Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
819 mál · sótt 28. október 2026
- Komið til AlþingisS-214/2019· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. ágú. 2019 – 16. sep. 2019· 5 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um íslensk landshöfuðlén
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi til laga um íslensk landshöfuðlén.
- Komið til AlþingisS-208/2019· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. ágú. 2019 – 26. ágú. 2019· 0 umsagnir
Breyting á lögum um íslenskan ríkisborgararétt
Lagðar eru til breytingar á lögunum með það að markmiði að auka skilvirkni og skerpa á ákvæðum þeirra.
- Komið til AlþingisS-196/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. júl. 2019 – 28. ágú. 2019· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um innheimtu opinberra skatta og gjalda
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um innheimtu opinberra skatta og gjalda.
- Komið til AlþingisS-193/2019· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. júl. 2019 – 9. ágú. 2019· 8 umsagnir
Áform um lagasetningu - Breyting á lögum um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa.
Áformað er að leggja fram frumvarp til að samræma skilgreiningu smáskipa í lögum nr. 30/2007 um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa við reglur um veiðileyfi með krókaaflamarki í lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða.
- Komið til AlþingisS-191/2019· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. júl. 2019 – 6. ágú. 2019· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 34/1991 um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri
Frumvarpinu er ætlað að breyta lögum nr. 34/1991 um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri. Frumvarpinu er ætlað að afnema búsetuskilyrði ríkisborgara í aðildarríkjum EES-samningsins, aðildarríkjum EFTA eða í Færeyjum.
- Komið til AlþingisS-189/2019· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. júl. 2019 – 13. ágú. 2019· 7 umsagnir
Frumvarp til laga um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Með frumvarpi þessu er lagt til að tvær stofnanir, Íbúðalánasjóður og Mannvirkjastofnun verði lagðar niður og nýrri stofnun, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun verði falið að annast framkvæmd húsnæðis- og mannvirkjamála. Fjármálaumsýsla vegna eldri starfsemi Íbúðalánasjóðs verður aðskilin frá nýrri sameinaðri stofnun.
- Komið til AlþingisS-188/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. júl. 2019 – 26. júl. 2019· 25 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórnun grásleppu).
Sjávarútvegs- landbúnaðarráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórnun grásleppu).
- Komið til AlþingisS-185/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. júl. 2019 – 4. sep. 2019· 1 umsögn
Drög að frumvarpi til laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja til innleiðingar á tilskipun 2014/59/ESB um endurreisn og skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.
- Komið til AlþingisS-183/2019· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. júl. 2019 – 16. ágú. 2019· 3 umsagnir
Áform um frumvarp um breytingu á lögum nr. 33/2013 um neytendalán
Starfshópur um endurskoðun á starfsumhverfi smálánafyrirtækja var skipaður með bréfi ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, dagsett 11. júlí 2018. Starfshópurinn skilaði skýrslu til ráðherra í janúar 2019.Með fyrirhuguðu frumvarpi er ætlað að bregðast við niðurstöðum þeirrar skýrslu
- Komið til AlþingisS-182/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. júl. 2019 – 30. ágú. 2019· 7 umsagnir
Drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til innleiðingar á tilskipun 2011/61/ESB um rekstraraðila sérhæfðra sjóða (AIFMD).
- Komið til AlþingisS-181/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. júl. 2019 – 29. ágú. 2019· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga.
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 909/2014 um bætt verðbréfauppgjör og verðbréfamiðstöðvar (e. CSDR).
- Komið til AlþingisS-179/2019· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. júl. 2019 – 23. ágú. 2019· 3 umsagnir
Frumvarp, hollustuhættir og mengunarvarnir (viðaukar)
Með frumvarpinu er ætlunin að gera nokkrar breytingar á viðaukum í lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir til laga misræmi milli þeirra. Þá er þörf á að meta hvort tiltekna starfsemi vanti í viðauka við lögin sem og hvort einhver starfsemi sem tilgreind er í viðaukunum megi falla á brott.
- Komið til AlþingisS-177/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. júl. 2019 – 19. júl. 2019· 2 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt og lögum nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur (stofn fjármagnstekjuskatts).
Með frumvarpinu er ráðgert að endurskoða stofn fjármagnstekjuskatts sem m.a. felur í sér möguleika á að færast nær því að skattleggja raunávöxtun og hvetja til aukins sparnaðar.
- Komið til AlþingisS-175/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. júl. 2019 – 26. ágú. 2019· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um fjárhagslegar viðmiðanir
Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til að innleiða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/1011 um vísitölur sem notaðar eru sem viðmiðanir í fjármálagerningum og fjárhagslegum samningum eða til að mæla árangur fjárfestingarsjóða.
- Komið til AlþingisS-169/2019· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. júl. 2019 – 31. júl. 2019· 4 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á upplýsingalögum (Réttarstaða þriðja aðila)
Áformað er að gera breytingar á upplýsingalögum nr. 140/2012 í því skyni að bæta réttarstöðu þriðja aðila, þ.e. þess sem á hagsmuna að gæta af afhendingu upplýsinga, og gera hana skýrari.
- Komið til AlþingisS-168/2019· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. júl. 2019 – 31. júl. 2019· 3 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands (Varnir gegn hagsmunaárekstrum hjá æðstu handhöfum framkvæmdarvalds)
Fyrirhugað er að smíða löggjöf til varnar hagsmunaárekstrum hjá æðstu handhöfum framkvæmdarvalds, m.a. í samræmi við tilmæli GRECO, samtaka ríkja innan Evrópuráðsins gegn spillingu, og starfshóps forsætisráðherra um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu
- Komið til AlþingisS-167/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. júl. 2019 – 16. júl. 2019· 2 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um innheimtu opinberra skatta og gjalda
Áform um að leiða í lög heildstæða löggjöf um innheimtu opinberra skatta og gjalda.
- Komið til AlþingisS-162/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jún. 2019 – 1. ágú. 2019· 0 umsagnir
Frv. til l. um br. á l. um lax- og silungsveiði
Tillaga um minnih. br. á l. um lax- og silungsv. hvað snertir ábyrgð af kostnaði af arðskrármati.
- Komið til AlþingisS-161/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jún. 2019 – 12. júl. 2019· 3 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á tollalögum og fleiri lögum.
Áformað er að tollafgreiðsla og tollgæsla, sem tollstjóri annast nú, verði færð til ríkisskattstjóra frá og með 1. janúar 2020.
- Komið til AlþingisS-159/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jún. 2019 – 12. júl. 2019· 1 umsögn
Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld.
Áformaðar eru ýmsar nauðsynlegar breytingar og leiðréttingar á skattalöggjöf sem tengjast bæði skattlagningu lögaðila og einstaklinga.
- Komið til AlþingisS-158/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jún. 2019 – 26. júl. 2019· 0 umsagnir
Áform um breytingu á tollalögum (rafræn skil og greiðslur, vöruvalsreglur, innflutningur matvæla ofl.)
Áformaskjalið felur í sér áform um ýmsar breytingar á tollalögum nr. 88/2005.
- Komið til AlþingisS-156/2019· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. jún. 2019 – 20. júl. 2019· 6 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um landshöfuðlénið .is
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið áformar að semja nýtt frumvarp til laga um landshöfuðlénið .is.
- Komið til AlþingisS-154/2019· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. jún. 2019 – 12. júl. 2019· 1 umsögn
Áform um breytingu á lögum um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998.
Áformað er að breyta ákvæðum laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998 varðandi verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, mörkun ríkistekna og málsmeðferð óbyggðanefndar.
- Komið til AlþingisS-152/2019· Annað· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. jún. 2019 – 24. júl. 2019· 6 umsagnir
Þingsályktun um framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum 2020-2023
Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum árin 2020–2023, sbr. 11. gr. laga nr. 10/2008, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Framkvæmdaáætlunin er gerð að fengnum tillögum einstakra ráðuneyta, Jafnréttisstofu og kynnt Jafnréttisráði.
- Komið til AlþingisS-148/2019· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. jún. 2019 – 5. júl. 2019· 1 umsögn
Áform um breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga til breytinga á lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995. Frumvarpið mun fela í sér breytingar á ákvæðum 3. kafla laga um tekjustofna sveitarfélaga er snúa að Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
- Komið til AlþingisS-142/2019· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. jún. 2019 – 16. júl. 2019· 4 umsagnir
Áform um breytingar á lögum um loftferðir nr. 60/1998
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga til breytinga á lögum um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum, til innleiðingar reglugerðar (ESB) 2018/1139 um sameiginlegar reglur á sviði almenningsflugs og stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópusambandsins.
- Komið til AlþingisS-132/2019· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. maí 2019 – 20. jún. 2019· 14 umsagnir
Frumvarp til nýrra laga um leigubifreiðar
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til nýrra laga um leigubifreiðar. Markmiðið með frumvarpinu er að auka frelsi á leigubifreiðamarkaðnum og tryggja örugga og góða þjónustu.
- Komið til AlþingisS-127/2019· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. maí 2019 – 3. jún. 2019· 29 umsagnir
Frumvarp til nýrra lyfjalaga
Heilbrigðisráðuneytið kynnir endurskoðuð drög að frumvarpi til nýrra lyfjalaga. Frumvarpið var fyrst kynnt í samráði 21. febrúar sl. og bárust þá 114 umsagnir. Hefur ráðuneytið unnið úr þeim athugasemdum og óskar nú eftir umsögnum um endurskoðað frumvarp til nýrra lyfjalaga. Umsagnarferli lýkur þann 3. júní nk.
- Komið til AlþingisS-113/2019· Drög að frumvarpi til laga· Utanríkisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. apr. 2019 – 28. apr. 2019· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um ráðstafanir vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu og Evrópska efnahagssvæðinu
Frumvarpið mælir fyrir um ráðstafanir vegna úrsagnar Bretlands úr Evrópusambandinu og EES, hvort sem úrsögn Bretlands verði á grundvelli samnings milli Evrópusambandsins og Bretlands eða án slíks samnings.
- Komið til AlþingisS-99/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. mar. 2019 – 26. mar. 2019· 5 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003 (tilvísun í stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku)
Með frumvarpinu og tillögunni til breytingar á þingsályktun 26/148 er lagt til að kveðið verði á um að ekki verði ráðist í tengingu raforkukerfis landsins við raforkukerfi annars lands í gegnum sæstreng nema að undangengnu samþykki Alþingis.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)