Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-63/2020 · Dómsmálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kyrrsetningu, lögbann o.fl. (lögbann á tjáningu)

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um kyrrsetningu, lögbann o.fl., nr. 31/1990, með síðari breytingum (lögbann á tjáningu).

Lögbann á miðlun fjölmiðla felur í sér fyrirfram takmörkun á tjáningarfrelsi sem gera verður sérstaklega ríkar kröfur til samkvæmt stjórnarskránni og mannréttindasáttmála Evrópu. Þar reynir jafnframt á mörk tjáningarfrelsis annars vegar og friðhelgis einkalífs hins vegar. Oft er vandséð hvort trygging geti mætt því tjóni sem af lögbanni getur hlotist, m.a. tjóni sem verður vegna þess að með því er komið í veg fyrir lýðræðislega umræðu þegar tjáning um málefni sem varðar almenning er fyrirfram takmörkuð svo sem í aðdraganda kosninga. Slíkt tjón verður þau tæpast metið til nánar tiltekinnar fjárhæðar og vandséð hver ætti slíka kröfu um greiðslu bóta. Hins vegar er lýðræðisleg umræða þar í húfi og því rétt að bregðast við. Í frumvarpinu er því að finna tillögur sem ætlað er að styrkja umgjörð lögbannsmála og að hraða málsmeðferðinnin eftir því sem kostur er, að gættum réttindum gerðarbeiðanda og gerðarþola við slíka gerð. Við mótun þeirra tillagna sem frumvarpið hefur að geyma hefur verið komið til móts við þau sjónarmið án þess að stefna í hættu þeirri málsmeðferð sem nú þegar er við lýði við bráðabirgðagerðir samkvæmt fyrrgreindum lögum. Með frumvarpinu er lagt til að bætt verði við ákvæði í lög um kyrrsetningu, lögbann o.fl. nr. 31/1990 til að skýra nánar málsmeðferð fyrir sýslumanni og einfalda hana. Er lagt til að þegar um er að ræða beiðni um lögbann við birtingu efnis skuli ætíð lögð fram trygging til bráðabirgða. Þá er lagt til að frestir við meðferð sýslumanns verði takmarkaðir eins og kostur er og einungis veittir í undantekningartilvikum. Þá er lagt til að staðfestingarmál í kjölfar lögbanns fari eftir reglum XIX. kafla laga nr. 90/1991 um meðferð einkamála (flýtimeðferð) eftir því sem við á. Auk þess eru lagðar til strangari bótareglur í þessum tegundum mála, og dómara heimilað að dæma bætur að álitum vegna þess tjóns sem varð við það að birting efnis var hindruð vegna lögbanns eða beiðni um það.

S-63/2020· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. mar. 2020 – 10. mar. 2020· 0 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kyrrsetningu, lögbann o.fl. (lögbann á tjáningu)

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um kyrrsetningu, lögbann o.fl., nr. 31/1990, með síðari breytingum (lögbann á tjáningu).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-63/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. mars 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 710)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (23. júní 2020)

Frumvarpið lagt fram á Alþingi 2. apríl 2020 https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=150&mnr=710

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-63/2020: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kyrrsetningu, lögbann o.fl. (lögbann á tjáningu) · Alviti