Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-57/2020 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um fjárhagslegar viðmiðanir

Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til að innleiða reglugerð (ESB) 2016/1011 um fjárhagslegar viðmiðanir.

Reglugerðin hefur að geyma reglur um gerð og notkun fjárhagslegra viðmiðana á borð við Libor sem liggja til grundvallar ýmsum samningum á sviði fjármálamarkaðar. Meðal annars er mælt fyrir um starfshætti aðila sem taka saman slíkar viðmiðanir, starfsleyfi og eftirlit. Gerð er ráð fyrir að reglugerðinni, með breytingum samkvæmt reglugerð (ESB) 2019/2089 sem varðar loftslagstengdar viðmiðanir, verði veitt lagagildi. Einnig er mælt fyrir um eftirlit og viðurlagaheimildir Fjármálaeftirlitsins og heimildir til setningar stjórnvaldsfyrirmæla. Fjármálaeftirlitið hefur til skoðunar hvort það leggi til að brot gegn tilgreindum ákvæðum reglugerðarinnar varði refsingu og ákvæði þar um kunna að bætast við frumvarpið.

S-57/2020· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. feb. 2020 – 16. mar. 2020· 2 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um fjárhagslegar viðmiðanir

Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til að innleiða reglugerð (ESB) 2016/1011 um fjárhagslegar viðmiðanir.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-57/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 16. mars 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 312)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (19. nóvember 2020)

Ráðherra lagði frumvarp um fjárhagslegar viðmiðanir fyrir Alþingi í nóvember 2020 (312. mál á 151. löggjafarþingi). Í 5. kafla greinargerðar með frumvarpinu er fjallað um umsagnir um frumvarpsdrög og viðbrögð við þeim.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-57/2020: Drög að frumvarpi til laga um fjárhagslegar viðmiðanir · Alviti