Drög að frumvarpi til laga um endurskoðendur og endurskoðun
Frumvarpið er lagt fram í þeim tilgangi að skýra þær kröfur sem gerðar eru til endurskoðenda og endurskoðunarfyrirtækja og innleiða breytingar í samræmi við kröfur sem gerðar eru til endurskoðenda í Evrópu með breytingu á Evróputilskipun endurskoðenda og reglugerð um endurskoðun á eininga tengdum almannahagsmunum.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-140/2018)
- Umsagnarfrestur hefst · til 9. október 2018
- Umsagnarfresti lýkur · 10 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 312)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (30. nóvember 2018)
Í framhaldi af innsendum umsögnum var farið yfir ábendingarnar og gerðar breytingar á frumvarpsdrögunum. Frumvarpið er nú til meðferðar hjá Alþingi.
- Drög að frumvarpi til laga um endurskoðendur og endurskoðun
- REGLUGERÐ EVRÓPUÞINGSINS OG RÁÐSINS nr. 537/2014/ESB
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (10)
- #1Lilja Brynja Skúladóttir
Umsögn lítur að ákvæði í 6. grein laga um endurskoðendur þar sem allir endurskoðendur eru skyldaðir til að hafa í gildi starfsábyrgðartryggingu hjá vátryggingafélagi sama hvort þeir starfi á endurskoðendastofu eða utan stofu. Í umsögn minni vísa ég til ákvæða í 12. grein laga um lögmenn nr. 77/1998 þar sem lögmenn sem starfa hjá opinberri stofnun eða einkaaðila þurfa ekki að vera með gilda starfsábyrgðartryggingu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Sjá viðhengt skjal.
- #2Sigurður Örn Guðleifsson
Hjálagðar eru ábendingar ráðgjafarnefndar um eftirlit á vegum hins opinbera, skv. lögum nr. 27/1999, sbr. 12. gr. í samþykkt ríkisstjórnar frá 10. mars 2017. Fyrir hönd nefndarinnar, Sigurður Örn Guðleifsson, formaður.
- #3Bryndís Björk Guðjónsdóttir
Meðfylgjandi er umsögn fyrir hönd PricewaterhouseCoopers ehf.
- #4Kristín Halldóra Halldórsdóttir
Athugasemdir við 7. grein í frumvarpi um starfsábyrgðartryggingu endurskoðenda gagnvart endurskoðendum sem ekki starfa á endurskoðunarstofum heldur hjá opinberum stofnunum og einkaaðilum. Tillaga er að setja inn undanþáguákvæði svipað og er að finna í lögum um lögmenn.
- #5Auður Ósk Þórisdóttir
Meðfylgandi er umsögn frá KPMG ehf.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.