Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-139/2020 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 60/2013, um náttúruvernd (málsmeðferð o.fl.)

Umhverfis- og auðlindaráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 60/2013, um náttúruvernd (málsmeðferð o.fl.)

Þar sem nokkur reynsla er komin á framkvæmd friðlýsinga í samræmi við þá málsmeðferð sem lýst er í 36. gr. og 38.- 40. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd, er með áformuðu frumvarpi ætlunin að leggja til að kynningarferli áformaðra friðlýsinga, sem ekki eru á náttúruminjaskrá, verði stytt. Jafnframt er áformað að tími sá sem ætlaður er til að kynna drög að friðlýsingarskilmálum verði styttur frá því sem hann er í dag. Þá er áformað að heimild ráðherra til að veita undanþágur frá ákvæðum friðlýsinga verði fluttar til Umhverfisstofnunar. Með því að færa undanþáguheimildir frá ákvæðum friðlýsingar til Umhverfisstofnunar skapast tækifæri til að fá ákvörðun endurskoðaða á stjórnsýslustigi. Einnig er áformað að ítrekuð verði sú skylda að kortleggja óbyggð víðerni og að bann við losun úrgangs verði rýmkað.

S-139/2020· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. júl. 2020 – 16. ágú. 2020· 7 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 60/2013, um náttúruvernd (málsmeðferð o.fl.)

Umhverfis- og auðlindaráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 60/2013, um náttúruvernd (málsmeðferð o.fl.)

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-139/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 16. ágúst 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 276)
Niðurstöður samráðs (17. september 2020)

Alls bárust sex umsagnir um áformin. Frumvarp var í kjölfarið unnið í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og auglýst til umsagnar í Samráðsgáttinni þann 3. september 2020. Sjá 5. kafla í greinargerð fyrir afstöðu ráðuneytisins til athugasemda sem bárust um áformin í máli nr. 169/2020.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-139/2020: Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 60/2013, um náttúruvernd (málsmeðferð o.fl.) · Alviti