Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 702. mál

Uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð

LagafrumvarpDagaði uppiFjárreiður ríkisinsSamgöngur

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 13. apr. 2021

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 151. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að flugvellir landsins og þjónusta við flugumferð þjóni þörfum samfélagsins á umhverfislega sjálfbæran hátt með skilvirkni, hagkvæmni og öryggi í fyrirrúmi í samræmi við stefnu stjórnvalda í samgöngumálum.

Lagt fram af Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
7. apríl 2021
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
1 ræða · 6 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 26. maí 2023

Markmiðið

Að flugvellir landsins og þjónusta við flugumferð þjóni þörfum samfélagsins á umhverfislega sjálfbæran hátt með skilvirkni, hagkvæmni og öryggi í fyrirrúmi í samræmi við stefnu stjórnvalda í samgöngumálum.

Hvað breytist

Lagt er til að sett verði heildstæð lög um uppbyggingu og rekstur flugvalla á Íslandi og rekstur flugumferðarþjónustu sem leysi af hólmi gildandi lagaumhverfi um starfsemi Isavia ohf. sem nú starfar á grundvelli þrennra laga. Gert er ráð fyrir töluverðri einföldun á regluverki og eru verkefni samgönguyfirvalda á þessum sviðum dregin fram með mun skýrari hætti en áður.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um stofnun hlutafélags um flugleiðsöguþjónustu og flugvallarekstur Flugmálastjórnar Íslands, nr. 102/2006, lög um stofnun opinbers hlutafélags um rekstur Keflavíkurflugvallar o.fl., nr. 76/2008, og lög um samruna opinberu hlutafélaganna Flugstoða og Keflavíkurflugvallar, nr. 153/2009.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir beinum áhrifum á ríkissjóð.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af
Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Umhverfis- og samgöngunefnd
sendi 2 umsagnabeiðnir · frestur 4. maí 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
2 aðilar
Isavia ohf., Samtök ferðaþjónustunnar · allar umsagnir
Umræða í þingsal
6 mín · 1 ræða
1 þingmaður tók til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir beinum áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-43/2021· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. feb. 2021 – 26. feb. 2021· 8 umsagnir

Frumvarp til laga um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónustu við flugumferð

Ný heildstæð lög um rekstur og uppbyggingu flugvalla og flugleiðsöguþjónustu. Frumvarpið felur í sér einföldun regluverks og er ætlað að draga fram verkefni stjórnvalda á þessu sviði með mun skýrari hætti en í gildandi lögum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-43/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 26. febrúar 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (14. september 2021)

Átta umsagnir bárust um frumvarpið, meðal annars frá Akureyrarbæ, Isavia, Verkfræðingafélagi Íslands, Samtökum ferðaþjónustunnar (SAF), Markaðsstofu Norðurlands og Sveitarfélaginu Hornafirði. Umsagnirnar gáfu tilefni til breytinga á frumvarpinu sbr. meðfylgjandi niðurstöðuskjal.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)
  • #1Gísli Sigurðsson

    Ég mæli með að Isavia verði opinber stofnun í stað ohf. Þau opinberu hlutafélög sem starfandi eru hafa að mínu mati og margra annarra verið til mikillar óþurftar í íslenskri stjórnsýslu.

  • #2Sigurður Ingi Jónsson

    Tryggja þarf í samningum milli ríkis og rekstraraðila að innviðum flugs sé viðhaldið, en ekki lokað og afskráðir til að spara smáaura. Einnig þarf að vinna gegn því að gríðarleg flæmi landsins verði óaðgengileg loftförum, svo sem í Vatnajökulsþjóðgarði og fyrirhuguðum miðhálendisþjóðgarði, þar sem lög um þessa þjóðgarða trompa lög um loftferðir, reglugerð um almannaflug, hvortveggja byggt á alþjóðasamningum, auk laga um náttúruvernd. Ég hvet þingheim til að skoða þessi mál í samhengi.

  • #3Matthildur Ásmundardóttir

    Meðfylgjandi er umsögn fyrir hönd Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Matthildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri

  • #4Markaðsstofa Norðurlands

    Meðfylgjandi er umsögn Markaðsstofu Norðurlands um frumvarpið.

  • #5Samtök ferðaþjónustunnar

    Ágæti viðtakandi, Í viðhengi er umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar um frumvarp til laga um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónustu við flugumferð. Með góðum kveðjum F.h. SAF Gunnar Valur Sveinsson

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    1 ræða · 6 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 4. maí 2021
    2 beiðnir um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1181Stjórnarfrumvarp7. apr. 2021Sigurður Ingi JóhannssonLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur13. apríl 2021 kl. 20:15
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ umhverfis- og samgöngunefnd13. apríl 2021 kl. 20:15
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

1 ræða · 6 mín
  • 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 6 mín

Umsagnir og erindi

2 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 2 umsagnabeiðnir 20. apr. 2021, frestur 4. maí 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Isavia ohf.umsögnOpna PDF
Samtök ferðaþjónustunnarumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.