Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um umboðsmann barna
Áformað er að gera breytingar á lögum um umboðsmann barna til þess að tryggja að embættið geti sinnt betur því hlutverki sínu að bæta hag barna og standa vörð um hagsmuni þeirra, þarfir og réttindi.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-91/2018)
- Umsagnarfrestur hefst · til 20. ágúst 2018
- Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (15. janúar 2019)
Tvær umsagnir bárust um áformin, frá Landssamtökunum Þroskahjálp og Barnaheillum. Sömu aðilar sendu inn umsagnir við drög að frumvarpi sem unnið var í kjölfarið, sjá umfjöllun um mál nr. 123/2018 í Samráðsgátt. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi og er orðið að lögum nr. 148/2018, sjá nánar á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/149/s/0734.html
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
- #1Þroskahjálp,landssamtök
Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um umboðsmann barna. Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fötluð börn og fólk með þroskahömlun. Samtökin fagna áformum um endurskoðun á lögum um umboðsmann barna með það að markmiði að gera embættið öflugra til að standa vörð um mannréttindi og tækifæri allra barna. Samtökin vilja á þessu stigi sérstaklega koma eftirfarandi á framfæri. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Íslenska ríkið fullgilti samning Sameinuðu þjóða… Lesa alla
Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um umboðsmann barna. Landssamtökin Þroskahjálp vinna að réttinda- og hagsmunamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fötluð börn og fólk með þroskahömlun. Samtökin fagna áformum um endurskoðun á lögum um umboðsmann barna með það að markmiði að gera embættið öflugra til að standa vörð um mannréttindi og tækifæri allra barna. Samtökin vilja á þessu stigi sérstaklega koma eftirfarandi á framfæri. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Íslenska ríkið fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja öllum ákvæðum samningsins. Þessi mikilvægi mannréttindasamningur tekur til allra sviða samfélagsins og hefur það að markmiði að tryggja tækifæri fatlaðs fólks til virkrar þátttöku á öllum sviðum, án mismununar og aðgreiningar. Sum ákvæði samningsins hafa eðli máls samkvæmt sérstaka þýðingu hvað varðar tækifæri fatlaðra barna og skyldu ríkisins til að verja þau fyrir mismunun og aðgreiningu. Ákvæði samningsins varðandi menntun, fjölskyldulíf og þátttöku í félagslífi eru skýr dæmi um það. Þá eru í samningnum ákvæði sem snúa beint að réttindum fatlaðra barna, s.s. í 4. gr. samningsins sem hefur yfirskriftina Fötluð börn og hljóðar svo: 1. Aðildarríkin skulu gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til þess að fötluð börn fái notið mannréttinda og mannfrelsis til fulls og jafns við önnur börn. 2. Í öllum aðgerðum, sem snerta fötluð börn, skal fyrst og fremst hafa það að leiðarljósi sem er viðkomandi barni fyrir bestu. 3. Aðildarríkin skulu tryggja fötluðum börnum rétt til þess að láta skoðanir sínar óhindrað í ljós um öll mál er þau varða, jafnframt því að sjónarmiðum þeirra sé gefinn gaumur eins og eðlilegt má telja miðað við aldur þeirra og þroska og til jafns við önnur börn og veita þeim aðstoð þar sem tekið er eðlilegt tillit til fötlunar þeirra og aldurs til þess að sá réttur megi verða að veruleika. Í samningnum er lögð mikil áhersla á skyldu ríkja til að hafa mikið og virkt samráð við fatlað fólk, þ.m.t. fötluð börn, og samtök sem vinna að réttinda- og hagsmunamálum þess Í 4. gr. samningsins sem hefur yfirskriftina Almennar skuldbindingar segir um það: Þegar aðildarríkin undirbúa löggjöf sína og stefnu samningi þessum til framkvæmdar og vinna að því að taka ákvarðanir um málefni sem varða fatlað fólk skulu þau hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, einnig fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd. Landssamtökin Þroskahjálp telja mjög mikilvægt að stjórnvöld hafi framangreindar skyldur sínar gagnvart fötluðum börnum sem og skyldur til virks samráðs mjög í huga við endurskoðun laga um umboðsmann barna þannig að lögin stuðli markvisst að því að fötluð börn njóti allra þeirra mannréttinda sem íslenska ríkinu er skylt að tryggja þeim. Samtökin lýsa jafnframt yfir miklum vilja til að taka þátt í samráði við hlutaðeigandi stjórnvöld til að þau markmið geti sem best náðst.
- #2Þóra Jónsdóttir
Umsögn Barnaheilla – Save the Children á Íslandi um áform um breytingu á lögum um umboðsmann barna. Barnaheill – Save the Children á Íslandi fengu ofangreint mál til umsagnar og þakka fyrir það tækifæri. Barnaheill fagna þeim áformum sem kynnt hafa verið samtökunum um breytingar á lögum um umboðsmann barna. Samtökin taka heilshugar undir þau sjónarmið sem koma fram í umfjöllun ráðuneytisins um málið, að umboðsmaður barna hafi sérstöku hlutverki að gegna við eftirfylgni og aðhald við framfylgd Barnasáttmálans á Íslandi. Mikilvægt er að formfesta það hlutverk umboðsmanns barna með lögu… Lesa alla
Umsögn Barnaheilla – Save the Children á Íslandi um áform um breytingu á lögum um umboðsmann barna. Barnaheill – Save the Children á Íslandi fengu ofangreint mál til umsagnar og þakka fyrir það tækifæri. Barnaheill fagna þeim áformum sem kynnt hafa verið samtökunum um breytingar á lögum um umboðsmann barna. Samtökin taka heilshugar undir þau sjónarmið sem koma fram í umfjöllun ráðuneytisins um málið, að umboðsmaður barna hafi sérstöku hlutverki að gegna við eftirfylgni og aðhald við framfylgd Barnasáttmálans á Íslandi. Mikilvægt er að formfesta það hlutverk umboðsmanns barna með lögum og sérstaklega vegna lögfestingar Barnasáttmálans. Jafnframt fagna samtökin þeim sjónarmiðum sem fram koma um að gott samfélag sé barnvænt samfélag og skuli stuðlað að jafnri þátttöku allra, m.a. með aukinni áherslu á þátttöku barna til áhrifa á mótun samfélagsins, án mismununar af nokkru tagi. Hlutverk umboðsmanns barna sé að vinna að því að fullt tillit sé tekið til réttinda, þarfa og hagsmuna barna á öllum sviðum samfélagsins. Skuli umboðsmaður setja fram ábendingar og tillögur um úrbætur sem snerta hag barna. Styrkja þarf heimildir umboðsmanns barna til að afla gagna og miðla upplýsingum um aðstæður barna til að nýta m.a. til grundvallar samræmdri og markvissri stefnu í málefnum barna á öllum stigum stjórnsýslunnar. Barnaheill fagna áformum um að lögfesta árlegt Barnaþing þar sem farið verði yfir stöðu og þróun í málefnum barna á helstu sviðum samfélagsins og að niðurstöður verði nýttar til áframhaldandi styrkingar á réttindum barna og framfylgni þeirra. Barnaheill hvetja stjórnvöld til að ganga enn lengra í þessu skrefi, með því að undirrita og fullgilda þriðju valfrjálsu bókunina við Barnasáttmálann, sem á að gera börnum kleift að senda kvartanir beint til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna. Samtökin telja það brýnt verkefni til að styrkja mannréttindi barna hér á landi og sé viðurkenning á því að börn séu í raun einstaklingar með sjálfstæð réttindi, án mismununar og óháð stétt eða stöðu. Samtökin taka fús þátt í frekara samtali um breytingar á lögum um umboðsmann barna og um framfylgni mannréttinda barna á Íslandi.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.