Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
1.238 mál · 5 til umsagnar núna · sótt 29. október 2026
- Komið til AlþingisS-288/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. nóv. 2019 – 3. des. 2019· 0 umsagnir
Brottfall úreltra laga
Með frumvarpsdrögunum er ætlunin að fella á brott lög á málefnasviðum fjármála- og efnahagsráðuneytis sem ekki hafa þýðingu lengur.
- Komið til AlþingisS-287/2019· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. nóv. 2019 – 4. des. 2019· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 72/1994 um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun
Lagðar eru til breytingar á lögum nr. 72/1994 um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun vegna innleiðingar reglugerðar (ESB) 2017/1369 um setningu regluverks um orkumerkingar.
- Komið til AlþingisS-286/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. nóv. 2019 – 26. nóv. 2019· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006, með síðari breytingum (skil ársreikninga)
Frumvarpinu er ætlað að skýra nánar þau tilvik þegar ársreikningaskrá krefur um skipti á félagi á grundvelli 121. gr. laganna, í þeim tilvikum þegar ársreikningi hefur ekki verið skilað innan réttra fresta eða skilað með ófullnægjandi hætti.
- Ekki komið til AlþingisS-285/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. nóv. 2019 – 26. nóv. 2019· 6 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006, með síðari breytingum (leigusamningar)
Frumvarpið varðar meðferð leigusamninga í reikningsskilum þeirra félaga sem falla undir gildissvið laga um ársreikninga.
- Komið til AlþingisS-284/2019· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. nóv. 2019 – 2. des. 2019· 2 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um varnir gegn hagsmunaárekstrum hjá æðstu handhöfum framkvæmdarvalds í Stjórnarráði Íslands
Með frumvarpinu er lagt til að settar verði skýrari reglur en nú gilda um skráningu hagsmuna og hagsmunaárekstra æðstu handhafa framkvæmdarvalds sem starfa innan Stjórnarráðs Íslands.
- Ekki komið til AlþingisS-283/2019· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. nóv. 2019 – 28. nóv. 2019· 6 umsagnir
Frumvarp til laga um samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir
Frumvarpinu er ætlað að kveða á um heimildir til að stofna til samvinnu opinberra aðila við einkaaðila um tilteknar vegaframkvæmdir og gjaldtöku vegna þeirra.
- Komið til AlþingisS-282/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. nóv. 2019 – 22. nóv. 2019· 3 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (ýmsar breytingar).
Þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu tengjast bæði skattlagningu einstaklinga og lögaðila og taka til nauðsynlegra breytinga á ýmsum lögum um skatta og gjöld með það að markmiði að eyða réttaróvissu og gera löggjöf á sviði skattamála skýra.
- Komið til AlþingisS-278/2019· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. nóv. 2019 – 18. nóv. 2019· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda (samræmd móttaka flóttafólks og breyting á skipan í innflytjendaráð)
Félagsmálaráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 116/2012 um málefni innflytjenda.
- Komið til AlþingisS-265/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 31. okt. 2019 – 13. nóv. 2019· 1 umsögn
Drög að frumvarpi til laga um lýsingar verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1129/2017 um lýsingu sem birta skal við almenn útboð verðbréfa eða vegna töku verðbréfa til viðskipta á skipulegum markaði.
- Ekki komið til AlþingisS-274/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 31. okt. 2019 – 14. nóv. 2019· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um umbótavettvang
Áformað er að formfesta hagkvæman ramma um umbótastarf ríkisins sem stuðlar með markvissari hætti að nýsköpun, faglegri mannauðsstjórnun, hagkvæmum innkaupum og eykur stuðning við stafræna þjónustu með víðtækari hætti en áður í starfsemi ríkisins.
- Ekki komið til AlþingisS-272/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. okt. 2019 – 12. nóv. 2019· 36 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um skatta (ívilnanir vegna vistvænna ökutækja o.fl.)
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um virðisaukaskatt og tekjuskatt sem fela í sér ívilnanir vegna vistvænna ökutækja o.fl.
- Komið til AlþingisS-270/2019· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. okt. 2019 – 12. nóv. 2019· 27 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum (lenging á rétti til fæðingarorlofs).
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, sem fela í sér lengingu fæðingarorlofs.
- Komið til AlþingisS-269/2019· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. okt. 2019 – 12. nóv. 2019· 2 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir (EES-reglur, plastvörur)
Í áformuðu frumvarpi verða lagðar til breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir til innleiðingar á tilskipun ESB um minnkun umhverfisáhrifa af tilteknum vörum úr plasti.
- Ekki komið til AlþingisS-268/2019· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. okt. 2019 – 11. nóv. 2019· 5 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði
Lagðar eru til breytingar á lögunum með það að markmiði að stuðla að hagræðingu í ríkisrekstri og bættri þjónustu.
- Ekki komið til AlþingisS-266/2019· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. okt. 2019 – 8. nóv. 2019· 7 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á höfundalögum nr. 73/1972 (aðild að alþjóðasáttmála og innleiðing tilskipunar um tiltekna notkun einstaklinga sem eiga við sjón- eða lestarhömlun að stríða)
Frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum til að samræma reglur um gerð eintaka af höfundavernduðum verkum fyrir þá sem stríða við sjón- eða lestrarhömlun.
- Komið til AlþingisS-264/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. okt. 2019 – 5. nóv. 2019· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á tollalögum nr. 88/2005
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á tollalögum nr. 88/2005, með síðari breytingum (rafræn afgreiðsla, vöruvalsreglur, innflutningur matvæla o.fl.).
- Komið til AlþingisS-263/2019· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. okt. 2019 – 4. nóv. 2019· 5 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða
Drög að frumvarpi um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða. Kveðið er á um greiðslu viðbótarstuðnings til aldraðra einstaklinga eldri en 67 ára sem búa og dvelja varanlega á Íslandi en sem hafa áunnið sér lítil sem engin lífeyrisréttindi og hafa heildartekjur undir tilteknu viðmiði.
- Komið til AlþingisS-262/2019· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. okt. 2019 – 4. nóv. 2019· 2 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingar á lögum um almannatryggingar (hálfur lífeyrir)
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir breytingum á lögum um almannatryggingar að því er varðar hálfan ellilífeyri.
- Ekki komið til AlþingisS-261/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. okt. 2019 – 8. nóv. 2019· 12 umsagnir
Frumvarp um breytingu á samkeppnislögum
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á samkeppnislögum, nr. 44/2005.
- Ekki komið til AlþingisS-260/2019· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. okt. 2019 – 1. nóv. 2019· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999
Eftir gildistöku breytingalaga nr. 37/2018 á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga kom í ljós að samræmingu skorti á milli laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga og laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra um öldrunarráð.
- Komið til AlþingisS-258/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. okt. 2019 – 7. nóv. 2019· 0 umsagnir
Brottfall úreltra laga á málefnasviði FJR
Áformað er að fella brott lög á málefnasviðum fjármála- og efnahagsráðuneytis sem ekki hafa þýðingu lengur.
- Komið til AlþingisS-255/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. okt. 2019 – 23. okt. 2019· 10 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til einföldunar regluverks
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum til einföldunar regluverks á málefnasviðum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
- Ekki komið til AlþingisS-254/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. okt. 2019 – 25. okt. 2019· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um vátryggingastarfsemi
Um er að ræða fyrirhugaðar lagabreytingar vegna athugasemda Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA).
- Ekki komið til AlþingisS-252/2019· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. okt. 2019 – 25. okt. 2019· 1 umsögn
Frumvarp, lög um úrvinnslugjald (EES-reglur)
Fyrirhugað er að leggja til breytingar á lögum um úrvinnslugjald í samræmi við þær kröfur sem kveðið er á um í tilskipun (ESB) 2018/851, um breytingu á tilskipun 2008/98/EB, um úrgang til kerfa sem byggja á framlengdri framleiðendaábyrgð.
- Ekki komið til AlþingisS-251/2019· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. okt. 2019 – 25. okt. 2019· 1 umsögn
Frumvarp, lög um meðhöndlun úrgangs (EES-reglur)
Með frumvarpinu er ætlunin að innleiða tvær tilskipanir ESB þar sem settar eru fram nýjar og endurskoðaðar reglur um úrgangsstjórnun og gera breytingar á lögum um meðhöndlun úrgangs til að samræma lögin efnisákvæðum tilskipananna.
- Ekki komið til AlþingisS-250/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. okt. 2019 – 15. okt. 2019· 4 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um erfðafjárskatt (þrepaskipting)
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um erfðafjárskatt, nr. 14/2004, sem fela í sér þrepaskiptingu erfðafjárskatts.
- Komið til AlþingisS-249/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. okt. 2019 – 18. okt. 2019· 3 umsagnir
Drög að frumvörpum til laga vegna samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd.
Með frumvörpunum er lagt til að innleiða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/2394 frá 12. desember 2017 um samvinnu milli landsyfirvalda sem bera ábyrgð á að framfylgja lögum um neytendavernd og um niðurfellingu reglugerðar (EB) nr. 2006/2004.
- Komið til AlþingisS-248/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. okt. 2019 – 14. okt. 2019· 5 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stimpilgjald, nr. 138/2013, (afnám stimpilgjaldskyldu á skjölum vegna eignayfirfærslu skipa)
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um stimpilgjald, nr. 138/2013, sem fela í sér afnám stimpilgjalds af skjölum er varða eignayfirfærslu skipa.
- Komið til AlþingisS-245/2019· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. okt. 2019 – 18. okt. 2019· 2 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018 (stofnanir á málefnasviði heilbrigðisráðherra).
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018 (stofnanir á málefnasviði heilbrigðisráðherra).
- Komið til AlþingisS-243/2019· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. okt. 2019 – 25. okt. 2019· 10 umsagnir
Frumvarp, hollustuhættir og mengunarvarnir (viðaukar)
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á starfsleyfis- eða skráningarskyldri starfsemi í þá veru að einungis verði gerð krafa um starfsleyfi eða að starfsemi sé skráð þegar þess er þörf með tilliti til umfangs og eðli starfseminnar. Markmið með frumvarpinu er að einfalda regluverk í þágu atvinnulífs og almennings.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)