Frumvarp til laga um breytingu á lögum um mannvirki, nr. 160/2010, með síðari breytingum (flokkun mannvirkja og eftirlit með mannvirkjagerð)
Frumvarpinu er ætlað að einfalda regluverk byggingarmála og gera það skilvirkara sem hefur í för með sér lægri byggingarkostnað, aukið framboð á íbúðum og bætta stöðu á húsnæðismarkaði.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-90/2020)
- Umsagnarfrestur hefst · til 14. maí 2020
- Umsagnarfresti lýkur · 14 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (17. september 2021)
Samráði um drögin að frumvarpinu er lokið. Alls bárust 14 umsagnir um frumvarpsdrögin. Tekið var tillit til athugasemda eftir því sem kostur var. Jákvæðar umsagnir bárust m.a. um styrkingu rafrænnar stjórnsýslu byggingarmála, einföldun byggingarleyfisferlis og eftirlits með innleiðingu flokkunar mannvirkja. Nokkrir umsagnaraðilar lýstu yfir áhyggjum af því að hverfa eigi frá því að byggja eftirlitskerfi byggingariðnaðarins á faggiltum skoðunarstofum. Þá voru frekari skýringar m.a. gerðar við 3. gr. og bráðabirgðaákvæði. Frumvarpið hefur nú verið samþykkt sem lög nr. 134/2020.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (14)
- #1Anna Margrét Tómasdóttir
Hafnarfjörður 13.05.2020 Undirrituð gerir athugasemd við Frumvarp til laga um breytingu á lögum um mannvirki nr. 160/2010 (flokkun mannvirkja og eftirlit með mannvirkjagerð) Ég geri athugasemd við breytingar í 3. gr. þar kemur fram í 3. málsl. 1. mgr. " við framkvæmd eftirlits, sem og við umsókn um löggildingar eða starfsleyfi….." 3 . gr. 5. mgr. 17. gr. laganna verður svohljóðandi: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur eftirlit með störfum löggiltra hönnuða, löggiltra iðnmeistara og byggingarstjóra með úttektum á gæðastjórnunarkerfum þeirra. Eftirlit fer fram með úrtaksskoð… Lesa alla
Hafnarfjörður 13.05.2020 Undirrituð gerir athugasemd við Frumvarp til laga um breytingu á lögum um mannvirki nr. 160/2010 (flokkun mannvirkja og eftirlit með mannvirkjagerð) Ég geri athugasemd við breytingar í 3. gr. þar kemur fram í 3. málsl. 1. mgr. " við framkvæmd eftirlits, sem og við umsókn um löggildingar eða starfsleyfi….." 3 . gr. 5. mgr. 17. gr. laganna verður svohljóðandi: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur eftirlit með störfum löggiltra hönnuða, löggiltra iðnmeistara og byggingarstjóra með úttektum á gæðastjórnunarkerfum þeirra. Eftirlit fer fram með úrtaksskoðunum auk þess sem heimilt er að framkvæma aukið eða tíðara eftirlit ef ítrekað koma fram athugasemdir við störf þeirra á grundvelli upplýsinga sem skráðar eru í rafræna byggingargátt sem og upplýsinga sem berast stofnuninni með öðrum hætti. Við framkvæmd eftirlits, sem og við umsókn um löggildingu eða starfsleyfi, eða endurnýjun þess, skulu eftirlitsskyldir aðilar afla og leggja fram úttektarskýrslu um gerð eða virkni gæðastjórnunarkerfis frá faggiltri skoðunarstofu eða vottunarstofu ef við á. Komi í ljós við eftirlit að gæðastjórnunarkerfi uppfylli ekki ákvæði laga þessara eða reglugerða settra samkvæmt þeim skal gefa eftirlitsskyldum aðila kost á að bæta úr því nema um alvarlegt brot sé að ræða. Um alvarleg og ítrekuð brot fer samkvæmt ákvæðum 57. gr. Heimilt er að kveða nánar á um tilhögun eftirlits í reglugerð. Bent skal á að ekki er krafa um gæðastjórnunarkerfi þegar sótt er um löggildingar hönnuða eða iðnmeistara samanber 26. gr. og 3. mgr. 32. gr í Mannvirkjalögum, svo það stenst ekki að krefja hönnuði og iðnmeistara um úttektarskýrslur þegar sótt er um löggildingu. Það er óæskilegt að tengja gæðastjórnunarkerfi við löggildingar. Löggildingar eru starfsréttindi sem þú aflar þér með námi og starfsreynslu. Í mörgum tilfellum er krafa um löggildingar í störf þar sem ekki er gerð krafa um gæðastjórnunarkerfi, td. í ýmis sérfræðistöf hjá ríki og borg. Einnig ef hönnuðir eða iðnmeistarar eru laumamenn þá vinna þeir undir gæðastjórnunarkerfi atvinnurekandans og þá er ekki þörf fyrir eigið gæðastjórnunarkerfi. Löggildir hönnuðir og iðnmeistarar vinna ýmis störf þar sem ekki er þörf fyrir gæðastjórnunarkerfi en gerð er krafa um löggildingu. Einnig geri ég athugasemd við orðalag í 9. gr. þar er talað um vandasama eða umfangsmikla framkvæmd og svo sérlega vandasamar framkvæmdir. Hver er munurinn á þessum framkvæmdum. Fróðlegt væri að fá skilgreiningu á mun milli vandasamra framkvæmda og sérlega vandasamra framkvæmda. 9. gr. 2. tölul. ákvæðis til bráðabirgða skal orðast svo: Leyfisveitanda er heimilt á eigin kostnað að útvista eftirliti við yfirferð séruppdrátta þegar um vandasama eða umfangsmikla framkvæmd er að ræða. Skoðunarmaður skal uppfylla skilyrði 21. gr. Sé um sérstaklega vandasama framkvæmd að ræða er leyfisveitanda heimilt að gera sérstakar kröfur til hæfis skoðunarmanna. Yfirferð skoðunarmanna er á ábyrgð leyfisveitanda og skal farið eftir ákvæðum 3. mgr. 17. gr. um framkvæmd skoðunar að því leyti sem við á. Byggingarfulltrúar og starfsmenn þeirra sem eru starfandi við gildistöku laga þessara skulu teljast uppfylla skilyrði a-c liðar 1. mgr. 21. gr. Virðingarfyllst, Anna Margrét Tómsdóttir
- #2BSI á Íslandi ehf
Hjálagt er umsögn BSI á Íslandi ehf vegna frumvarps um breytingu á lögum um mannvirki. Fyrir hönd BSI Árni H. Kristinsson Framkvæmdastjóri
- #3Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Umsögn frá Samiðn.
- #4Sjálfsbjörg landssamband hreyfihamlaðra
Umsögn Sjálfsbjargar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um mannvirki, nr. 160/2010, með síðari breytingum (flokkun mannvirkja og eftirlit með mannvirkjagerð) er í viðhengi. mbk Bergur Þorri Benjamínsson formaður Sjálfsbjargar lsh.
- #5Samtök atvinnulífsins
Góðan dag, Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins um málið. f.h. SA Heiðrún Björk Gísladóttir
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.