Drög að frumvarpi til laga um til laga um vernd, velferð og veiðar villtra fugla og villtra spendýra.
****'' Ákveðið hefur verið að lengja samráð vegna þessa frumvarps um tvær vikur, þ.e. til mánudagsins 24. ágúst næstkomandi ****** Með frumvarpinu er lögð til heildarendurskoðun laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-130/2020)
- Umsagnarfrestur hefst · til 24. ágúst 2020
- Umsagnarfresti lýkur · 82 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 368)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (27. september 2021)
Niðurstaða málsins i stuttu máli; Alls bárust 82 umsagnir í Samráðsgátt. Talsverðar breytingar voru gerðar á frumvarpinu í kjölfar umsagnanna. Í kaflanum um Samráð í greinargerð með frumvarpinu er gerð grein fyrir viðbrögðum við athugasemdum. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi vorið 2021 en varð ekki að lögum.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (82)
- #1Birgir Hrafn Sigurðsson
Hvað með bogveiði?
- #2Birgir Hrafn Sigurðsson
Varðandi • Umhverfisstofnun fái rýmri heimildir til að fela stofnunum eða félagasamtökum tiltekin afmörkuð verkefni eins og framkvæmd námskeiða, skotprófa o.s.frv. Nú veit ég ekki alveg hvenær síðasta hreindýraguideanámskeið var haldið en ég hef reynt að fylgjast með til að geta skráð mig en það virðist aldrei vera haldið. Hver ástæðan er fyrir því veit ég ekki, en ég myndi vilja setja í lög að með ákveðnum fjölda fólks væri hægt að knýja fram námskeið sem UST ber að sjá um. Ástæða þess að ég er að spá í þessu er sú að námskeiðið hefur ekki verið haldið síðan ég fékk skotvopnaleyfið, 2… Lesa alla
Varðandi • Umhverfisstofnun fái rýmri heimildir til að fela stofnunum eða félagasamtökum tiltekin afmörkuð verkefni eins og framkvæmd námskeiða, skotprófa o.s.frv. Nú veit ég ekki alveg hvenær síðasta hreindýraguideanámskeið var haldið en ég hef reynt að fylgjast með til að geta skráð mig en það virðist aldrei vera haldið. Hver ástæðan er fyrir því veit ég ekki, en ég myndi vilja setja í lög að með ákveðnum fjölda fólks væri hægt að knýja fram námskeið sem UST ber að sjá um. Ástæða þess að ég er að spá í þessu er sú að námskeiðið hefur ekki verið haldið síðan ég fékk skotvopnaleyfið, 2007. Ég hef rætt um þetta námskeið við marga veiðimenn og allir virðast vilja taka námskeiðið en enginn veit afhverju það er ekki haldið. Með þeim hætti væri hægt að mennta fólk af því sem það hefur áhuga á, samkeppni verður meiri og þekkingin týnist ekki í hóp fárra.
- #3Friðrik Theodórsson
Athugasemd um 10 gr: Lögin eru útvíkkuð mjög mikið bæði með því að ná yfir margfalt stærra svæði (2000m á sjó) auk þess sem þau gilda um fuglabjarg, fuglavarp og sellátur. „Enn fremur er óheimilt að hleypa af skoti á landi nær sömu stöðum en 200 m og á sjó nær en 2000 m.“ Þessi breyting næði augljóslega yfir gríðarlega stórt svæði, enda nefnið þið sjálf í mati á áhrifum um einstakar greinar á bls 35: „Erfitt er að átta sig á hvaða svæði geti fallið undir greinina enda geta t.d. mjög margir staðir á landinu fallið að einhverju marki undir hugtakið fuglabyggðir svo dæmi sé tekið. Gert er því r… Lesa alla
Athugasemd um 10 gr: Lögin eru útvíkkuð mjög mikið bæði með því að ná yfir margfalt stærra svæði (2000m á sjó) auk þess sem þau gilda um fuglabjarg, fuglavarp og sellátur. „Enn fremur er óheimilt að hleypa af skoti á landi nær sömu stöðum en 200 m og á sjó nær en 2000 m.“ Þessi breyting næði augljóslega yfir gríðarlega stórt svæði, enda nefnið þið sjálf í mati á áhrifum um einstakar greinar á bls 35: „Erfitt er að átta sig á hvaða svæði geti fallið undir greinina enda geta t.d. mjög margir staðir á landinu fallið að einhverju marki undir hugtakið fuglabyggðir svo dæmi sé tekið. Gert er því ráð fyrir að mikilvægustu fuglabyggðir, fuglabjörg og selalátur sem ákvæði þetta á að taka til verði talin upp og tilgreind í reglugerð.“ Mun þá 10 gr. laganna eingöngu gilda um svæði sem verða tilgreind nákvæmlega í reglugerðinni? Ég hef áhyggjur að þessu breyting á lögum sé óskýr og leitast sé við að víkka hana alltof mikið.
- #4Höskuldur Geir Erlingsson
Í lögum frá árinu 1915 er gert ráð fyrir að héra verði sleppt í íslenska náttúru. Hvers vegna hefur það aldrei verið gert? Ég er nokkuð viss um að haförninn færi af útrýmingalista ef héri væri á hans matseðli. Auk þess væri eitt dýr enn á veiðilista skotveðimanna. Reynsla er af sleppingu héra frá Færeyjum sem mætti skoða.
- #5Georg Bergþór Friðriksson
"Gerð stjórnunar- og verndaráætlana verði samvinnuverkefni Náttúrufræðistofnunar Íslands og Umhverfisstofnunar." - Þessi punktur hlýtur að þurfa betri umfjöllun, Umhverfisstofnun er stjórnsýslustofnun en það er Náttúrufræðistofnun alls ekki. NÍ mun eðlilega láta af hendi tillögur eða álit en stjórnunar- og verndaráætlanir sem slíkar geta varla og mega ekki vera á færi stofnana sem ekki eru skilgreindar sem stjórnsýslustofnanir. "Hlutverk stofnana ráðuneytisins sem fara með málefni villtra dýra verði betur skilgreint ásamt verkaskiptingu milli þeirra." Umhverfisstofnun er stjórnsýslustofnun… Lesa alla
"Gerð stjórnunar- og verndaráætlana verði samvinnuverkefni Náttúrufræðistofnunar Íslands og Umhverfisstofnunar." - Þessi punktur hlýtur að þurfa betri umfjöllun, Umhverfisstofnun er stjórnsýslustofnun en það er Náttúrufræðistofnun alls ekki. NÍ mun eðlilega láta af hendi tillögur eða álit en stjórnunar- og verndaráætlanir sem slíkar geta varla og mega ekki vera á færi stofnana sem ekki eru skilgreindar sem stjórnsýslustofnanir. "Hlutverk stofnana ráðuneytisins sem fara með málefni villtra dýra verði betur skilgreint ásamt verkaskiptingu milli þeirra." Umhverfisstofnun er stjórnsýslustofnun sú sem fer með málefni villtra dýra. Það þarf að skerpa skilin milli UST og þeirra stofnana sem hafa rannsóknahlutverk með höndum sbr. punktinn að ofan. Að rannsóknastofnun útbúi sjálf stjórnunaráætlanir fyrir sig sjálfa hlýtur að teljast óeðlilegt. "Veiðikortakerfið verður einfaldað og einnig látið ná yfir minkaveiðar, eggjatöku og hlunnindaveiðar." Veiðikortakerfið má gjarna einfalda en það hlýtur að blasa við að yfirgnæfandi hluti veiðimanna veiðir hvorki ref né mink. Það og miðað við hversu illa hefur gengið fyrir veiðimenn að fá niðurstöður úr rannsóknum á refum og minkum, sem þó hafa verið fjármagnaðar með fé úr veiðikortasjóði, þá er erfitt að réttlæta að minkar og refir eigi að vera inni í veiðikortakerfinu. Georg Bergþór Friðriksson Undirritaður er bæði líffræðingur og veiðimaður
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.