Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-152/2019 · Forsætisráðuneytið

Þingsályktun um framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum 2020-2023

Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum árin 2020–2023, sbr. 11. gr. laga nr. 10/2008, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Framkvæmdaáætlunin er gerð að fengnum tillögum einstakra ráðuneyta, Jafnréttisstofu og kynnt Jafnréttisráði.

Í framkvæmdaáætluninni eru kynnt verkefni sem eiga að endurspegla markmið stjórnvalda á sviði jafnréttismála. Áhersla er lögð á að öll ráðuneyti hafi hlutverki að gegna við framkvæmd áætlunarinnar. Er þessu fyrirkomulagi ætlað að tryggja að áherslur og forgangsröðun ríkisstjórnarinnar á sviði jafnréttismála birtist með skýrum hætti. Við mótun verkefna og markmiða var höfð hliðsjón af leiðbeiningum í Handbók Stjórnarráðsins um opinbera stefnumótun og áætlanagerð. Framkvæmdaáætlunin samanstendur af 24 verkefnum sem beinast að því að leiðrétta kynjahalla á hinum ýmsu sviðum. Verkefnin koma úr öllum ráðuneytum og eru í fyrsta skipti tengd heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

S-152/2019· Annað· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. jún. 2019 – 24. júl. 2019· 6 umsagnir

Þingsályktun um framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum 2020-2023

Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum árin 2020–2023, sbr. 11. gr. laga nr. 10/2008, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Framkvæmdaáætlunin er gerð að fengnum tillögum einstakra ráðuneyta, Jafnréttisstofu og kynnt Jafnréttisráði.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-152/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 24. júlí 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 102)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (4. desember 2019)

Sex umsagnir bárust. Almenn ánægja var með framkvæmdaáætlunina og hversu fjölbreytt verkefni hennar eru. Sérstök ánægja var um einstaka verkefni áætlunarinnar en einnig var nefnt að verkefnin taki ekki til stöðu mismunandi hópa kvenna. Tekið var tillit til athugasemda eftir atvikum. Málið gekk til alls­herjar- og mennta­mála­nefndar 26.09.2019.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-152/2019: Þingsályktun um framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum 2020-2023 · Alviti