Frumvarp til nýrra lyfjalaga
Heilbrigðisráðuneytið kynnir endurskoðuð drög að frumvarpi til nýrra lyfjalaga. Frumvarpið var fyrst kynnt í samráði 21. febrúar sl. og bárust þá 114 umsagnir. Hefur ráðuneytið unnið úr þeim athugasemdum og óskar nú eftir umsögnum um endurskoðað frumvarp til nýrra lyfjalaga. Umsagnarferli lýkur þann 3. júní nk.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-127/2019)
- Umsagnarfrestur hefst · til 3. júní 2019
- Umsagnarfresti lýkur · 29 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 390)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (3. júní 2020)
Ráðherra mælti fyrir frumvarpi til nýrra lyfjalaga 28. nóvember 2019.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (29)
- #1Þröstur Friðfinnsson
Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps tók frumvarp til nýrra lyfjalaga til umræðu á fundi sínum í gær og bókaði eftirfarandi umsögn undir dagskrárlið nr. 3: „3. Frumvarp um lyfjalög. Sveitarstjórn tekur undir umsögn Pharmarctica um lyfjalögin. Sveitarstjórn hafnar því að sérhæfð framleiðsla forskriftarlyfja lækna undir ströngu gæðaeftirliti sé bönnuð á Íslandi en innflutningur heimilaður á sömu vöru erlendis frá. Það er aðför að lyfjaöryggi á Íslandi, atvinnusköpun og þeirri sérhæfingu sem byggð hefur verið upp.“ Þessu er hér með komið á framfæri. Bestu kveðjur, Þröstur Fr… Lesa alla
Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps tók frumvarp til nýrra lyfjalaga til umræðu á fundi sínum í gær og bókaði eftirfarandi umsögn undir dagskrárlið nr. 3: „3. Frumvarp um lyfjalög. Sveitarstjórn tekur undir umsögn Pharmarctica um lyfjalögin. Sveitarstjórn hafnar því að sérhæfð framleiðsla forskriftarlyfja lækna undir ströngu gæðaeftirliti sé bönnuð á Íslandi en innflutningur heimilaður á sömu vöru erlendis frá. Það er aðför að lyfjaöryggi á Íslandi, atvinnusköpun og þeirri sérhæfingu sem byggð hefur verið upp.“ Þessu er hér með komið á framfæri. Bestu kveðjur, Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps
- #2Pharmarctica ehf.
Meðfylgjandi er umsögn Pharmarctica ehf.
- #3Hjörleifur Þórarinsson
Í XI.kafla, 47.gr. í fyrirliggjandi drögum að lyfjalögum er fjallað um öryggisþætti á umbúðum mannalyfja. Þar segir m.a. „að í aðfangakeðju lyfja skal vera hægt að sannreyna að einstakar pakkningar mannalyfja séu ósviknar allan þann tíma sem lyfið er á markaði og þann tíma sem þarf til að skila og farga viðkomandi pakkningu eftir fyrningardag hennar“. Lyfjaauðkenni tekur heilshugar undir orðalag greinarinnar og fagnar henni. Jafnframt gerir félagið tillögu um breytingu í XX.kafla (Viðurlög), 96.gr (Stjórnvaldssektir), í þá veru að Lyfjastofnun verði heimilt að beita stjórnvaldssektum ef ein… Lesa alla
Í XI.kafla, 47.gr. í fyrirliggjandi drögum að lyfjalögum er fjallað um öryggisþætti á umbúðum mannalyfja. Þar segir m.a. „að í aðfangakeðju lyfja skal vera hægt að sannreyna að einstakar pakkningar mannalyfja séu ósviknar allan þann tíma sem lyfið er á markaði og þann tíma sem þarf til að skila og farga viðkomandi pakkningu eftir fyrningardag hennar“. Lyfjaauðkenni tekur heilshugar undir orðalag greinarinnar og fagnar henni. Jafnframt gerir félagið tillögu um breytingu í XX.kafla (Viðurlög), 96.gr (Stjórnvaldssektir), í þá veru að Lyfjastofnun verði heimilt að beita stjórnvaldssektum ef einstaklingur eða lögaðili brýtur gegn ákvæðum um öryggisþætti á umbúðum mannalyfja, sbr. 47. gr. Lyfjaauðkenni bendir á að til þess að apótek, lyfjaheildsalar og heilbrigðisstofnanir geti sannreynt að einstakar pakkningar mannalyfja séu ósviknar, verður viðkomandi aðili að vera tengdur hinu Evrópska lyfjaauðkenniskerfi í gegnum gátt Lyfjaauðkennis. Ef aðili, sem hefur heimild til að afhenda almenningi lyf, er ekki tengdur lyfjaauðkenniskerfinu, er hætta á að fölsuð lyf berist til sjúklinga. Einnig verður framleiðandi lyfs að útbúa pakkningar mannalyfja með viðeigandi öryggisþáttum og skrá þær upplýsingar í Evrópska lyfjaauðkenniskerfið. Lyfjaauðkenni telur þar af leiðandi mikilvægt að Lyfjastofnun hafi heimild til að beita stjórnvaldssektum í þeim tilvikum þegar (og ef) notendur lyfjaauðkenniskerfisins bregðast ekki við ábendingum Lyfjastofnunar um úrbætur er varða öryggisþætti á umbúðum lyfja.
- #4Margrét Vilhelmsdóttir
Akureyri, 31. maí 2019 Efni: Athugasemdir við drög að frumvarpi til lyfjalaga Lyfjanefnd Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) hefur borist drög að frumvarpi til nýrra lyfjalaga. Lyfjanefnd SAk hefur fjallað um drögin að frumvarpi og vill koma eftirfarandi á framfæri: 1. Athugasemd við III. Kafla Lyfjaskrár, 9. gr. Lyfjaskrár Lyfjastofnunar : • Hér mætti bæta við að strikamerki skuli aðgengileg fyrirtækjum og stofnunum í stoðskrá lyfja. Strikamerki eru mikilvæg viðbót til að tryggja öryggi við afgreiðslu og skömmtun lyfja. • Stoðskrá lyfja þarf einnig að innihalda upplýsingar um íkomu… Lesa alla
Akureyri, 31. maí 2019 Efni: Athugasemdir við drög að frumvarpi til lyfjalaga Lyfjanefnd Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) hefur borist drög að frumvarpi til nýrra lyfjalaga. Lyfjanefnd SAk hefur fjallað um drögin að frumvarpi og vill koma eftirfarandi á framfæri: 1. Athugasemd við III. Kafla Lyfjaskrár, 9. gr. Lyfjaskrár Lyfjastofnunar : • Hér mætti bæta við að strikamerki skuli aðgengileg fyrirtækjum og stofnunum í stoðskrá lyfja. Strikamerki eru mikilvæg viðbót til að tryggja öryggi við afgreiðslu og skömmtun lyfja. • Stoðskrá lyfja þarf einnig að innihalda upplýsingar um íkomuleiðir. 2. Athugasemd við X.Kafla Umsýsla lyfja á heilbrigðisstofnunum, 44.gr. Lyfjanefnd Landspítala : • Eiga önnur opinber sjúkrahús ekki að hafa lyfjanefnd ? • Skýra þarf hlutverk lyfjanefnda annarra opinberra sjúkrahúsa ef þær eiga að vera til. Ef þær eiga ekki að vera til þarf að skýra samráðsskyldu lyfjanefndar Landspítala við önnur opinber sjúkrahús. 3. Athugasemd við X.Kafla Umsýsla lyfja á heilbrigðisstofnunum, 46.gr. Reglugerðir : • Ráðherra skal setja reglugerð um hlutverk og starfsemi lyfjanefndar Landspítala og lyfjanefndar heilsugæslunnar. • Hvað með lyfjanefndir annarra opinberra sjúkrahúsa ? Fyrir hönd lyfjanefndar Sjúkrahússins á Akureyri (SAk), Margrét Vilhelmsdóttir, formaður
- #5Jóhanna María Sigmundsdóttir
Meðfylgjandi er umsögn Landssambands kúabænda
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.