Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-79/2020 · Atvinnuvegaráðuneytið

Frumvarp til laga um opinberan stuðning til fjárfestinga í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um opinberan stuðning til fjárfestinga í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum.

Frumvarpið felur í sér að stofnaður verði snýr sjálfstæður sjóður í eigu ríkisins, Kría – Markáætlun um fjárfestingu í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum. Sjóðnum er ætlað að gegna því hlutverki að fjárfesta í öðrum sérhæfðum sjóðum sem fjárfesta í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum, svokölluðum venture capital sjóðum. Markmið frumvarpsins er að efla vöxt og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs með því að stuðla að virku fjármögnunarumhverfi fyrir sprota- og nýsköpunarfyrirtæki. Með frumvarpinu er hrint í framkvæmd aðgerðum í fjármálaáætlun 2020 – 2024 og Nýsköpunarstefnu fyrir Ísland til ársins 2030 – Nýsköpunarlandið Ísland. Í fjármálaáætluninni kemur fram að það sé eftirsóknarvert að stuðla að því að á Íslandi styrkist grundvöllur undir fjárfestingar í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum og að alls staðar þar sem tekist hefur að koma á fót slíkri starfsemi sem fjármagnar áhættusöm sprota- og nýsköpunarfyrirtæki hafi þurft umtalsverða aðkomu frá hinu opinbera. Í fjármálaáætlun er miðað við að fjárfestingarsjóðir í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum geti, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, óskað eftir mótframlagi frá stjórnvöldum og að tilgangurinn með slíkri aðkomu sé að stórauka aðgengi sprotafyrirtækja að áhættufjármagni á fyrstu stigum vaxtar. Í Nýsköpunarstefnu til ársins 2030 er sett fram það markmið að hér á landi verði byggt upp þroskað umhverfi fyrir nýsköpunarfjárfestingar og að sprota- og nýsköpunarfyrirtæki hafi aðgang að sérhæfðum fjárfestingarsjóðum fyrir nýsköpun á sprotastigi og á fyrstu stigum vaxtar. Það leiðir til öflugra atvinnulífs og eykur aðgengi fyrirtækja sem byggja á hugviti að fjármagni til vaxtar.

S-79/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. mar. 2020 – 29. mar. 2020· 14 umsagnir

Frumvarp til laga um opinberan stuðning til fjárfestinga í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um opinberan stuðning til fjárfestinga í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-79/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 29. mars 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 14 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 322)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (15. desember 2021)

Frumvarpið varð að lögum nr. 65/2020. Í samráðskafla greinargerðar frumvarpsins er að finna viðbrögð við umsögnum sem bárust í samráðinu. Umsagnirnar leiddu ekki til efnislegra breytinga á frumvarpinu.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (14)
  • #1Einar Gunnar Guðmundsson
    Um leið og ég þakka fyrir gott frumvarp vil ég koma tveimur ábendingum á framfæri. Tíðni stjórnarfunda Það verður takmarkandi fyrir fjárfestaumhverfið að stjórn Kríu hittist einungis einu sinni á ári til að taka ákvarðanir. Nær væri að hittast fjórum sinnum á ári, þó einungis ef sjóðnum hafa borist formleg erindi. Sjóðsstjórar vísisjóða þurfa einfaldlega meira öryggi í sínum rekstri og að þurfa að bíða nokkra mánuði getur haft úrslitaáhrif á það hvort sjóði verður komið á koppinn eða hvort hann nái ekki tilætlaðri stærð. Í grein 3 segir í efnisatriðum frumvarpsins: „…aðeins verður mögulegt… Lesa alla

    Um leið og ég þakka fyrir gott frumvarp vil ég koma tveimur ábendingum á framfæri. Tíðni stjórnarfunda Það verður takmarkandi fyrir fjárfestaumhverfið að stjórn Kríu hittist einungis einu sinni á ári til að taka ákvarðanir. Nær væri að hittast fjórum sinnum á ári, þó einungis ef sjóðnum hafa borist formleg erindi. Sjóðsstjórar vísisjóða þurfa einfaldlega meira öryggi í sínum rekstri og að þurfa að bíða nokkra mánuði getur haft úrslitaáhrif á það hvort sjóði verður komið á koppinn eða hvort hann nái ekki tilætlaðri stærð. Í grein 3 segir í efnisatriðum frumvarpsins: „…aðeins verður mögulegt að taka þátt í nýstofnuðum, lokuðum sjóðum. Sjóðirnir mega þannig ekki hafa hafið fjárfestingar en verða að hafa safnað skuldbindingum frá fjárfestum fyrir ákveðinni fjárhæð sem ákveðin verður í reglugerð en lagt er upp með að verði að lágmarki 4 milljarða kr. Þá mun hlutur Kríu aðeins geta numið allt að ákveðnu hlutfalli eignarhluta viðkomandi sjóðs og að ákveðinni hámarksupphæð.“ Fræðilega séð gæti nýr vísisjóður hafa lokað einum mánuði eftir að stjórn hittist síðast m.v. að fundur sé haldinn einu sinni á ári og kosið alla jafna að hefja fjárfestingar fljótlega í kjölfarið. Það orkar tvímælis að Kría eigi að styðja við bætt fjárfestinga- og frumkvöðlaumhverfi en í dæminu hér að ofan væri slíkur sjóður sjálfkrafa útilokaður. Því er mikilvægt að stjórn hittist allt að fjórum sinnum á ári, en einungis eftir þörfum hverju sinni, þ.e. hvort erindi hafa borist stjórn. Staðfesti á Íslandi Það getur verið skiljanlegt að núverandi drög miði við að vísisjóður hafi staðfesti á Íslandi til að vera gjaldgengur í mótframlag frá Kríu. Í því felst þó sú meining að sjóðurinn muni eða skuli eingöngu ætla sér að fjárfesta á Íslandi. Í raunheimi þarf það alls ekki að vera svo. Þannig getur það verið takmarkandi fyrir vísisjóð að þurfa að fjárfesta einvörðungu á Íslandi út frá ávöxtunarkröfu sjóðsins og smæð íslensks sprotaumhverfis. Tvö dæmi til útskýringar: a) Nýr sjóður tekur til starfa og hefur Norðurlöndin sem skilyrði fyrir fjárfestingarþátttöku í sprotafyrirtækjum. Stærð sjóðs er 10 milljarðar íslenskra króna. Sjóðurinn hefur ekki valið sér staðfesti en hefur yfirlýst markmið í fjárfestingaáætlun að fjárfesta ekki minna en 40% í íslenskum fyrirtækjum. Í þessu dæmi yrði slíkur sjóður útilokaður frá þátttöku Kríu nema að staðfesti yrði á Íslandi þó svo að önnur skilyrði séu uppfyllt, s.s. upphæð. b) Að minnsta kosti einn starfandi vísisjóður á Íslandi í dag horfir á Norðurlöndin sem sitt fjárfestingasvæði og hefur m.a. fjárfest í ekki-íslenskum fyrirtækjum. Önnur skilyrði eru uppfyllt, s.s. stærð og staðfesti. Í núverandi drögum er ekki skýrt hvort slíkur sjóður yrði gjaldgengur fyrir þátttöku Kríu. Þannig mæli ég með að ákvæði um staðfesti verði ekki endilega skilyrði heldur verði fjárfestingarþátttaka á Íslandi, t.d. miðað við upphæð, útgangspunkturinn. Kosturinn við það að hafa stærra fjárfestingarsvæði en einungis Ísland þýðir einfaldlega fleiri valkosti fyrir sjóðsstjóra og þ.a.l. ætti að auka líkurnar á „betri“ fjárfestingum. Fjárfestingarþátttaka í bæði innlendum og erlendum mun jafnframt auka við og styðja við frekari þroska fjárfestingarsamfélagsins. Að öðru leyti fagna ég þessum lögum og tel þau til mikilla hagsbóta fyrir íslenskt fjárfestingar- og nýsköpunarumhverfi. Virðingarfyllst, Einar Gunnar Guðmundsson

  • #2Háskóli Íslands
    Háskóli Íslands fagnar frumvarpi til laga um opinberan stuðning til fjárfestinga í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum og að settur verði að laggirnar sjóðurinn Kría – Markáætlun um fjárfestingu í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum. Háskóli Íslands er einn af lykilaðilum í nýsköpunarumhverfi Íslands. Rannsóknir úr háskólasamfélaginu eru yfirfærða til samfélagsins m.a. með samstarfi við rannsóknarstofnanir og atvinnulífið, nytjaleyfissamningum á einkaleyfum og stofnun sprotafyrirtækja. Það er vel þekkt að það er erfitt fyrir sprotafyrirtæki háskóla og rannsóknarstofnana að fá inn fjárfesta og f… Lesa alla

    Háskóli Íslands fagnar frumvarpi til laga um opinberan stuðning til fjárfestinga í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum og að settur verði að laggirnar sjóðurinn Kría – Markáætlun um fjárfestingu í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum. Háskóli Íslands er einn af lykilaðilum í nýsköpunarumhverfi Íslands. Rannsóknir úr háskólasamfélaginu eru yfirfærða til samfélagsins m.a. með samstarfi við rannsóknarstofnanir og atvinnulífið, nytjaleyfissamningum á einkaleyfum og stofnun sprotafyrirtækja. Það er vel þekkt að það er erfitt fyrir sprotafyrirtæki háskóla og rannsóknarstofnana að fá inn fjárfesta og fjármagn, þar sem akademískar rannsóknir eru taldar vera of snemma í þróunarferlinu eða of áhættusamar, þrátt fyrir mikilvægt samfélagslegt gildi. Er þetta vandamál m.a. viðurkennt af Evrópska fjárfestingarbankanum (EIF) sem hefur komið að stofnun sjóða sem fjárfesta í sprotafyrirtækjum sem byggja á akademískum rannsóknum. Háskóli Íslands telur mikilvægt að þeir fjármunir ríkisins sem nýttir verða til fjárfestingar í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum hér á landi skili sér einnig til sprotafyrirtækja sem byggja á tæknilega flóknum verkefnum og taka lengri tíma hvað varðar útgöngu. Þetta eru þau verkefni sem munu umbylta samfélaginu og mæta stóru áskorunum. Til að þetta geti gengið eftir þarf að tryggja í reglugerð um Kríu að þeir sjóðir sem fá fjármagn frá ríkinu fjárfesti í fjölbreyttum verkefnum (þ.m.t. háskólaverkefnum), ef að ekki verður settur á laggirnar sér sjóður til að fjárfesta í sprotafyrirtækjum frá háskólum og rannsóknarstofnunum hér á landi, að öðrum kosti er marksbresti sprotafyrirtækja úr háskóla- og rannsóknarsamfélaginu ekki mætt. Sé ekki gætt að þessu munu sjóðirnir fjárfesta í þeim verkefnum sem skila þeim sem mestum ávinningi á hvað skemmstum tíma, en undir slík verkefni falla t.d. upplýsingatækniverkefni í innviðauppbyggingu. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi þeirra verkefna sem spretta úr háskóla- og rannsóknarsamfélaginu en til staðar þarf að vera umhverfi sem styður þá ákvörðun að stofnað sé sprotafyrirtæki utan um verkefnið. Að öðrum kosti eru meiri líkur á að þekkingin fari úr landi og skili sér jú til samfélagsins en megin fjárhagslegur ávinningur af hagnýtingu hennar fari þá jafnframt úr landi. Virðingarfyllst, Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir, verkefnastjóri nýsköpunar hjá Háskóla Íslands

  • #3Verkfræðingafélag Íslands

    Meðfylgjandi er umsögn Verkfræðingafélags Íslands.

  • #4Auðna-Tæknitorg ehf.
    Umsögn um Frumvarp til laga um opinberan stuðning til fjárfestinga í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum Mál nr. 79/2020 Reykjavík 25.03.2020 Eins og fram kemur í skýringum við frumvarpið þarf umtalsverða aðkomu hins opinbera að fjármögnun áhættusamra sprota og nýsköpunarfyrirtækja eins og alsiða er í nágrannalöndum okkar austan hafs og vestan. Því ber að fagna að með Kríu sé verið að leggja til slíkan stuðning við fjármögnun sprota og nýsköpunar. Vakin er athygli á mikilvægi þess að því sé fylgt eftir að þessi aðgerð gagnist og stuðli að fjáfestingum í vísindalegri nýsköpun sem byggir… Lesa alla

    Umsögn um Frumvarp til laga um opinberan stuðning til fjárfestinga í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum Mál nr. 79/2020 Reykjavík 25.03.2020 Eins og fram kemur í skýringum við frumvarpið þarf umtalsverða aðkomu hins opinbera að fjármögnun áhættusamra sprota og nýsköpunarfyrirtækja eins og alsiða er í nágrannalöndum okkar austan hafs og vestan. Því ber að fagna að með Kríu sé verið að leggja til slíkan stuðning við fjármögnun sprota og nýsköpunar. Vakin er athygli á mikilvægi þess að því sé fylgt eftir að þessi aðgerð gagnist og stuðli að fjáfestingum í vísindalegri nýsköpun sem byggir á rannsóknum og þróunarstarfi íslensks vísindasamfélags. Stjórnvöld hafa fjárfest í vaxandi mæli í rannsóknum og þróunarstarfi á undanförnum árum með því að auka framlög til samkeppnissjóða og hér er komið tækifæri til að hjálpa þeirri fjárfestingu að komast á næsta stig verðmætasköpunar og skila sér til samfélagsins. Með því að bæta fjármögnunarumhverfi vísindalegra sprota og hvetja venture capital (vísi-)sjóði til fjárfestinga í þeim er hægt að bæta úr brýnni þörf- ef ekki hreinlega markaðsbresti. Hreinir vísisjóðir hafa afmarkað fjárfestingartímabil innan hvers sjóðirnir fjárfesta, eru virkir í fyrirtækjunum og þurfa að losa um sína fjárfestingu. Án hvata er hætt við að slíkir vísissjóðir fjárfesti fyrst og fremst áhættuminni sprotum á sviðum þar sem vöruþróun gengur hratt fyrir sig og stutt er á markað en þar sem markaðstækifærin standa tiltölulega stutt yfir. Þetta á sjaldnast við um vísindalega sprota. Fjárfesting í djúptækni – eða djúpvísindasprotum er vissulega áhættusöm og krefst þolinmóðrar fjármögnunar en á sama tíma eru slíkir sprotar að kljást við margar af þeim stóru áskorunum sem mannkynið stendur frammi fyrir, s.s. loftslagsmál, málefni hafsins, heilbrigðismál og önnur sjálfbærnimarkmið SÞ. Lausnir þeirra eru líklegri til að hafa langtímaáhrif til góðs fyrir samfélagið, og þar sem þau hvíla á margra ára rannsóknar- og þróunarstarfi er samkeppnisstaða þeirra sterk, sé hugverkavernd til staðar. Djúpvísindasprotar skila jafnframt hálaunastörfum og miklum verðmætum eins og við þekkjum úr lyfjaþróun, líftæknifyrirtækjum, heilbrigðistækni og verkfræðigeirum. Hugverkavernd er oft á tíðum forsenda fjárfestingar fyrir árangri tímafrekra djúptækni verkefna til að verja fjárfestinguna. Á tíma þessarrar ríkisstjórnar hafa forsendur fyrir hugverkavernd djúptækni- og vísindaverkefna stórbatnað með tilkomu Auðnu tæknitorgs sem þjónar helstu háskólum og rannsóknastofnunum landsins á því sviði. Það hafa aldrei verið betri forsendur til að koma því hágæða vísindastarfi sem fram fer hérlendis áleiðis til verðmætasköpunar út í samfélaginu. Tryggja þarf að starfsemi og tilgangur Kríu-sjóðsins gagnist og skili sér sem hvati til fjárfestinga í djúpvísinda og djúptækni sprotum á Íslandi. Tilkoma Kríu gæti einnig verið hvati fyrir erlenda meðfjárfestingu meðfram íslenskum vísi-sjóðum í íslenskri nýsköpun og þannig laðað meira fjármagn inn í íslenskt nýsköpunar umhverfi. Komum vísindunum í vinnu. Virðingarfyllst, Einar Mäntylä f.h. Auðnu tæknitorgs ehf.

  • #5Tryggvi Hjaltason
    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið postur@anr.is Sent í Samráðsgátt Vestmannaeyjar 25. mars 2020 Efni: Umsögn um frumvarp til laga um opinberan stuðning til fjárfestinga í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum. Mál nr. 79/2020 Það hefur ítrekað komið fram undanfarin ár að tvö svið aftri vexti í tækni- og hugverkaiðnaðinum á Íslandi að miklu leyti. Það fyrra er aðgangur að fjármögnun á ákveðnum stigum rekstrar og þá helst hinu svokallaða vaxtarstigi og það seinna er aðgangur að erlendum mörkuðum og sérfræðiþekkingu. Það er margrannsakað að eitt mikilvægasta skrefið í að ná mikilli ávö… Lesa alla

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið postur@anr.is Sent í Samráðsgátt Vestmannaeyjar 25. mars 2020 Efni: Umsögn um frumvarp til laga um opinberan stuðning til fjárfestinga í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum. Mál nr. 79/2020 Það hefur ítrekað komið fram undanfarin ár að tvö svið aftri vexti í tækni- og hugverkaiðnaðinum á Íslandi að miklu leyti. Það fyrra er aðgangur að fjármögnun á ákveðnum stigum rekstrar og þá helst hinu svokallaða vaxtarstigi og það seinna er aðgangur að erlendum mörkuðum og sérfræðiþekkingu. Það er margrannsakað að eitt mikilvægasta skrefið í að ná mikilli ávöxtun og stórum lokasölum í þessum greinum byggir á fullnægjandi fjármögnun á fyrri stigum og þá sérstaklega vaxtastiginu. Reynsla annarra ríkja sýnir að það er áskorun að leysa þessi vandamál en þó eru til mjög farsæl dæmi um framkvæmd þar sem ríkið með kröftugri aðkomu stuðlaði að gjörbreytingu á þessum sviðum. Farsælasta dæmið um slíka framkvæmd er frá Ísrael. Ísrael stóð frammi fyrir framangreindum áskorunum en þess utan var það að mörgu leyti í svipaðri stöðu og Ísland, verandi „eyland“ landfræðilega með lokuð landamæri allt í kringum sig og lítil þjóð sem þurfti að tryggja að í landinu byggðist upp öflugur vísisfjárfestingargeiri ásamt því að tryggja kröftugan aðgang að stærri mörkuðum og sérfræðiþekkingu. Kría hefur alla burði til að verða lykilverkfæri til árangurs á þessum sviðum og er framsýni ráðherra og ríkisstjórnarinnar í þessum efnum því innilega fagnað. Miðað við fyrirliggjandi frumvarp virðist þó liggja fyrir að enn vantar lykilþætti í útfærslu ef við ætlum að læra af farsælli reynslu annarra ríkja og hámarka líkurnar á að íslenskt hugvit hafi öflugan aðgang að fjármagni, mörkuðum og þekkingu til að geta vaxið í burðug fyrirtæki sem tryggja í vaxandi mæli hagvöxt og gjaldeyristekjur þjóðarinnar. Lagt er til að útfærsla Kríu taki mið af eftirfarandi athugasemdum: Athugasemd 1: Lykil hvatar við að hefja og loka sjóðum Flestir greiningaraðilar eru sammála um að lykilaðdráttaraflið í útfærslu Ísraela fyrir framtaksfjárfesta sem komu og tóku þátt í að setja á laggirnar nýja sjóði í gegnum hvatakerfið YOZMA var uppsetning kerfisins við að tryggja hagstæða leið inn og út úr fjárfestingum. Ríkið kom með eina krónu á móti hverjum tveimur sem komið var með að borðinu fyrir eignarhlut í sjóðunum en bauð síðan hluthöfum að kaupa ríkið út á hagstæðum kjörum ásamt hagstæðu vaxtafyrirkomulagi eftir fimm ár ef sjóðurinn skilaði hagnaði. Þetta voru mjög góð kjör út frá fjárfestingarsjónarhóli. Það er samdóma álit þeirra sem til þekkja að þetta hafi verið lykillinn að árangri Yozma verkefnisins þ.e.a.s. að það voru innbyggðir valkostir um að komast auðveldlega inn og út. Það er stór munur á því að bjóða t.d. einungis krónu í hlutfalli við fé sem safnast hefur eða að bjóða að sú króna taki lykil áhættu til að byrja með og hægt sé að kaupa hana út á hagstæðum vöxtum seinna með. Það að lækka áhættuna svona er talið vera lykilatriði í farsælli framkvæmd. Athugasemd 2: Tryggjum tengslamyndun Ísraelar prófuðu ýmsar nálganir áður en þeir fundu farsælan farveg og eitt af því sem skipti sköpum var að öflugur tengslaaðili leiddi það verkefni að stuðla að og tryggja tengingar inn á lykilmarkaði og para saman innlenda aðila við erlenda reynda aðila sem höfðu staðfesta getu til að byggja upp í takt við þau markmið sem Ísraelar settu sér sem voru þrenns konar: 1) Að efla rannsóknir og þróun í einkageiranum í Ísrael; 2) Að byggja upp vísisfjárfestingariðnað í Ísrael 3) Að mynda öflugar tengingar inn á stærsta og þroskaðasta hátæknimarkað í heimi, Bandaríkjamarkað. Ísraelar fengu Yigal Erlich til að leiða YOZMA verkefnið og hann beitti sér af krafti í að draga bandarísk fyrirtæki og fjárfestingarsjóði að borðinu og byggði þá á verðmætu tengslaneti og langri reynslu sem „Chief of Scientist“ í Ísrael. Þegar eins kröftugu fyrirbæri og YOZMA var komið á laggirnar var engum tíma sóað í að bíða heldur var lagst í kröftuga markaðssetningu á tækifærunum sem væru nú að bjóðast inn í Ísrael og lykil tengslanet virkjuð. Það er mat aðila sem hafa komið að verkefninu og undirritaður hefur rætt við í persónu að það sé mikilvægt að tryggja „sendiherra“ eða „stefnumótunaraðila“ sem hefur sambönd til að draga aðila að borðinu með þekkingu á því sem þarf að byggja upp á Íslandi, sem leiðir að næstu athugasemd. Athugasemd 3: Setjum skýr skilyrði og markmið með Kríu Ef ríkið stillir upp hvatakerfi sem minnkar áhættu inn í sjóð og tryggir einnig væna ávöxtun ef vel gengur sbr. athugasemd eitt hér að framan ásamt því að hafa tryggt öflugan umsjónaraðila tengslamyndunar á milli innlendra frumkvöðla og fjármagns, markaða og þekkingar, þá eiga stjórnvöld ekki að veigra sér við því að stilla upp skilyðum fyrir þátttöku í takti við markmið um hvaða getu við viljum byggja upp í íslenska hagkerfinu. Mikilvægt er að hafa einhverskonar gæðastöðlun á því hvenær fjármagn er greitt út. Í takti við nýsköpunarstefnu ríkisstjórnarinnar og umfangsmikla kortlagningu undanfarinna ára er lagt til að eftirfarandi skilyrði verði lögð til grundvallar þess að Kría komi með fjármagn inn í vísísjóði: 1. Fjármagnið þarf að nýtast til uppbyggingar á Íslandi a. Þrengra skilyrði til umhugsunar hér væri að fjármagnið þarf að nýtast til að efla rannsóknir og þróun á Íslandi 2. Fjármagnið skal einungis nýtt til fjárfestinga í fyrirtækjum sem hafa skalanleg viðskiptamódel 3. Sjóður þarf að hafa a.m.k. einn samstarfsaðila sem uppfyllir eftirfarandi skilyrði: a. Geta sýnt fram á árangur á eftirfarandi sviðum, amk. tveimur af þremur: i. Byggt upp farsælan vísífjárfestingarsjóð yfir tiltekinni stærð ii. Þekking á markaði X (tekur hugsanlega mið af ákvæðum 4.a) iii. Farsælar fjárfestingar 4. Valkvæð ákvæði sem tryggja að auka x prósent fjármögnun eða x% hagstæðari skilyrði fást ef: a. Fjármagnið byggir upp lykilþekkingu svo íslenskt hagkerfi geti dafnað til framtíðar. Eftirfarandi kerfi eru valin því þau eru hæstu útgjaldaliðir ríkisins ár hvert eða samfélagsleg sátt er um mikilvægi þess að tryggja skilvirk afköst á þeim sviðum: i. Heilbrigðis- og líftækni ii. Menntatækni iii. Umhverfistækni Tryggvi Hjaltason

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-79/2020: Frumvarp til laga um opinberan stuðning til fjárfestinga í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum · Alviti