Frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar nr. 54/2006 með síðari breytingum (skilvirkari framkvæmd).
Félags- og barnamálaráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem þykja nauðsynlegar í því skyni að framkvæmd laganna verði skilvirkari.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-61/2020)
- Umsagnarfrestur hefst · til 17. mars 2020
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 812)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (25. júní 2020)
Hinn 3. mars 2020 voru drög að frumvarpinu kynnt í opnu umsagnarferli í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is (mál nr. S-61/2020) þar sem almenningi gafst kostur á að koma á framfæri athugasemdum við drögin. Ein umsögn barst í gáttina þar sem lögð var til breyting á 36. gr. laganna. Munu þær athugasemdir sem þar koma fram koma til skoðunar við fyrirhugaða heildarendurskoðun laganna.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #1Valdimar Össurarson
Nauðsynlegt er, þegar nú eru gerðar breytingar á lögum nr 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, að sníða þá augljósu vankanta af lögunum sem nýlegir úrskurðir hafa leitt í ljós. Vil ég því koma eftirfarandi á framfæri við þá sem um þessa lagabreytingu fjalla: Hinn 21.febrúar sl féll úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 575/2019. Með honum er snúið við ákvörðun Vinnumálastofnunar sem byggir á óljósu ákvæði 36.gr laganna, sem lýtur að frádrætti frá atvinnuleysisbótum. Vinnumálastofnun túlkaði þetta óljósa ákvæði þannig að skerða skyldi atvinnuleysisbætur vegna makabóta sem hinn a… Lesa alla
Nauðsynlegt er, þegar nú eru gerðar breytingar á lögum nr 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, að sníða þá augljósu vankanta af lögunum sem nýlegir úrskurðir hafa leitt í ljós. Vil ég því koma eftirfarandi á framfæri við þá sem um þessa lagabreytingu fjalla: Hinn 21.febrúar sl féll úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 575/2019. Með honum er snúið við ákvörðun Vinnumálastofnunar sem byggir á óljósu ákvæði 36.gr laganna, sem lýtur að frádrætti frá atvinnuleysisbótum. Vinnumálastofnun túlkaði þetta óljósa ákvæði þannig að skerða skyldi atvinnuleysisbætur vegna makabóta sem hinn atvinnulausi þiggur hjá Tryggingastofnun ríkisins vegna umönnunar langveiks maka. Í niðurstöðum úrskuraðarnefndar segir m.a: „Vinnumálastofnun var því óheimilt að skerða atvinnuleysisbætur kæranda vegna þeirra“ (þ.e. makabótanna). Túlkun Vinnumálastofnunar á lögum um atvinnuleysisbætur er einatt bótaþeganum í óhag í öllum þeim atriðum sem lögin eru óljós. Stofnunin hefur auk þess komið upp mjög flóknu og tímafreku ferli kvartana; að því er virðist til þess eins að gera bótaþegum sem erfiðast fyrir með sínar kvartanir. Því er nauðsynlegt að lögin séu nægilega skýr til að vernda þá hagsmuni bótaþegans sem lögunum er ætlað að tryggja. Í þessum efnum tala ég af reynslu. Ég hef í áratug unnið að þróun og nýsköpun sem byggir á stuðningi samkeppnissjóða. Sá stuðningur hefur reynst stopull vegna stefnuleysis stjórnvalda í nýsköpunarmálum og ónógra framlaga til nýsköpunar. Því hef ég þurft að leita til atvinnuleysistryggingasjóðs þegar umsóknum er synjað. Jafnframt sinni ég langveikum maka og spara þannig þjóðfélaginu vistun hennar á stofnun. Fyrir það þigg ég lítilsháttar makabætur TR. Þessar bætur reyndi Vinnumálastofnun að nota sem átyllu til að svipta mig atvinnuleysisbótum, sem reyndar eru langt neðan þess sem stjórnvöld hafa skilgreint sem lágmarksframfærslu. Úrskurðarnefnd sneri þessu við skv ofangreindu, og vænti ég leiðréttingar VMST. Nauðsynlegt er, um leið og fyrirhugaðar breytingar eru gerðar á þessum lögum, að breyta 36.grein þeirra með tilliti til þessa úrskurðar. Augljósasta aðferðin til þess virðist vera viðbót við 2.málsgrein 36.gr, þar sem rætt er um að undanþegið skerðingu sé; „umönnunargreiðslur vegna veikinda eða fötlunar barns; styrkja úr sjúkrasjóðum; styrkja úr sjúkrasjóðum og styrkja úr opinberum sjóðum eða sambærilegum sjóðum sem hinn tryggði fær til þróunar eigin viðskiptahugmyndar“. Þessar greiðslur skulu ekki leiða til skerðingar atvinnuleysisbóta. Við þessa upptalningu þarf að bæta „bætur sem hinn tryggði fær vegna umönnunar maka eða sambýlings“. Ég tel að það ætti að nægja. Fram hefur komið að þessar lagabreytingar eru, a.m.k. öðrum þræði, hluti af ráðstöfunum stjórnvalda vegna covid-plágunnar sem nú herjar. Stjórnvöld hyggjast auk þess,gegnum Vinnumálastofnun, gera ráðstafanir til að tryggja kjör þeirra sem þurfa að minnka vinnuhlutfall sitt. Mikilvægt er að stjórnvöld um leið tryggi jafnræði þeirra sem hafa um langan tíma verið atvinnulausir, en svo virðist að þeir eigi nú að njóta lakari kjara. Ég skora á stjórnvöld að tryggja jafnræði í þeim efnum.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.