Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-54/2020 · Forsætisráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 47/2010, um bætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007 (lokauppgjör)

Fyrirhugað er að leggja fram meðfylgjandi drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 47/2010, um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007 (lokauppgjör).

Hér eru birt til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 47/2010 sem geri kleift að taka á málum fatlaðra barna sem vistuð voru á stofnunum sem ekki hafa þegar sætt könnun vistheimilanefndar samkvæmt lögum nr. 26/2007. Þannig sé lokið samfélagslegu uppgjöri vegna vistunar barna á stofnunum á vegum hins opinbera á árum áður og er jafnframt áformað að leggja til að felld verði brott lög nr. 26/2007, um skipan nefndar til að kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn. Í gildandi lögum er skilyrði þess að unnt sé að leggja fram kröfu um sanngirnisbætur að fyrir liggi skýrsla nefndar samkvæmt lögum nr. 26/2007 (vistheimilanefndar) eða önnur skýrsla sem ráðherra hefur heimilað að lögð verði til grundvallar kröfu um sanngirnisbætur, að áður fenginni umsögn vistheimilanefndar. Ekki er talin ástæða til að leggja í jafn ítarlegar og tímafrekar úttektir á þeim stofnunum og heimilum sem út af standa og í fyrri málum. Litið er svo á að nægjanleg vitneskja sé fyrir hendi um tíðaranda, viðhorf, uppbyggingu og starfsemi stofnana og því sem fór úrskeiðis eða betur mátti fara. Með skýrslum vistheimilanefndar hafi farið fram ákveðið uppgjör við fortíðina og skapast grundvöllur til að taka með aðgengilegri og einfaldari hætti en áður afstöðu til erinda frá þeim sem voru vistuð á barnsaldri á stofnunum fyrir fatlaða einstaklinga og telja sig hafa orðið fyrir illri meðferð og ofbeldi í þeirri vistun. Stefnt er að því að ljúka megi samfélagslegu uppgjöri vegna þeirra stofnana þar sem fötluð börn voru vistuð á árum áður með aðgengilegri og einfaldari hætti en gert hefur verið, sem gæti orðið til verulegra hagsbóta fyrir þessa einstaklinga þar sem unnt yrði að skoða og afgreiða mál þeirra á mun skemmri tíma en til þessa.

S-54/2020· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. feb. 2020 – 11. mar. 2020· 1 umsögn

Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 47/2010, um bætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007 (lokauppgjör)

Fyrirhugað er að leggja fram meðfylgjandi drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 47/2010, um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007 (lokauppgjör).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-54/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 11. mars 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 211)
Niðurstöður samráðs (4. september 2020)

Ein umsögn barst vegna málsins og leiddi hún ekki til breytinga á frumvarpsdrögunum. Fyrirhugað er að frumvarpið verði lagt fram á Alþingi á haustþingi 2020.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
  • #1Þroskahjálp,landssamtök
    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 47/2010, um bætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007. Landssamtökin Þroskahjálp fagna því að frumvarp þetta skuli hafa verið lagt fram til kynningar og samráðs. Samtökin hafa lengi barist fyrir því að fram fari nauðsynlegt og fullnægjandi uppgjör hvað varðar vistun fatlaðra barna. Inngangur. Í greinagerð með frumvarpinu kemur fram að tilefni og nauðsyn lagasetningar er að fram fari lokaupgjör sanngirnisbóta vegna sólahringsvistar fatlaðra barna á stofnunum sem reki… Lesa alla

    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 47/2010, um bætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007. Landssamtökin Þroskahjálp fagna því að frumvarp þetta skuli hafa verið lagt fram til kynningar og samráðs. Samtökin hafa lengi barist fyrir því að fram fari nauðsynlegt og fullnægjandi uppgjör hvað varðar vistun fatlaðra barna. Inngangur. Í greinagerð með frumvarpinu kemur fram að tilefni og nauðsyn lagasetningar er að fram fari lokaupgjör sanngirnisbóta vegna sólahringsvistar fatlaðra barna á stofnunum sem rekin voru á ábyrgð hins opinbera. Samkvæmt frumvarpinu eiga lögin að gilda til 31. desember 2023. Af framansögðu er ljóst að þessum lögum er einvörðungu ætlað að ná til ákveðins hóps og að bæta fyrir misgjörðir sem sá hópur varð fyrir. Í skýrslu vistheimilsnefndar um vistun barna á Kópavogshæli eru þær ályktanir dregnar að stjórnvöld hafi vanrækt að skapa skilyrði til að halda uppi lögbundnum kröfum um aðbúnað barna og af þeim sökum hafa skapast veruleg hætta á því að börn hafi þurft að þola illa meðferð, sem m.a. fólst í að börn voru vistuð með á fullorðnu fólki. Í skýrslunni kemur einnig fram að telja verði að hlutaðeigandi stjórnvöld og tilteknir yfirstjórnendur hafi vanrækt eftirlitsskyldur sínar. Vitheimilanefnd komst að eftirfarandi niðurstöðu í skýrslu sinni um aðstæður barna á öðrum vistheimilum en Kópavogshæli: Ekki er talin ástæða til að að leggja í jafnítarlegar og tímafrekar úttektir á þeim stofnunum sem út af standa og í fyrri málum. Litið er svo á að nægjanleg vitneskja sé fyrir hendi um tíðaranda, viðhorf, uppbyggingu og starfsemi stofnana og um það sem fór úrskeiðis eða betur mátti fara. Með skýrslu visheimilnefndar hafi farið fram ákveðið uppgjör við fortíðina. Sérstaða fatlaðra barna hvað varðar vistun er sú að þau börn bjuggu að jafnaði við þær aðstæður um lengri tíma og fátítt var að barn sem hafði verið vistað flyttist burt af vistheimili. Þau ólust þar upp í flestum tilvikum og héldu áfram að búa þar á fullorðinsárum þar sem tækifæri þeirra sem lögráða einstaklingar til að hefja sjálfstætt líf utan vistheimilis voru afar takmarkaðir. Þegar sanngirnisbætur voru greiddar þeim sem höfðu verið vistaðir á Kópavogshæli sem börn fór upphæð bótanna einvörðungu eftir tímalengd vistunar. Ekki var gerð nein tilraun til að sanreyna að skaði sem þeir einstaklingar höfðu orðið fyrir væri til kominn vegna illrar meðferðar eða ofbeldis. Ljóst er að miklum erfiðleikum er háð, m.a. vegna fötlunar viðkomandi einstaklinga, að sannreyna það. Markmið þessarar lagasetningar er, eins og segir í greinargerð með frumvarpinu, m.a. það að gætt verði „jafnræðis fyrir fatlað fólk sem var vistað á barnsaldri á Kópavogshæli og á öðrum sambærilegum stofnunum fyrir fötluð börn.“ Þar sem, eins og fram hefur komið, hér er verið að leggja fram lagafrumvarp sem nær til hóps sem um margt er ólíkur þeim hópi sem lög nr. 26/2007 áttu að uphaflega að ná til, er eðlilegt að í nýjum lögum verði gildissviði og skilyrðum fyrir greiðslu sanngirnisbóta breytt til samræmis við aðstæður þess hóps sem lögin eiga taka til samkvæmt frumvarpinu. Nokkrar athugasemdir varðandi einstakar greinar frumvarpsins. Með vísan til þess sem að fram er rakið er gerð athugasemd varðandi gildissvið laganna samkvæmt 1 gr. frumvarpsins þar sem kveðið er á um að greiðsla bóta miðist við að skaði sem barn hafi orðið fyrir við vistun sé til kominn vegna illrar meðferðar eða ofbeldis. Lagt er til að í stað þess sé kveðið á um að skaðinn sé til kominn vegna vanrækslu hvað varðar aðbúnað og ófullnægjandi eftirlits þannig að ekki var tryggt að komið væri í veg fyrir illa meðferð og ofbeldi. Gerð er athugasemd við 3. gr. frumvarpsins varðandi skilyrði sanngirnisbóta og er lagt til að greinin hljóði svo: Greiða skal sanngirnisbætur úr ríkissjóði á grundvelli laga þessara miðað við lengd þess tíma sem vistmaður dvaldist þar sem aðbúnaður var ófullnægjandi og skortur var á eftirliti til að koma í veg fyrir illa meðferð og varanlegan skaða af þeim sökum. Með varanlegum skaða er átt við varanlegar, neikvæðar líkamlegar, sálrænar eða félagslegar afleiðingar. Gerð er athugasemd við 1. mgr. 4. gr. varðandi fjárhæðir sanngirnisbóta. Lagt er til að 1. tl. hljóði svo: Við ákvörðun fjárhæðar sanngirnisbóta skal litið til tímalengdar vistunar. Lagt er til að 2. tl. 1. mgr. 4. gr. verði felldur niður. Lagt er til að 2. mgr. 9 gr. verði felld niður. Landssamtökin Þroskahjálp áskilja sé rétt til að koma frekari athugassmdum og ábendingum á framfæri varðandi frumvarpið á síðari stigum og þegar það verður til meðferðar á Alþingi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-54/2020: Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 47/2010, um bætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007 (lokauppgjör) · Alviti