Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938 (Félagsdómur).
Félags- og barnamálaráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi um breytingu á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á IV. kafla laganna, sem fjallar um Félagsdóm.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-76/2020)
- Umsagnarfrestur hefst · til 31. mars 2020
- Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 159)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (16. október 2020)
Tvær umsagnir bárust í samráðsgáttina þar sem komið var á framfæri athugasemdum við frumvarpið. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 9. október 2020.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
- #1Jón Sigurðsson
Sjá viðhengi.
- #2Lögmannafélag Íslands
Efni: Mál nr. 76/2020: frumvarp til laga um breytingu á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938. Laganefnd Lögmannafélags Íslands (LMFÍ) gerir eftirfarandi athugasemdir við ofangreint frumvarp: Í 1. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir því að Hæstiréttur Íslands tilnefni dómara í Félagsdóm. Þá er gert ráð fyrir því að bæði forseti- og varaforseti Félagsdóms séu tilnefndir af Hæstarétti og tveir varadómarar séu einnig tilnefndir af Hæstarétti. Þá séu þeir dómarar sem Hæstaréttur tilnefnir skipaðir ótímabundið af ráðherra, ólíkt öðrum dómurum Félagsdóms. Í fyrsta lagi, athugas… Lesa alla
Efni: Mál nr. 76/2020: frumvarp til laga um breytingu á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938. Laganefnd Lögmannafélags Íslands (LMFÍ) gerir eftirfarandi athugasemdir við ofangreint frumvarp: Í 1. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir því að Hæstiréttur Íslands tilnefni dómara í Félagsdóm. Þá er gert ráð fyrir því að bæði forseti- og varaforseti Félagsdóms séu tilnefndir af Hæstarétti og tveir varadómarar séu einnig tilnefndir af Hæstarétti. Þá séu þeir dómarar sem Hæstaréttur tilnefnir skipaðir ótímabundið af ráðherra, ólíkt öðrum dómurum Félagsdóms. Í fyrsta lagi, athugast að tilteknir dómar, kærur og ákvarðanir Félagsdóms sæta kæru til Hæstaréttar skv. 67. gr. l. nr. 80/1938. Öll afskipti Hæstaréttar, bein eða óbein, af skipan dómara við Félagsdóm, virðast þannig til þess fallin að draga úr ásýnd um sjálfstæði Félagsdóms gagnvart Hæstarétti. Þá virðist breytingin ekki vera til þess fallin að skapa þá ásýnd að Hæstiréttur sjálfur sé sjálfstæður og óvilhallur við úrlausn kærumála frá Félagsdómi. Fyrirkomulagið við skipan dómara við Félagsdóm virðist þannig vera andstætt markmiði frumvarpsins um að tryggja sjálfstæði dómstólsins. Í öðru lagi, er gert ráð fyrir því í frumvarpinu að þeir dómarar sem skipaðir eru við Félagsdóm samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar, séu embættisdómarar við Hæstarétt, Landsrétt eða héraðsdómstóla. Í athugasemdum við 1. gr. frumvarpsins segir að sú breyting sé lögð til „til að tryggja að meirihluti dómara við Félagsdóm í hverju máli uppfylli sömu hæfisskilyrði og gerð eru til dómara við almenna dómstóla hér á landi“. Þannig er m.a. gert ráð fyrir því að embættisdómarar við Hæstarétt Íslands, geti verið skipaðir í Félagsdóm, þrátt fyrir fyrrnefnda kærumöguleika til Hæstaréttar. Það fyrirkomulag að sömu dómarar geti starfað við báða dómstóla er af augljósum ástæðum einnig til þess fallið að draga úr ásýnd um sjálfstæði þeirra. Þá mætti ætla að það væri einfalt að tryggja að dómarar við Félagsdóm uppfylltu sömu hæfisskilyrði og embættisdómarar, án þess að gera það að beinu skilyrði hinir fyrrnefndu þurfi að koma úr röðum hinnar síðarnefndu. Um þetta vísast t.d. til orðalags 6. gr. laga um samningsbundna gerðardóma nr. 53/1989. Í þriðja lagi, virðist óheppilegt að þeir dómarar sem tilnefndir eru af Hæstarétti Íslands séu skipaðir ótímabundið í Félagsdóm, en aðrir dómarar séu einungis skipaðir til þriggja ára í senn. Augljós hætta virðist á því að vægi sjónarmiða hinna síðarnefndu verði minna en hinna fyrrnefndu í úrlausnum dómstólsins. Ætla má að æskilegt sé að gæta samræmis í reglum um skipunartíma dómara. Í fjórða lagi, hefur Félagsdómur m.a. það verkefni með höndum að skera úr um ágreiningsmál um vinnudeilur ríkisstarfsmanna. Óheppilegt kann að vera, út frá ásýnd dómstólsins, að binda í lög að 3 af 5 skipuðum dómurum við Félagsdóm séu ávallt starfsmenn ríkisins og komi úr röðum embættisdómara. Í fimmta lagi, er með ofangreindu skipunarfyrirkomulagi verið að takmarka möguleika annarra lögfræðinga en embættisdómara, t.d. lögmanna, prófessora eða fræðimanna, á því að taka sæti í Félagsdómi. Um getur verið að ræða lögfræðinga sem búa yfir sérmenntun á sviði vinnuréttar, hafa áratuga reynslu á sviðinu og uppfylla jafnframt hæfisskilyrði embættisdómara. Draga má í efa að embættisdómarar hafi slíka sérþekkingu á sviðinu umfram aðra sérfræðinga, að réttlætanlegt sé að þeir séu ávallt í meirihluta skipaðra dómara. Á það sérstaklega við þegar einfalt virðist að orða lagaákvæðið þannig að dómarar við Félagsdóm skuli uppfylla sömu hæfisskilyrði og embættisdómarar, sbr. 6. gr. l. nr. 53/1989. Laganefnd leggur skv. þessu til að frumvarpið verði skoðað betur. Virðingarfyllst, f.h. laganefndar LMFÍ Geir Gestsson, lögmaður
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.