Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
143 mál · sótt 27. október 2026
- Komið til AlþingisS-93/2022· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. maí 2022 – 20. jún. 2022· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sértryggð skuldabréf og fleiri lögum (sértryggð skuldabréf)
Áformað er að setja lög til að innleiða evrópska tilskipun og reglugerð um sértryggð skuldabréf.
- Ekki komið til AlþingisS-91/2022· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. maí 2022 – 15. júl. 2022· 8 umsagnir
Breyting á skaðabótalögum
Um er að ræða endurskoðun á ákvæðum skaðabótalaga um örorkumat. Markmiðið er að setja skýrar reglur um örorkumöt og hlutverk örorkunefndar og skapa traust um mat á varanlegum afleiðingum líkamstjóns.
Á þingmálaskrá ríkisstjórnar (153. þing)Samráðsgátt - Komið til AlþingisS-90/2022· Drög að stefnu· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. maí 2022 – 10. jún. 2022· 11 umsagnir
Tillaga til þingsályktunar um málstefnu íslensks táknmáls
Í drögum að þingsályktunartillögu um fyrstu opinberu málstefnuna um íslenskt táknmál er staða íslenska táknmálsins skýrð og er hún unnin í samræmi við drög að íslenskri málstefnu.
- Komið til AlþingisS-89/2022· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. maí 2022 – 12. maí 2022· 7 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 43/1999 um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi (hækkun endurgreiðsluhlutfalls vegna stærri verkefna)
Breyting á lögum nr. 43/1999 í samræmi við áherslur í stjórnarsáttmála um eflingu alþjóðlega samkeppnishæfs stuðningskerfis við framleiðslu kvikmynda- og sjónvarpsefnis.
- Komið til AlþingisS-76/2022· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. apr. 2022 – 11. apr. 2022· 2 umsagnir
Lagabreytingar vegna tilfærslu fasteignaskrár frá Þjóðskrá Íslands til Húsnæðis-og mannvirkjastofnunar (Fasteignaskrá)
Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum vegna tilfærslu fasteignaskrár frá Þjóðskrá Íslands til Húsnæðis-og mannvirkjastofnunar.
- Komið til AlþingisS-67/2022· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. mar. 2022 – 29. mar. 2022· 10 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt (fjöldatakmörkun rafmagnsbifreiða o.fl.)
Um er að ræða breytingu á lögum um virðisaukaskatt (fjöldatakmörkun rafmagnsbifreiða o.fl.).
- Komið til AlþingisS-66/2022· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. mar. 2022 – 27. mar. 2022· 20 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs og ákvæðum um tilgreinda séreign (lágmarkstryggingavernd o.fl.)
Fjármála- og efnahagsráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til breytinga á lögum nr. 129/1997 (lágmarkstryggingavernd o.fl.)
- Komið til AlþingisS-65/2022· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 18. mar. 2022 – 26. mar. 2022· 6 umsagnir
Frumvarp til laga um heimild Reykjavíkurborgar til að skipa nefnd til að kanna starfsemi vöggustofa
Frumvarpsdrögin miða að því að veita Reykjavíkurborg heimild til að setja á fót nefnd til að kanna starfsemi vöggustofa fyrir börn sem reknar voru í Reykjavík á síðustu öld.
- Komið til AlþingisS-61/2022· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. mar. 2022 – 24. mar. 2022· 2 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 82/2019 en tillögurnar fela í sér sérstök úrræði til að koma fram skiptum eða slitum á lögaðilum sem ekki hafa sinnt skráningarskyldu skv. lögunum
- Komið til AlþingisS-60/2022· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. mar. 2022 – 21. mar. 2022· 7 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, með síðari breytingum (gjaldmiðlaáhætta lífeyrissjóða, rafræn birting)
Fjármála- og efnahagsráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til breytinga á lögum nr. 129/1997 (gjaldmiðlaáhætta lífeyrissjóða, rafræn birting yfirlita).
- Komið til AlþingisS-59/2022· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 8. mar. 2022 – 21. mar. 2022· 6 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003
Innviðaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003.
- Komið til AlþingisS-58/2022· Annað· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. mar. 2022 – 22. mar. 2022· 28 umsagnir
Drög að tillögu til þingsályktunar um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030
Drög að stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 sem byggð er á fjórum kjarnaþáttum sett fram sem tillaga til þingsályktunar.
- Komið til AlþingisS-57/2022· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 8. mar. 2022 – 22. mar. 2022· 4 umsagnir
Drög að frumvarpi um breytingu á lögreglulögum nr. 90/1996 (afbrotvarnir og vopnaburður)
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögreglulögum til að að skýra og efla heimildir lögreglu til aðgerða í þágu afbrotavarna, einkum hvað varðar skipulagða brotastarfsemi og öryggi ríkisins.
- Komið til AlþingisS-56/2022· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. mar. 2022 – 18. mar. 2022· 0 umsagnir
Áform um breytingar á ýmsum lögum á fjármálamarkaði (innleiðing o.fl.)
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar áform um breytingar á ýmsum lögum á fjármálamarkaði ásamt frumvarpsdrögum.
- Komið til AlþingisS-55/2022· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 4. mar. 2022 – 18. mar. 2022· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003
Innviðaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi um breytingu á lögum um vaktstöð siglinga, nr. 61/2003. Frestur til að veita umsögn er til og með 18. mars 2022.
- Komið til AlþingisS-54/2022· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. mar. 2022 – 10. mar. 2022· 5 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum nr. 65/2003 (söluaðili til þrautavara)
Umhverfis- orku-, og loftslagsráðuneytið kynnir drög að frumvarpi er varðar útnefningu á söluaðila raforku til þrautavara
- Komið til AlþingisS-53/2022· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. mar. 2022 – 15. mar. 2022· 4 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011. (Íbúakosningar á vegum sveitarfélaga)
Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til breytinga á sveitarstjórnarlögum vegna íbúakosninga sveitarfélaga.
- Komið til AlþingisS-52/2022· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. mar. 2022 – 14. mar. 2022· 5 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs nr. 45/2019
Frá þeim tíma er lög um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs tóku gildi hefur starf samskiptaráðgjafans þróast með þeim hætti að þörf er á lagabreytingum og er frumvarp þetta til þess fallið.
- Komið til AlþingisS-51/2022· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. mar. 2022 – 13. mar. 2022· 2 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja o.fl. (fjármögnun skilasjóðs, iðgjöld og fyrirkomulag TIF)
Fjármála- og efnahagsráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til breytingar á lögum nr. 70/2020 og lögum nr. 98/1999 (fjármögnun skilasjóðs, iðgjöld og fyrirkomulag TIF)
- Komið til AlþingisS-50/2022· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. mar. 2022 – 14. mar. 2022· 5 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála og lögum um fullnustu refsinga (réttarstaða brotaþola, fatlaðs fólks og aðstandenda)
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á nokkrum ákvæðum laga með það að markmiði að styrkja réttarstöðu brotaþola, fatlaðra og aðstandenda látinna einstaklinga.
- Komið til AlþingisS-46/2022· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. feb. 2022 – 8. apr. 2022· 4 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til innleiðingar í íslenskan rétt á reglugerðum (ESB) 2019/2088 (SFDR) og 2020/852 (Taxonomy).
- Komið til AlþingisS-34/2022· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. feb. 2022 – 10. mar. 2022· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um peningamarkaðssjóði
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til innleiðingar í íslenskan rétt á reglugerð (ESB) 2017/1131 um peningamarkaðssjóði (MMF).
- Komið til AlþingisS-42/2022· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. feb. 2022 – 9. mar. 2022· 2 umsagnir
Breyting á lögum um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar
Drög að frumvarpi um niðurgreiðslur vegna umhverfisvænnar orkuöflunar .
- Ekki komið til AlþingisS-43/2022· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. feb. 2022 – 11. mar. 2022· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hlutafélög, nr. 2/1995, lögum um einkahlutafélög, nr. 138/1994, og lögum um ársreikninga, nr. 3/2006
Í frumvarpinu eru m.a. lagðar til breytingar á lögum um hlutafélög sem varða boðun hluthafafunda skráðra félaga og breytingar á lögum um ársreikninga sem varða skil ársreikninga á rafrænu formi.
- Ekki komið til AlþingisS-41/2022· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. feb. 2022 – 16. mar. 2022· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á kvikmyndalögum nr. 137/2001 (skilyrtir framleiðslustyrkir o.fl.)
Frumvarpið kveður á um breytingar á kvikmyndalögum í átt að nútímalegu fyrirkomulagi sjóðakerfis kvikmynda. Einnig er skerpt á nokkrum atriði um Kvikmyndasafn Íslands og Kvikmyndamiðstöð Íslands.
- Komið til AlþingisS-40/2022· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 22. feb. 2022 – 8. mar. 2022· 3 umsagnir
Breytingar á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018.
- Komið til AlþingisS-39/2022· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. feb. 2022 – 7. mar. 2022· 6 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun þannig að stækkanir á virkjunum sem þegar er í rekstri verði undanskildar ferli rammaáætlunar.
- Ekki komið til AlþingisS-36/2022· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. feb. 2022 – 28. feb. 2022· 16 umsagnir
Frumvarp til breytinga á lögum um sjúkraskrár nr. 55/2009 - Umsýsluumboð
Frumvarp til breytinga á lögum um sjúkraskrár nr. 55/2009 - Umsýsluumboð fyrir þá sem geta ekki veitt umboð sjálfir vegna andlegra og/eða líkamlegra skerðinga.
- Komið til AlþingisS-37/2022· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. feb. 2022 – 28. feb. 2022· 4 umsagnir
Bann við leit, rannsókn og vinnslu kolvetnis (olíu) í efnahagslögsögunni
Drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum vegna banns við leit, rannsókn og vinnslu kolvetnis (olíu) í efnahagslögsögunni.
- Komið til AlþingisS-33/2022· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. feb. 2022 – 28. feb. 2022· 1 umsögn
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu, snemmtækur stuðningur)
Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)