Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-114/2018 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2015/1794, um farmenn.

Tilefni frumvarpsins er að gera nauðsynlegar lagabreytingar svo unnt verði að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2015/1794 frá 6. október 2015, um farmenn.

Með frumvarpsdrögum þessum er lagt til að ákvæði tilskipunar 2015/1794 verði innleidd í íslenskan rétt. Í tilskipuninni er kveðið á um breytingar á ýmsum EES-gerðum sem hafa það að markmiði að farmenn geti nýtt sér að fullu rétt sinn til sanngjarnra og réttlátra vinnuskilyrða sem og rétt til upplýsingamiðlunar og samráðs. Frumvarpsdrög þessi voru samin í velferðarráðuneytinu. Með þeim eru lagðar til breytingar á lögum um evrópsk samstarfsráð í fyrirtækjum, lögum um upplýsingar og samráð í fyrirtækjum, lögum um hópuppsagnir og lögum um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum. Við vinnslu frumvarpsins var haft samráð við samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, Alþýðusamband Íslands, Félag skipstjórnarmanna, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Sjómannasambandið og Samtök verslunar og þjónustu. Talið er að fyrirhugaðar breytingar muni hafa lítil áhrif hér á landi. Ekki er gert ráð fyrir að frumvarpið muni fela í sér aukinn kostnað fyrir ríkissjóð. Sjá nánari umfjöllun um mat á áhrifum í greinargerð með frumvarpi og í fylgiskjali um áhrifamat.

S-114/2018· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. ágú. 2018 – 14. sep. 2018· 0 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2015/1794, um farmenn.

Tilefni frumvarpsins er að gera nauðsynlegar lagabreytingar svo unnt verði að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2015/1794 frá 6. október 2015, um farmenn.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-114/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 14. september 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 530)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (25. mars 2019)

Frumvarpið var samið í velferðarráðuneytinu í samráði við fulltrúa frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Frumvarpið var einnig sent til umsagnar til Alþýðusambands Íslands, Sjómannasambandsins, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka verslunar og þjónustu sem og Félags skipstjórnarmanna. Þá fór frumvarpið í opið umsagnarferli í samráðsgátt Stjórnarráðsins í ágúst 2018 þar sem almenningi gafst kostur á að koma með athugasemdir við drög að frumvarpinu. Engin umsögn barst með þessum hætti.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-114/2018: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2015/1794, um farmenn. · Alviti