Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-141/2020 · Dómsmálaráðuneytið

Breyting á barnalögum (breytt kynskráning foreldra)

Samkvæmt bráðabirgðaákvæði I í lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019 var ráðherra falið að skipa starfshóp til að m.a. fjalla um og gera tillögur um breytingar á öðrum lögum sem nauðsynlegar eru til að tryggja réttindi trans fólks og intersex fólks. Frumvarpið byggir á tillögum starfshópsins.

Í frumvarpinu er lagt til að við barnalög, nr. 76/2003, verði bætt nýjum ákvæðum sem mæla fyrir um foreldrisstöðu trans fólks og einstaklinga með hlutlausa kynskráningu. Breytingarnar miða að því að tryggja réttindi foreldra með breytta kynskráningu og gera þá jafnsetta öðrum foreldrum. Íslensk lög hafa ekki gert það að skilyrði fyrir breytingu á kynskráningu trans fólks að það gangist undir ófrjósemisaðgerð eins og gert hefur verið í ýmsum löndum til skamms tíma. Því er vel hugsanlegt að trans maður gangi með og ali barn og að trans kona geti barn. Þessir möguleikar voru reyndar fyrir hendi fyrir setningu laga um kynrænt sjálfræði en ekki hafa verið gerðar nauðsynlegar breytingar á lögum til að samræma þau þessum veruleika. Lög um kynrænt sjálfræði heimila einstaklingum að hafa hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá og þurfa foreldrareglur barnalaga jafnframt að taka mið af því. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að merking orðsins faðir sé sú sama og í gildandi lögum, þ.e. að faðir sé karlkyns foreldri. Samkvæmt því telst karlmaður sem elur barn eftir breytingu á kynskráningu sinni faðir þess. Þetta þýðir að sá möguleiki verður fyrir hendi að barn eigi tvo feður. Til samræmis er lögð til breytt skilgreining hugtaksins móðir í barnalögum þannig að það eigi við um kvenkyns foreldri en ekki einungis um konu sem elur barn. Breytingin hefur í för með sér að barn getur átt tvær mæður, þ.e. ef móðirin sem elur það er í hjúskap eða sambúð með annarri konu. Vegna breyttrar merkingar hugtaksins er nauðsynlegt að breyta þeim ákvæðum barnalaga og annarra laga sem mæla fyrir um sérstök réttindi til handa móður vegna meðgöngu og barnsburðar. Þá er lagt til í frumvarpinu að hugtakið foreldri í þrengri merkingu verði notað um foreldra sem hafa hlutlausa kynskráningu enda er orðið ekki kyngreinandi. Með frumvarpinu er lagt til að foreldrisregla, hliðstæð pater est-reglu 2. gr. barnalaga, gildi um ákvörðun foreldrisstöðu foreldris með breytta kynskráningu sem er í hjúskap eða skráðri sambúð með foreldrinu sem ól barnið. Þessa reglu mætti kalla parens est-reglu. Með tilliti til þeirrar forsendu barnalaga að slíkar reglur grundvallist á yfirgnæfandi líkum á að makinn sé líffræðilegt foreldri er lagt til að parens est-regla eigi einungis við ef upphafleg kynskráning foreldra útilokar ekki líffræðileg tengsl makans við barnið. Reglan getur því ekki átt við í hjónaböndum eða sambúð einstaklinga sem höfðu upphaflega sömu kynskráningu. Ástæða er til að árétta að parens est-reglan gildir ekki um það þegar hjón eða sambúðarfólk eignast barn sem getið er við tæknifrjóvgun. Gert er ráð fyrir að sérstakar reglur gildi um foreldrisstöðu við þær aðstæður. Ef parens est-reglan á ekki við verður foreldrisstaða foreldris með breytta kynskráningu, þ.e. þess sem ekki ól barnið, ákvörðuð með foreldrisviðurkenningu, sem er í öllum aðalatriðum sambærileg faðernisviðurkenningu, eða dómsmáli skv. II. kafla barnalaga. Það gildir þó einnig um regluna um foreldrisviðurkenningu að hún getur einungis átt við ef upphafleg kynskráning útilokar ekki líffræðileg tengsl foreldrisins við barnið. Lagðar eru til sérstakar reglur um ákvörðun foreldrisstöðu foreldra sem breytt hafa kynskráningu sinni þegar barn er getið við tæknifrjóvgun. Annars vegar er um að ræða reglur um foreldrisstöðu þess foreldris sem elur barnið, þ.e. karlmaður sem elur barn telst faðir þess og einstaklingur með hlutlausa kynskráningu telst foreldri barns sem hann elur. Hins vegar eru reglur um foreldrisstöðu hins foreldrisins og eru þær hliðstæðar reglum 6. gr. barnalaga. Frumvarpið er lagt fram samhliða frumvarpi til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna laga um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019.

S-141/2020· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. ágú. 2020 – 21. ágú. 2020· 2 umsagnir

Breyting á barnalögum (breytt kynskráning foreldra)

Samkvæmt bráðabirgðaákvæði I í lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019 var ráðherra falið að skipa starfshóp til að m.a. fjalla um og gera tillögur um breytingar á öðrum lögum sem nauðsynlegar eru til að tryggja réttindi trans fólks og intersex fólks. Frumvarpið byggir á tillögum starfshópsins.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-141/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 21. ágúst 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 204)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (20. nóvember 2020)

Alls bárust 2 umsagnir í samráðsgáttinni og 3 umsagnir á síðari stigum. Í samráðskafla frumvarpsins er nánar fjallað um athugasemdir og viðbrögð við þeim en frumvarpið hefur verið lagt fram á Alþingi.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Freyr Björnsson
    Góðan dag. Ég skrifa til þess að mótmæla þessum fyrirhuguðu lagabreytingum. Hagsmunirnir sem verið er að vega að með þessari lagasetningu er málskilningur og siðferðisskilningur landsmanna á hugtökunum ´móðir´ og ´faðir´ - hugtök sem standa öllum nær. Með fullri virðingu fyrir réttindum transfólks - þá trompa þau réttindi ekki rétt almennings til þess halda málvenjum sínum og hefðbundnum siðferðisskilningi á hugtökum sem er honum mjög kær. Breyting í þá átt sem lagafrumvarpið felur í sér mun auka siðfrof - í eiginlegum skilningi þess orðs (fr. anomie) - í samfélaginu, og nóg er um slíkt s… Lesa alla

    Góðan dag. Ég skrifa til þess að mótmæla þessum fyrirhuguðu lagabreytingum. Hagsmunirnir sem verið er að vega að með þessari lagasetningu er málskilningur og siðferðisskilningur landsmanna á hugtökunum ´móðir´ og ´faðir´ - hugtök sem standa öllum nær. Með fullri virðingu fyrir réttindum transfólks - þá trompa þau réttindi ekki rétt almennings til þess halda málvenjum sínum og hefðbundnum siðferðisskilningi á hugtökum sem er honum mjög kær. Breyting í þá átt sem lagafrumvarpið felur í sér mun auka siðfrof - í eiginlegum skilningi þess orðs (fr. anomie) - í samfélaginu, og nóg er um slíkt siðrof nú þegar í samtímanum. Það er ekkert sem kallar á þessar breytingar - ekki ´laga´ það sem ekki þarfnast lagfæringar. Hagsmunir þorra manna trompa hér hagsmuni minnihlutans - vinsamlegast virðið hagsmuni og vilja meiri Íslendinga í þessu máli. Virðingarfyllst, Freyr Björnsson

  • #2Samband íslenskra sveitarfélaga

    Góðan daginn Meðfylgjandi er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-141/2020: Breyting á barnalögum (breytt kynskráning foreldra) · Alviti