Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-96/2018 · Innviðaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vaktstöð siglinga

Með drögum þessum að frumvarpi eru lagðar til breytingar á lögum um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003, með síðari breytingum, að því er varðar hafnsögu skipa.

Að gefnu tilefni ákvað samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið að skoða sérstaklega lagagrundvöll hafnsögu hér á landi. Með hafnsögu er átt við leiðsögu skipa um hafnarsvæði. Í lögum um vaktstöð siglinga segir í 12. gr. að öll skip sem flytja hættulegan eða mengandi varning í farmrými eða á þilfari í meira magni en tiltekið er í reglugerð skulu hafa um borð hafnsögumann við siglingu um hafnarsvæði. Við leit í lagasafni kom í ljós að þetta ákvæði er í raun eina efnislega ákvæðið um hafnsögu. Í hafnalögum er gert ráð fyrir að hafnsöguþjónusta teljist til hafntengdrar þjónustu og höfnum heimilað að taka hafnsögugjöld fyrir þjónustu hafnsögubáta. Í siglingalögum eru ákvæði sem mæla fyrir um að farmflytjandi skuli greiða hafnsögugjöld sem stofnast í ferð skips, að farmflytjandi sé ekki ábyrgur þegar hann getur sýnt fram á að tjón stafi af yfirsjónum eða vanrækslu hafnsögumanns og að útgerðarmaður beri ábyrgð á tjóni sem stafi af yfirsjónum eða vanrækslu í starfi hafnsögumanns. Þá er mælt fyrir um skyldu hafnsögumanna í lögum um eftirlit með skipum, um að tilkynna vitneskju um brot gegn lögunum. Að lokum er ráðherra heimilt í lögum um vaktstöð siglinga að undanskilja hafnsögubáta frá ákvæðum laganna og í lögum um þjóðfána Íslendinga og ríkisskjaldamerkið er hafnsögubátum heimiluð not á tjúgufánanum. Þar með eru ákvæði um hafnsögu upptalin í lagasafninu. Í ljósi þeirra mikilvægu verndarhagsmuna sem felast í hafnsögu, þ.e. öruggum siglingum og vernd gegn mengun hafs og stranda, o.fl., verður að telja nauðsynlegt að mælt sé með skýrari hætti fyrir um hafnsögu og heimild hafna til að mæla fyrir um hafnsöguskyldu.

S-96/2018· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. júl. 2018 – 10. ágú. 2018· 0 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vaktstöð siglinga

Með drögum þessum að frumvarpi eru lagðar til breytingar á lögum um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003, með síðari breytingum, að því er varðar hafnsögu skipa.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-96/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. ágúst 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 81)
Niðurstöður samráðs (13. ágúst 2018)

Engar athugasemdir bárust.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-96/2018: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vaktstöð siglinga · Alviti