Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði (reglugerðarheimild - gjaldtaka)
Með frumvarpinu er lagt til að ráðherra verði gert heimilt að setja reglugerð um gjaldtöku vísindasiðanefndar vegna umsókna um leyfi til að hefja eða breyta vísindarannsókn á heilbrigðissviði. Breytingunni er ætlað að styrkja starf vísindasiðanefndar.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-133/2018)
- Umsagnarfrestur hefst · til 25. september 2018
- Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 299)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (22. janúar 2019)
Frumvarpið var sent vísindasiðanefnd til umsagnar og í framhaldinu birt í samráðsgáttinni. Umsögn barst frá nefndinni sem gerði ekki efnislegar athugasemdir við frumvarpið. Ein umsögn barst til viðbótar en í henni var lögð áhersla á mikilvægi þess að gjaldtakan hefði ekki áhrif á rannsóknir nemenda. Áhersla er lögð á að nemendur verði undanþegnir umræddri gjaldtöku eins og nánar verður útfært í reglugerð. Frumvarpið var í framhaldinu lagt fram á Alþingi. Sjá: https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=149&mnr=299
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
- #1Ása Vala Þórisdóttir
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands vill koma þeirri ábendingu á framfæri að gjaldtaka vegna nýrra leyfa verði að vera engin eða mjög hófstillt vegna vísindarannsókna námsmanna (grunnnema og framhaldsnema). Enn fremur vill sviðið koma því á framfæri að gjaldtaka vegna viðbótarleyfa gæti mögulega hamlað því að bætt sé við eldri fyrirliggjandi rannsóknargögn og þar með hamlað því að gögn séu nýtt á sem mestan og bestan hátt.
- #2Vísindasiðanefnd
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.