Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-116/2018 · Atvinnuvegaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006, með síðari breytingum (texti ársreiknings)

Frumvarp þetta er samið í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og felur í sér orðalagsbreytingu á lögum nr. 3/2006 um ársreikninga.Með frumvarpinu er lögð til breyting á 7. og 109. gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga.

Meginbreytingar þær sem lagðar eru til í frumvarpinu eru breyting á 7. og 109. gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga. Þar er opnað fyrir þann möguleika að öll félög sem mikilsverða hagsmuni hafi að gæta vegna erlendrar fjármögnunar eða viðskiptasambanda geti samið ársreikning á ensku en þá skuli ársreikningurinn þýddur á íslensku og hann vera birtur hjá ársreikningaskrá bæði ensku og íslensku. Mikilvægt er að ársreikningar séu birtir hjá ársreikningaskrá þannig að viðskiptalífið og þeir sem reiða sig á fjárhagsupplýsingar félaga hafi greiðan aðgang að þeim upplýsingum og að upplýsingarnar séu á tungumáli sem meginþorri þjóðarinnar skilur. Lagt er til að lögin öðlist þegar gildi og komi til framkvæmda fyrir reikningsár sem hefst 1. janúar 2017 eða síðar.

S-116/2018· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. ágú. 2018 – 6. sep. 2018· 1 umsögn

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006, með síðari breytingum (texti ársreiknings)

Frumvarp þetta er samið í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og felur í sér orðalagsbreytingu á lögum nr. 3/2006 um ársreikninga.Með frumvarpinu er lögð til breyting á 7. og 109. gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-116/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 6. september 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 139)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (30. nóvember 2018)

Er orðið að lögum nr. 113/2018. https://www.althingi.is/altext/149/s/0397.html Í greinargerðinni með frumvarpinu kom eftirfarandi fram: Frumvarpið var sett í samráðsgáttina 30. ágúst sl. Ein umsögn barst frá Samtökum fjármálafyrirtækja (SFF). Þau eru fylgjandi þeirri breytingu sem lögð er til í frumvarpinu að fyrirtæki sé heimilt að semja ársreikning/samstæðureikning á ensku hafi það af því mikilsverða hagsmuni, svo sem vegna erlendrar fjármögnunar eða viðskiptasambanda. Þau telja mikilvægt að frekari leiðbeiningar verði gefnar um það hvernig eigi að meta hvort skilyrði um mikilsverða hagsmuni sé uppfyllt.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
  • #1Samtök fjármálafyrirtækja
    SFF er fylgjandi þeirri breytingu sem lögð er til í frumvarpinu um að fyrirtæki sé heimilt að semja ársreikning/samstæðureikning á ensku hafi það af því mikilsverða hagsmuni, svo sem vegna erlendrar fjármögnunar eða viðskiptasambanda. Í skýringum kemur fram að fyrirtæki meti það sjálft hvort það falli undir skilyrði fyrir því að þetta sé heimilt og þurfi ekki að sækja um heimild eins og áður. Upptalningin í frumvarpinu á mikilsverðum hagsmunum er ekki tæmandi heldur í dæmaskyni. Að mati SFF er mikilvægt að frekari leiðbeining verði gefin um það í frumvarpinu hvernig eigi að meta það hvort skil… Lesa alla

    SFF er fylgjandi þeirri breytingu sem lögð er til í frumvarpinu um að fyrirtæki sé heimilt að semja ársreikning/samstæðureikning á ensku hafi það af því mikilsverða hagsmuni, svo sem vegna erlendrar fjármögnunar eða viðskiptasambanda. Í skýringum kemur fram að fyrirtæki meti það sjálft hvort það falli undir skilyrði fyrir því að þetta sé heimilt og þurfi ekki að sækja um heimild eins og áður. Upptalningin í frumvarpinu á mikilsverðum hagsmunum er ekki tæmandi heldur í dæmaskyni. Að mati SFF er mikilvægt að frekari leiðbeining verði gefin um það í frumvarpinu hvernig eigi að meta það hvort skilyrði um mikilsverða hagsmuni sé uppfyllt. Að öðrum kosti getur óskýrleiki í lagatextanum valdið fyrirtækjum óvissu, sérstaklega í ljósi þess að það gæti varðað viðurlögum ef fyrirtæki skilar aðaleintaki reikningsins á ensku en ársreikningaskrá telur að skilyrðið sé ekki uppfyllt.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-116/2018: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006, með síðari breytingum (texti ársreiknings) · Alviti