Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-150/2020 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Frumvarp til laga um lykilupplýsingaskjöl fyrir pakkaðar og vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir fyrir almenna fjárfesta (PRIIP).

Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um lykilupplýsingaskjöl fyrir pakkaðar og vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir fyrir almenna fjárfesta til innleiðingar á reglugerð ESB 2014/1286.

Frumvarpið mun fela í sér innleiðingu í íslenskan rétt á ákvæðum reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 1286/2014 um lykilupplýsingaskjöl fyrir pakkaðar og vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir fyrir almenna fjárfesta (PRIIP-reglugerðin). Með reglugerðinni er í fyrsta sinn settur samræmdur rammi um lykilupplýsingaskjöl fyrir pakkaðar og vátryggingatengdar fjárfestingarvörur fyrir almenna fjárfesta. Lögð er sú skylda á herðar þeirra sem veita ráðgjöf um eða selja pakkaðar og vátryggingatengdar fjárfestingarvörur fyrir almenna fjárfesta að semja og gera almennum fjárfestum tiltækt lykilupplýsingaskjal (e. Key Information Document, KID). Markmiðið er að auðvelda almennum fjárfestum að bera saman lykilupplýsingar ólíkra vara og skilja séreinkenni þeirra, meðfylgjandi áhættu og kostnað.

S-150/2020· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. ágú. 2020 – 10. sep. 2020· 1 umsögn

Frumvarp til laga um lykilupplýsingaskjöl fyrir pakkaðar og vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir fyrir almenna fjárfesta (PRIIP).

Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um lykilupplýsingaskjöl fyrir pakkaðar og vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir fyrir almenna fjárfesta til innleiðingar á reglugerð ESB 2014/1286.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-150/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. september 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 641)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (13. september 2021)

Málinu lauk með framlagningu frumvarps til laga um lykilupplýsingaskjöl vegna tiltekinna fjárfestingarafurða fyrir almenna fjárfesta, sem varð svo að lögum nr. 55/2021.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
  • #1Samtök fjármálafyrirtækja

    Meðfylgjandi er um umsögn SFF. Virðingarfyllst, Margrét Arnheiður Jónsdóttir

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-150/2020: Frumvarp til laga um lykilupplýsingaskjöl fyrir pakkaðar og vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir fyrir almenna fjárfesta (PRIIP). · Alviti