Frumvarp til nýrra umferðarlaga
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að nýjum umferðarlögum.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-97/2018)
- Umsagnarfrestur hefst · til 10. ágúst 2018
- Umsagnarfresti lýkur · 22 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 219)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (23. nóvember 2020)
Ráðuneytinu bárust alls 22 umsagnir við frumvarpsdrögin frá hagsmunaaðilum, stjórnvöldum og einstaklingum. Unnið var úr athugasemdum og tók frumvarpið töluverðum breytingum eftir samráðið. Sjá greinargerð um samráð í 9. kafla greinargerðar með frumvarpi til umferðarlaga. Hlekk er að finna hér að neðan.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (22)
- #1Þorsteinn V Sigurðsson
Dapurlegt hvað endalaust er hægt að ráðast á bíleigendur með ofursköttum. Legg til þessu verði sleppt. Og hækkanir í hundruðum prósenta .Nær væri að kíkja á álverin og fl ef aura vantar í ríkiskassan.
- #2Hlíðar Kjartansson
Vill endilega að það verði takið á stebnuljósa bílstjóra og hafa háa sekt ef menn gefa ekki stebnuljós
- #3Sigríður Erla Sigurðardóttir
Í 75. grein er talað um öryggisbúnað barna í bíl. Þar mætti kveða mun fastar að orði. Það sem vitað er nú um öryggi barna í bílum er að barn undir 3ja ára eða 15 kg ætti ávallt að sitja í bakvísandi bílstól með 5 punkta belti. Barn undir 145 cm eða 36 kg ætti að sitja á sessu með baki eða bílstól þar sem notast er við belti bílsins til að festa barnið.
- #4Kristinn Alex Sigurðsson
83. Grein þessara laga er algjörlega glórulaus. Þegar vitað er að þvottur/skolun gatna er aðal atriðið í að halda götum hreinum, er hér skuldinni skellt á skattgreiðendur. Það væri nær að segja að þegar mengun er yfir ákveðnum stuðli beri sveitarfélagi að sjá til þess að götur séu skolaðar
- #5Magnús Axel Hansen
Ég vil gera athugasemd við 18. grein þar sem fjallað er um akstur í hringtorgum. Þar ber fyrst að nefna að það að innri akrein eigi forgang gagnvart þeirri ytri stríðir gegn þeirri meginreglu í hægri umferð sem gjarnan er nefnd „varúð til hægri“. Þetta yrði þá eina tilvikið þar sem vinstri akrein á forgang á þá hægri. Í öðru lagi er þetta andstætt þeim reglum sem eru í nágrannalöndum okkar. Mér hafði verið talin trú um það í ökunámi fyrir rúmlega fjörtíu árum að innri akreinin ætti alltaf réttinn (þrátt fyrir að það kæmi hvergi fram í gildandi umferðarlögum) og olli það mér strax va… Lesa alla
Ég vil gera athugasemd við 18. grein þar sem fjallað er um akstur í hringtorgum. Þar ber fyrst að nefna að það að innri akrein eigi forgang gagnvart þeirri ytri stríðir gegn þeirri meginreglu í hægri umferð sem gjarnan er nefnd „varúð til hægri“. Þetta yrði þá eina tilvikið þar sem vinstri akrein á forgang á þá hægri. Í öðru lagi er þetta andstætt þeim reglum sem eru í nágrannalöndum okkar. Mér hafði verið talin trú um það í ökunámi fyrir rúmlega fjörtíu árum að innri akreinin ætti alltaf réttinn (þrátt fyrir að það kæmi hvergi fram í gildandi umferðarlögum) og olli það mér strax vandræðum þegar ég fór að aka í t.d. Danmörku og Svíþjóð. Nú þegar erlendum ferðamönnum hefur fjölgað gríðarlega hér á landi veldur þetta þeim sömu vandræðum (í hina áttina) þegar þeir fara að aka á okkar vegum. Í þriðja lagi vil ég nefna rökin fyrir þessum breytingum: • Þar er vísað til hefðar, að þetta hafi verið kennt í mörg ár en það gengur ekki upp. Fyrir rúmum áratug fór ég t.d. í ökuskóla því ég var að sækja mér réttindi til að aka þungu bifhjóli – þar var áréttað að það stæði ekkert í umferðarlögum um vinstri forgang í hringtorgum. • Einnig er talað um að umferðarmannvirki séu hönnuð með þennan forgang í huga – það er ekki rétt nema að hluta. Á einstöku stað er það fyrirkomulag, sé ekið út af tveggja akreina hringtorgi inn á einnar akreinar veg, að þá séu tvær akreinar fyrst sem sameinast síðan á þann hátt að sú hægri renni inn í þá vinstri og vinstri hafi þá forgang. Algengara er þó að sú vinstri sameinist þeirri hægri með hægri forgangi (og fellur þar með niður vinstri forgangurinn). • Götumerkingar í hringtorgum eru misvísandi. Þar er brotin lína milli akreina sem þá leyfir að skipt sé um akrein, bæði inni í hringtorginu sjálfu og eins þegar ekið er út úr því (þannig leyfilegt að aka úr innri hring þvert yfir á hægri akrein á leið út úr hringtorginu). Brotna miðlínan eltir akreinarnar út úr hringtorginu, það er það eina sem styður vinstri forganginn í dag. Hvað ef hún er orðin ósýnileg vegna slits? Í núgildandi umferðarlögum sem og drögunum að þeim nýju er lögð áhersla á að ekið sé sem lengst til hægri á fjölakreina vegum eftir því sem kostur er (sbr. 17. gr.) og er það vel. Því skýtur skökku við að auka forgang vinstri akreinar í hringtorgum. Hvað gerum við t.d. þegar við verðum komin með þriggja akreina hringtorg? Einnig er varhugavert að setja sér-íslensk umferðarlög sem eru gjörólík þeim sem eru í gildi í nágrannalöndunum.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.