Frumvarp, loftslagslög, breyting (loftslagsráð)
Breyting á lögum nr. 70/2012 um loftslagsmál, er lögð fram í þeim tilgangi að: 1) kveða á um stofnun og skipan loftslagsráðs í lögum; 2) innleiða tilskipun (ESB) 2018/410; 3) breyta ákvæði 6. gr. um þá opinberu aðila sem safna upplýsingum vegna losunarbókhalds Íslands; 4) uppfæra IX. kafla um Loftslagssjóð.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-138/2018)
- Umsagnarfrestur hefst · til 22. október 2018
- Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
4 umsagnir hafa borist; þær eru á vef Samráðsgáttar.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.