Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
92 mál · sótt 27. október 2026
- Ekki komið til AlþingisS-146/2018· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. okt. 2018 – 17. okt. 2018· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna nýrra laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga
Með frumvarpinu eru lagðar til nauðsynlegar breytingar á ákvæðum laga sem falla undir málefnasvið félags- og jafnréttismálaráðherra, til þess að tryggja að vinnsla persónuupplýsinga samkvæmt viðkomandi lögum samræmist ákvæðum laga nr. 90/2018.
- Komið til AlþingisS-142/2018· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. sep. 2018 – 11. okt. 2018· 6 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um sviðslistir
Frumvarpið felur í sér rammalöggjöf um sviðlistastarfsemi, þar með talið Þjóðleikhúsið og Íslenska dansflokkinn, auk ákvæða um sviðslistaráð, sviðslistasjóð og kynningarmál.
- Komið til AlþingisS-140/2018· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. sep. 2018 – 9. okt. 2018· 10 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um endurskoðendur og endurskoðun
Frumvarpið er lagt fram í þeim tilgangi að skýra þær kröfur sem gerðar eru til endurskoðenda og endurskoðunarfyrirtækja og innleiða breytingar í samræmi við kröfur sem gerðar eru til endurskoðenda í Evrópu með breytingu á Evróputilskipun endurskoðenda og reglugerð um endurskoðun á eininga tengdum almannahagsmunum.
- Ekki komið til AlþingisS-138/2018· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. sep. 2018 – 22. okt. 2018· 4 umsagnir
Frumvarp, loftslagslög, breyting (loftslagsráð)
Breyting á lögum nr. 70/2012 um loftslagsmál, er lögð fram í þeim tilgangi að: 1) kveða á um stofnun og skipan loftslagsráðs í lögum; 2) innleiða tilskipun (ESB) 2018/410; 3) breyta ákvæði 6. gr. um þá opinberu aðila sem safna upplýsingum vegna losunarbókhalds Íslands; 4) uppfæra IX. kafla um Loftslagssjóð.
- Komið til AlþingisS-136/2018· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. sep. 2018 – 7. okt. 2018· 3 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingar á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3/2003, með síðari breytingum
Áformað er að leggja fram frumvarp um breytingar á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3/2003. Stefnt er að breytingum á ákvæðum laganna er varða samfjármögnun alþjóðlegra rannsóknaráætlana og sett verður sjálfstæð stjórn yfir Innviðasjóði.
- Ekki komið til AlþingisS-134/2018· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. sep. 2018 – 2. okt. 2018· 9 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsmála
Lagt er til að stofnað verði tímabundið til starfs samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs með heildarlöggjöf. Einnig er lagt til ákvæði um að óheimilt verði að ráða einstaklinga til starfa hjá íþróttafélögum eða þiggja framlag þeirra sem sjálfboðaliða hafi þeir hlotið refsidóm fyrir kynferðisbrot.
- Komið til AlþingisS-133/2018· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. sep. 2018 – 25. sep. 2018· 2 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði (reglugerðarheimild - gjaldtaka)
Með frumvarpinu er lagt til að ráðherra verði gert heimilt að setja reglugerð um gjaldtöku vísindasiðanefndar vegna umsókna um leyfi til að hefja eða breyta vísindarannsókn á heilbrigðissviði. Breytingunni er ætlað að styrkja starf vísindasiðanefndar.
- Komið til AlþingisS-131/2018· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. sep. 2018 – 25. sep. 2018· 8 umsagnir
Þjóðarsjóður
Fjármála- og efnahagsráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp til laga um að komið verði á fót varúðarsjóði til að mæta hugsanlegum fátíðum efnahagslegum skakkaföllum.
- Komið til AlþingisS-130/2018· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. sep. 2018 – 24. sep. 2018· 5 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lyfjalögum og lögum um landlækni og lýðheilsu (ávísanaheimild hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra)
Óskað er eftir athugasemdum við drög að frumvarpi til laga um breytingu á lyfjalögum og lögum um landlækni og lýðheilsu sem heimilar hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, að ávísa hormónate
- Ekki komið til AlþingisS-128/2018· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. sep. 2018 – 28. sep. 2018· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki (eiginfjáraukar).
Fjármála- og efnahagsráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp um breytingu á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki þar sem lagðar verða til breytingar á ákvæðum laganna er varða eiginfjárauka.
- Komið til AlþingisS-127/2018· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. sep. 2018 – 8. okt. 2018· 30 umsagnir
Frumvarp til laga um þungunarrof
Á haustþingi 2018 hyggst heilbrigðisráðherra leggja fram frumvarp til laga um ný heildarlög um þungunarrof. Drög að frumvarpi eru hér til umsagnar.
- Komið til AlþingisS-123/2018· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. sep. 2018 – 17. sep. 2018· 2 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um umboðsmann barna
Óskað er eftir athugasemdum við drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um umboðsmann barna.
- Komið til AlþingisS-122/2018· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. sep. 2018 – 21. sep. 2018· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um milligjöld fyrir kortatengdar greiðslur
Fjármála- og efnahagsráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp til að innleiða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/751 um milligjöld fyrir kortatengdar greiðslur.
- Komið til AlþingisS-121/2018· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. sep. 2018 – 21. sep. 2018· 1 umsögn
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki (endurskoðun).
Fjármála- og efnahagsráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp um breytingu á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki þar sem lagðar verða til breytingar á ákvæðum laganna sem varða endurskoðun fjármálafyrirtækja.
- Komið til AlþingisS-120/2018· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. sep. 2018 – 21. sep. 2018· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki (stjórn fjármálafyrirtækis).
Fjármála- og efnahagsráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp um breytingu á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki þar sem lagt verður til ný regla varðandi önnur störf stjórnarmanna í kerfislega mikilvægum fjármálafyrirtækjum.
- Komið til AlþingisS-118/2018· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 6. sep. 2018 – 20. sep. 2018· 3 umsagnir
Frumvarp til laga um ökutækjatryggingar
Með frumvarpinu er lagt til að sett verði sérstök lög sem muni gilda um lögmæltar ökutækjatryggingar og bótaábyrgð vegna tjóns af völdum vélknúinna ökutækja sem koma í stað XIII. kafla gildandi umferðarlaga nr. 50/1987.
- Ekki komið til AlþingisS-117/2018· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 31. ágú. 2018 – 14. sep. 2018· 1 umsögn
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum (framlag í lífeyrissjóði)
Hækkun á mótframlagi Atvinnuleysistryggingasjóðs, Fæðingarorlofssjóðs og ríkissjóðs til lífeyrisjóða sem og á greiðslum Ábyrgðasjóðs launa til lífeyrissjóða.
- Komið til AlþingisS-116/2018· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. ágú. 2018 – 6. sep. 2018· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006, með síðari breytingum (texti ársreiknings)
Frumvarp þetta er samið í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og felur í sér orðalagsbreytingu á lögum nr. 3/2006 um ársreikninga.Með frumvarpinu er lögð til breyting á 7. og 109. gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga.
- Komið til AlþingisS-114/2018· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. ágú. 2018 – 14. sep. 2018· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2015/1794, um farmenn.
Tilefni frumvarpsins er að gera nauðsynlegar lagabreytingar svo unnt verði að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2015/1794 frá 6. október 2015, um farmenn.
- Komið til AlþingisS-113/2018· Drög að stefnu· Utanríkisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. ágú. 2018 – 13. sep. 2018· 2 umsagnir
Tillaga til þingsályktunar um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2019–2023
Utanríkisráðuneytið óskar eftir athugasemdum eða hugmyndum almennings og annarra haghafa um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2019–2023.
- Ekki komið til AlþingisS-112/2018· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. ágú. 2018 – 6. sep. 2018· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum
Alþingi hefur samþykkt lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir sem taka gildi 1. október 2018. Í því skyni að tryggja þá þjónustu sem lögin gera ráð fyrir þannig að markmið laganna nái fram að ganga þykir nauðsynlegt að tryggja áfram í
- Komið til AlþingisS-105/2018· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. ágú. 2018 – 30. ágú. 2018· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun, nr. 160/2011
Í frumvarpsdrögunum er annars vegar lagt til að gildistími laga um svæðisbundna flutningsjöfnun verði framlengdur til ársloka 2025 og hins vegar að skilyrði flutningsjöfnunarstyrkja verði rýmkuð til að fjölga þeim framleiðendum á landsbyggðinni sem notið geta slíkra styrkja.
- Ekki komið til AlþingisS-103/2018· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. ágú. 2018 – 29. ágú. 2018· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 118/2016 um fasteignalán til neytenda
Með frumvarpsdrögunum er lagt til að ákvæði fasteignalánatilskipunarinnar um heimildir lánamiðlara til að stunda viðskipti yfir landamæri verði tekin upp í íslenskan rétt.
- Komið til AlþingisS-102/2018· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. ágú. 2018 – 29. ágú. 2018· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um brottfall laga nr. 51/1924 um ríkisskuldabréf
Með frumvarpsdrögunum er lagt til að lög nr. 51/1924 um ríkisskuldabréf falli úr gildi.
- Komið til AlþingisS-99/2018· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. júl. 2018 – 5. sep. 2018· 37 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um Þjóðgarðastofnun
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um frumvarp um nýja stofnun sem ætlað er að hafa með höndum umsýslu allra þjóðgarða á Íslandi og annarra friðlýstra svæða auk almennrar náttúruverndar. Samhliða er kallað eftir tillögum um nafn á hina nýju stofnun.
- Komið til AlþingisS-98/2018· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. júl. 2018 – 14. ágú. 2018· 3 umsagnir
Frumvarp til nýrra heildarlaga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
Um er að ræða drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Frumvarpið er innleiðing á fjórðu peningaþvættistilskipun Evrópusambandsins 2015/849/EB.
- Komið til AlþingisS-97/2018· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. júl. 2018 – 10. ágú. 2018· 22 umsagnir
Frumvarp til nýrra umferðarlaga
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að nýjum umferðarlögum.
- Komið til AlþingisS-96/2018· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. júl. 2018 – 10. ágú. 2018· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vaktstöð siglinga
Með drögum þessum að frumvarpi eru lagðar til breytingar á lögum um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003, með síðari breytingum, að því er varðar hafnsögu skipa.
- Ekki komið til AlþingisS-93/2018· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. júl. 2018 – 25. ágú. 2018· 4 umsagnir
Frumvarp til laga um myndavélaeftirlit í sjávarútvegi
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi til laga um myndavélaeftirlit í sjávarútvegi. Meginmarkmið meðfylgjandi frumvarps er að skapa traust til sjávarútvegsins með notkun á nýjustu tækni við eftirlit með vigtun, brottkasti og framhjáafla.
- Komið til AlþingisS-91/2018· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. júl. 2018 – 20. ágú. 2018· 2 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um umboðsmann barna
Áformað er að gera breytingar á lögum um umboðsmann barna til þess að tryggja að embættið geti sinnt betur því hlutverki sínu að bæta hag barna og standa vörð um hagsmuni þeirra, þarfir og réttindi.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)