Áform um frumvarp til nýrra laga um greiðsluþjónustu (PSD2)
Fjármála-og efnhagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til nýrra laga um greiðsluþjónustu sem mun innleiða tilskipun (ESB) 2015/2366 (PSD2).
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-137/2020)
- Umsagnarfrestur hefst · til 31. ágúst 2020
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 583)
Niðurstöður samráðs (24. september 2020)
Ein umsögn barst frá SFF og er hún til úrvinnslu í ráðuneytinu. Í umsögninni var óskað eftir að haghafar fái góðan tíma til að kynna sér drög að frumvarpi áður en það verður lagt fram á Alþingi. Verður brugðist við ábendingunni með því að þegar frumvarpið verður sett í samráðsgátt verði lengri tími en 2 vikur veittar til umsagnar. Ábendingum að haghafar þurfi lengri tíma a.m.k. til 1. janúar 2022 til að ljúka vinnu við skjölun á tæknikröfum fyrir netskilafleti í stað 1. júlí 2021 er hún til úrvinnslu í ráðuneytinu og stefnt að því að kynna niðurstöðu hennar í frumvarpi í samráðsgátt í október.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #1Jóna Björk Guðnadóttir
Umsögn þessi er send fyrir hönd Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF). SFF þakka fyrir tækifærið til að veita umsögn um málið en PSD2 hefur mikil áhrif á starfsumhverfi fjármálafyrirtækja. Áherslur SFF varðandi áformin sem hér eru birt eru eftirfarandi: 1. SFF leggja áherslu á að haghafar fái góðan tíma til að kynna sér drög að frumvarpi áður en það verður lagt fram á Alþingi. 2. Áformin gera ráð fyrir að greiðsluþjónustuveitendur þurfi að hafa lokið fyrir 1. júlí 2021 vinnu við skjölun á tæknikröfum fyrir netskilafleti (e. documentation of Technical specifiation of interfaces) og uppsetningu… Lesa alla
Umsögn þessi er send fyrir hönd Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF). SFF þakka fyrir tækifærið til að veita umsögn um málið en PSD2 hefur mikil áhrif á starfsumhverfi fjármálafyrirtækja. Áherslur SFF varðandi áformin sem hér eru birt eru eftirfarandi: 1. SFF leggja áherslu á að haghafar fái góðan tíma til að kynna sér drög að frumvarpi áður en það verður lagt fram á Alþingi. 2. Áformin gera ráð fyrir að greiðsluþjónustuveitendur þurfi að hafa lokið fyrir 1. júlí 2021 vinnu við skjölun á tæknikröfum fyrir netskilafleti (e. documentation of Technical specifiation of interfaces) og uppsetningu á prófunarumhverfi (e. testing facility including support for connection and functional testing). Þessi tímasetning er krefjandi fyrir greiðsluþjónustuveitendur. Þótt þeir myndu stefna að því að ljúka vinnunni fyrir þennan tíma er líklegt að í ljós komi að lengri tími verði nauðsynlegur. Því telja SFF ráðlegt að ákveða í upphafi lengri frest, a.m.k. til 1. janúar 2022, eða gera ráð fyrir að nauðsynlegt verði á fyrri hluta næsta árs að framlengja frestinn. 3. Æskilegt er að Fjármálaeftirlitið styðji við þá vinnu sem nefnd er í lið 2 hér að framan til þess að auka líkur á að niðurstaðan verði í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.