Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
109 mál · sótt 27. október 2026
- Komið til AlþingisS-159/2020· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. ágú. 2020 – 10. sep. 2020· 12 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum nr. 123/2010
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp til breytinga á skipulagslögum nr. 123/2010.
- Komið til AlþingisS-155/2020· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. ágú. 2020 – 7. sep. 2020· 3 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um áhafnir skipa
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp til laga um áhafnir skipa. Markmiðið með frumvarpinu er að yfirfara þær reglur sem gilda á þessu sviði, einfalda regluverkið og sameina þau lög sem gilda um áhafnir skipa í einn lagabálk.
- Komið til AlþingisS-153/2020· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. ágú. 2020 – 14. sep. 2020· 7 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum nr. 61/2013
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp til breytinga á hafnalögum nr. 61/2003. Innleidd verða ákvæði EES-gerðar um veitingu hafnarþjónustu og um gagnsæi í fjármálum hafna auk þess sem breyting verður gerð á gjaldtökuákvæði laganna til að skýra ákvæði um gjaldtöku tengd fiskeldi.
- Komið til AlþingisS-150/2020· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. ágú. 2020 – 10. sep. 2020· 1 umsögn
Frumvarp til laga um lykilupplýsingaskjöl fyrir pakkaðar og vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir fyrir almenna fjárfesta (PRIIP).
Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um lykilupplýsingaskjöl fyrir pakkaðar og vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir fyrir almenna fjárfesta til innleiðingar á reglugerð ESB 2014/1286.
- Komið til AlþingisS-149/2020· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. ágú. 2020 – 2. sep. 2020· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um kyrrsetningu, lögbann o.fl., nr. 31/1990, (lögbann á tjáningu).
Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á lögum um kyrrsetningu, lögbann o.fl., nr. 31/1990, í því augnamiði að styrkja tjáningarfrelsi með því að bæta umgjörð lögbannsmála á hendur fjölmiðlum.
- Komið til AlþingisS-144/2020· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. ágú. 2020 – 28. ágú. 2020· 5 umsagnir
Breyting á lögum um kynrænt sjálfræði (ódæmigerð kyneinkenni)
Samkvæmt bráðabirgðaákvæði I í lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019 var ráðherra falið að skipa starfshóp til að fjalla um málefni barna sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni, þar á meðal um heilbrigðisþjónustu við þau, og gera tillögur um úrbætur. Frumvarpið byggist á tillögu starfshópsins.
- Komið til AlþingisS-143/2020· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. ágú. 2020 – 28. ágú. 2020· 3 umsagnir
Breyting á ýmsum lögum vegna laga um kynrænt sjálfræði
Samkvæmt bráðabirgðaákvæði I í lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019 var ráðherra falið að skipa starfshóp til að fjalla um og gera tillögur um breytingar á öðrum lögum sem nauðsynlegar eru til að tryggja réttindi trans fólks og intersex fólks. Frumvarpið byggir á tillögum starfshópsins.
- Komið til AlþingisS-142/2020· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. ágú. 2020 – 28. ágú. 2020· 4 umsagnir
Breyting á lögum um kynrænt sjálfræði (aldursskráning)
Samkvæmt bráðabirgðaákvæði II í lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019 var kveðið á um skipan starfshóps sem var meðal annars falið að endurskoða aldursviðmið laganna til lækkunar vegna réttar til að breyta skráningu kyns. Frumvarpið byggir á tillögum starfshópsins.
- Komið til AlþingisS-141/2020· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. ágú. 2020 – 21. ágú. 2020· 2 umsagnir
Breyting á barnalögum (breytt kynskráning foreldra)
Samkvæmt bráðabirgðaákvæði I í lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019 var ráðherra falið að skipa starfshóp til að m.a. fjalla um og gera tillögur um breytingar á öðrum lögum sem nauðsynlegar eru til að tryggja réttindi trans fólks og intersex fólks. Frumvarpið byggir á tillögum starfshópsins.
- Komið til AlþingisS-139/2020· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. júl. 2020 – 16. ágú. 2020· 7 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 60/2013, um náttúruvernd (málsmeðferð o.fl.)
Umhverfis- og auðlindaráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 60/2013, um náttúruvernd (málsmeðferð o.fl.)
- Komið til AlþingisS-137/2020· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. júl. 2020 – 31. ágú. 2020· 1 umsögn
Áform um frumvarp til nýrra laga um greiðsluþjónustu (PSD2)
Fjármála-og efnhagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til nýrra laga um greiðsluþjónustu sem mun innleiða tilskipun (ESB) 2015/2366 (PSD2).
- Komið til AlþingisS-134/2020· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. júl. 2020 – 17. ágú. 2020· 2 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um nýtingu á landi í eigu ríkisins í atvinnuskyni
Áformað er að leggja fram frrumvarp til laga um nýtingu lands í eigu ríkisins í atvinnuskyni.
- Komið til AlþingisS-130/2020· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. júl. 2020 – 24. ágú. 2020· 82 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um til laga um vernd, velferð og veiðar villtra fugla og villtra spendýra.
****'' Ákveðið hefur verið að lengja samráð vegna þessa frumvarps um tvær vikur, þ.e. til mánudagsins 24. ágúst næstkomandi ****** Með frumvarpinu er lögð til heildarendurskoðun laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum
- Komið til AlþingisS-129/2020· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. júl. 2020 – 14. sep. 2020· 2 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um verðbréfasjóði
Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til nýrra heildarlaga um verðbréfasjóði sem mun innleiða tilskipun 2014/91/ESB (UCITS-tilskipunin).
- Komið til AlþingisS-127/2020· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. júl. 2020 – 7. ágú. 2020· 14 umsagnir
Frumvarp til laga um stjórnsýslu jafnréttismála
Frumvarp þetta gildir um stjórnsýslu á sviði jafnréttismála, m.a. um Jafnréttisstofu og kærunefnd jafnréttismála. Lagt fram samhliða frumvarpi forsætisráðherra til nýrra heildarlaga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
- Komið til AlþingisS-126/2020· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. júl. 2020 – 7. ágú. 2020· 12 umsagnir
Frumvarp til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
Ný heildarlög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. M.a. er lagt til að lögin taki til kvenna, karla og fólks með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá. Þá verði fjölþætt mismunun óheimil. Lagt fram samhliða frumvarpi um stjórnsýslu jafnréttismála þar sem fjallað er um Jafnréttisstofu og kærunefnd jafnréttismála.
- Komið til AlþingisS-106/2020· Áform um lagasetningu· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. maí 2020 – 24. jún. 2020· 22 umsagnir
Áform um samþættingu þjónustu í þágu barna
Undanfarin tvö ár hefur farið fram margþætt vinna við endurskoðun á félagslegri umgjörð um málefni barna. Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna síðar á árinu auk tveggja frumvarpa vegna breytinga á stofnanafyrirkomulagi á málefnasviði félagsmálaráðuneytisins. Frumvörpin eru hér kynnt sem áform um lagasetningu en samhliða er unnið að mati á áhrifum þeirra.
- Komið til AlþingisS-102/2020· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. maí 2020 – 19. jún. 2020· 4 umsagnir
Heildarendurskoðun laga um loftferðir
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra áformar að leggja fram nýtt frumvarp til laga um loftferðir o. fl. á næsta vetur. Um er að ræða frumvarp til nýrra heildarlaga.
- Komið til AlþingisS-90/2020· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. apr. 2020 – 14. maí 2020· 14 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um mannvirki, nr. 160/2010, með síðari breytingum (flokkun mannvirkja og eftirlit með mannvirkjagerð)
Frumvarpinu er ætlað að einfalda regluverk byggingarmála og gera það skilvirkara sem hefur í för með sér lægri byggingarkostnað, aukið framboð á íbúðum og bætta stöðu á húsnæðismarkaði.
- Komið til AlþingisS-79/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. mar. 2020 – 29. mar. 2020· 14 umsagnir
Frumvarp til laga um opinberan stuðning til fjárfestinga í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um opinberan stuðning til fjárfestinga í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum.
- Komið til AlþingisS-76/2020· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. mar. 2020 – 31. mar. 2020· 2 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938 (Félagsdómur).
Félags- og barnamálaráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi um breytingu á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á IV. kafla laganna, sem fjallar um Félagsdóm.
- Komið til AlþingisS-73/2020· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. mar. 2020 – 20. mar. 2020· 9 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun og lögum um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara (niðurlagning flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara).
Frumvarpið kveður á um brottfall laga um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara, nr. 103/1994, með síðari breytingum, og breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun, nr. 160/2011.
- Komið til AlþingisS-75/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. mar. 2020 – 15. apr. 2020· 4 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um viðskiptaleyndarmál.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um viðskiptaleyndarmál.
- Komið til AlþingisS-63/2020· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. mar. 2020 – 10. mar. 2020· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kyrrsetningu, lögbann o.fl. (lögbann á tjáningu)
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um kyrrsetningu, lögbann o.fl., nr. 31/1990, með síðari breytingum (lögbann á tjáningu).
- Komið til AlþingisS-61/2020· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. mar. 2020 – 17. mar. 2020· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar nr. 54/2006 með síðari breytingum (skilvirkari framkvæmd).
Félags- og barnamálaráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem þykja nauðsynlegar í því skyni að framkvæmd laganna verði skilvirkari.
- Komið til AlþingisS-59/2020· Drög að frumvarpi til laga· Utanríkisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. mar. 2020 – 16. mar. 2020· 3 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um utanríkisþjónustu Íslands, nr. 39/1971, með síðari breytingum (skipun embættismanna o.fl.)
Afmörkun fjölda sendiherraembætta og heimildir til skipunar í tímabundin verkefni, afnám undanþágu frá auglýsingaskyldu og víkkun heimilda til setningar sendifulltrúa í stjórnunarstöður og forstöðu sendiskrifstofa.
- Komið til AlþingisS-58/2020· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. feb. 2020 – 9. mar. 2020· 2 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka o.fl.
Með frumvarpinu er lögð til breyting á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og lögum um skráningu raunverulegra eigenda. Frumvarpinu er ætlað að ljúka við innleiðingu á 5. peningaþvættistilskipun ESB auk fleirri breytinga.
- Komið til AlþingisS-57/2020· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. feb. 2020 – 16. mar. 2020· 2 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um fjárhagslegar viðmiðanir
Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til að innleiða reglugerð (ESB) 2016/1011 um fjárhagslegar viðmiðanir.
- Komið til AlþingisS-54/2020· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. feb. 2020 – 11. mar. 2020· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 47/2010, um bætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007 (lokauppgjör)
Fyrirhugað er að leggja fram meðfylgjandi drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 47/2010, um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007 (lokauppgjör).
- Komið til AlþingisS-51/2020· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. feb. 2020 – 8. mar. 2020· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991 (atvinnurekstrarbann).
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991 (atvinnurekstrarbann). Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um gjaldþrotaskipti í því skyni að sporna við misnotkun á hlutafélagaforminu og kennitöluflakki í atvinnurekst
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)