Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-129/2020 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um verðbréfasjóði

Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til nýrra heildarlaga um verðbréfasjóði sem mun innleiða tilskipun 2014/91/ESB (UCITS-tilskipunin).

Tilskipunin hefur m.a. að geyma reglur um vörsluaðila verðbréfasjóða, starfskjarastefnu rekstrarfélaga verðbréfasjóða og lágmarks valdheimildir eftirlitsaðila. Með áformuðu frumvarpi er einnig ætlunin að fara í heildarendurskoðun á lagaumhverfi rekstrarfélaga verðbréfasjóða. Þá er áformað að gera ákveðnar breytingar á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, fyrst og fremst að því er varðar starfskjarastefnu rekstraraðila sérhæfðra sjóða og notkun á hugtakinu fjárfestingarsjóður.

S-129/2020· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. júl. 2020 – 14. sep. 2020· 2 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um verðbréfasjóði

Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til nýrra heildarlaga um verðbréfasjóði sem mun innleiða tilskipun 2014/91/ESB (UCITS-tilskipunin).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-129/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 14. september 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 699)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (19. apríl 2021)

Tvær umsagnir bárust, frá Landssamtökum lífeyrissjóða og Samtökum fjármálafyrirtækja. Viðbrögð við umsögnunum koma fram í 6. kafla greinargerðar með drögum að frumvarpi sem voru birt í samráðsgátt stjórnvalda sem mál nr. S-44/2021.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-129/2020: Áform um frumvarp til laga um verðbréfasjóði · Alviti