðaráðuneytið

Frumvarp til laga um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónustu við flugumferð

Ný heildstæð lög um rekstur og uppbyggingu flugvalla og flugleiðsöguþjónustu. Frumvarpið felur í sér einföldun regluverks og er ætlað að draga fram verkefni stjórnvalda á þessu sviði með mun skýrari hætti en í gildandi lögum.

Með frumvarpinu er lagt til að ný heildstæð lög um rekstur og uppbyggingu flugvalla og flugleiðsöguþjónustu komi í stað óskýrra og dreifðra lagaákvæða sem nú eru í gildi. Skort hefur í lögum skýr ákvæði um verkefni samgönguyfirvalda á þessu sviði og þau markmiðum sem stýra eiga för við framkvæmd þeirra. Er meginmarkmiðið að flugvellir landsins og þjónusta við flugumferð þjóni þörfum samfélagsins með skilvirkni, hagkvæmni og öryggi í fyrirrúmi í samræmi við stefnu stjórnvalda í samgöngumálum, eins og hún birtist m.a. í flugstefnu og samgönguáætlun. Í frumvarpinu er jafnframt kveðið á um brottfall úreltra laga og lagaákvæða á þessu sviði. Í dag eru í gildi þrenn lög um stofnun og starfsemi Isavia ohf. og verkefnin sem félagið annast fyrir hönd íslenska ríkisins; lög um stofnun hlutafélags um flugleiðsöguþjónustu og flugvallarekstur Flugmálastjórnar Íslands, nr. 102/2006, lög um stofnun opinbers hlutafélags um rekstur Keflavíkurflugvallar nr. 76/2008 og lög um samruna opinberu hlutafélaganna Flugstoða og Keflavíkurflugvallar nr. 153/2009. Nái frumvarpið fram að ganga falla þau á brott. Frumvarpið mun því fela í sér töluverða einföldun regluverks og jafnframt draga fram verkefni stjórnvalda á þessu sviði með mun skýrari hætti en í gildandi lögum. Það skal tekið fram að um almennar kröfur til starfrækslu flugvalla, rekstrarstjórnunar flugumferðar og veitingu flugleiðsöguþjónustu fer samkvæmt lögum um loftferðir, nr. 60/1998, og reglugerðum settum á grundvelli þeirra.

S-43/2021· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. feb. 2021 – 26. feb. 2021· 8 umsagnir

Frumvarp til laga um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónustu við flugumferð

Ný heildstæð lög um rekstur og uppbyggingu flugvalla og flugleiðsöguþjónustu. Frumvarpið felur í sér einföldun regluverks og er ætlað að draga fram verkefni stjórnvalda á þessu sviði með mun skýrari hætti en í gildandi lögum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-43/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 26. febrúar 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 702)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (14. september 2021)

Átta umsagnir bárust um frumvarpið, meðal annars frá Akureyrarbæ, Isavia, Verkfræðingafélagi Íslands, Samtökum ferðaþjónustunnar (SAF), Markaðsstofu Norðurlands og Sveitarfélaginu Hornafirði. Umsagnirnar gáfu tilefni til breytinga á frumvarpinu sbr. meðfylgjandi niðurstöðuskjal.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)
  • #1Gísli Sigurðsson

    Ég mæli með að Isavia verði opinber stofnun í stað ohf. Þau opinberu hlutafélög sem starfandi eru hafa að mínu mati og margra annarra verið til mikillar óþurftar í íslenskri stjórnsýslu.

  • #2Sigurður Ingi Jónsson

    Tryggja þarf í samningum milli ríkis og rekstraraðila að innviðum flugs sé viðhaldið, en ekki lokað og afskráðir til að spara smáaura. Einnig þarf að vinna gegn því að gríðarleg flæmi landsins verði óaðgengileg loftförum, svo sem í Vatnajökulsþjóðgarði og fyrirhuguðum miðhálendisþjóðgarði, þar sem lög um þessa þjóðgarða trompa lög um loftferðir, reglugerð um almannaflug, hvortveggja byggt á alþjóðasamningum, auk laga um náttúruvernd. Ég hvet þingheim til að skoða þessi mál í samhengi.

  • #3Matthildur Ásmundardóttir

    Meðfylgjandi er umsögn fyrir hönd Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Matthildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri

  • #4Markaðsstofa Norðurlands

    Meðfylgjandi er umsögn Markaðsstofu Norðurlands um frumvarpið.

  • #5Samtök ferðaþjónustunnar

    Ágæti viðtakandi, Í viðhengi er umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar um frumvarp til laga um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónustu við flugumferð. Með góðum kveðjum F.h. SAF Gunnar Valur Sveinsson

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-43/2021: Frumvarp til laga um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónustu við flugumferð · Alviti